Bændablaðið - 29.01.2015, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
RAFSTÖÐVAR
Eigum á lager úrval rafstöðva í stærðum 0.9 kW – 5.4 kW
Honda – Yanmar – Hatz benzín/diesel mótorarar
Eins og þriggja fasa rafalar
Úrval stærri rafstöðva frá EUROPOWER í mörgum útfærslum.
Úrval rafstöðva frá EUROPOWER fyrir aflúrtak dráttarvéla.
ÞÓR HF
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Vor 3 21. apríl - 3. maí
Sardinía & Korsíka
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Glæsileg eyjaferð til Sardiníu og Korsíku, þar sem við
ferðumst um stórbrotna náttúru með mikilli gróðursæld
milli lítilla krúttlegra þorpa. Gullinn sandur, sægrænt
haf og ilmur frá Macchia gróðri rammar inn ótrúlega
upplifun um þessar fögru eyjar.
Verð: 298.100 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
Fararstjóri: Þóra Valsteinsdóttir
Umfjöllun Bændablaðsins
um ódýra virkjanakosti og
lágtæknivirkjanir í október 2013
vakti mikla athygli og eru enn að
berast fyrirspurnir vegna þess.
Þar var m.a. fjallað um lágtækni
eins og bátamyllur og allt upp
í nýjustu tækni hvað varðar
kjarnasamrunaorku.
Erlendis er umræðan stöðugt í
gangi og áhugi jarðeigenda sem
aðgengi hafa að vatni greinilega
mikill á að verða sjálfbærir í
orkumálum. Landrými er þó víðast
hvar að þrengjast sem takmarkar
möguleika fólks á að virkja.
Sennilega er Ísland þó enn best sett
hvað þetta varðar af öllum löndum
Evrópu.
Virkjun vatnsafls er ekki alltaf
umhverfisvæn
Á undanförnum árum hefur
verið nokkur vakning í þá átt
að leita leiða til að búa til minni
vatnsaflsvirkjanir en oftast hafa
verið á stefnuskrám ríkja heimsins.
Þar er fyrst og fremst verið að líta
til neikvæðra umhverfislegra þátta
sem stórvirkjanir óneitanlega hafa.
Í Bandaríkjunum er bent á gríðarleg
orkumannvirki í því sambandi eins
og Hoover Dam, Niagara Power
Plant og fleiri slíkar sem valdið hafa
gríðarlegum umhverfisáhrifum.
Þótt orka þessara virkjana sé sögð
umhverfisvæn, er það ekki alveg
sannleikanum samkvæmt. Stór
orkumannvirki breyta oft flæði
vatns á stórum landsvæðum með
tilheyrandi áhrifum á gróður,
dýralíf og mannlíf. Því hafa
umhverfisverndarsamtök á borð
við Green Energy Ohio (GEO) og
fleiri tekið upp baráttu fyrir því
að virkjað verði í minni skala og
byggðar virkjanir sem eru minni
en 30 megawött. Samkvæmt
þeirra hugmyndum geta einungis
slíkar „smávirkjanir“ talist skila
umhverfisvænni orku.
Smávirkjanir umhverfisvottaðar
Í Bandaríkjunum er starfandi stofnun
sem rekin er án gróðasjónarmiða
sem gefur út umhverfisvottorð fyrir
smávirkjanir. Þessi stofnun heitir
Low Impact Hydropower Institute
(LIHI). Til að standast skilyrði
þessarar stofnunar eru metin átta
atriði er tengjast áhrifum virkjunar
á umhverfisþætti. Það er áhrif á
flæði vatns, vatnsgæði, hindrun
fiskgengdar, vatnssóun, hvort
það skapi áhættu fyrir viðgang
dýrategunda, menningarleg áhrif,
afturkræfni og leiðbeiningar um
hvaða aðstöðu þurfi að fjarlægja.
Er þessi stofnun einnig búin að gera
úttektir á og gefa út vottanir fyrir
fjölda smávirkjana í Kanada.
Þessu tengist aukinn áhugi
víða um heim á lágkostnaðar
míkróvirkjunum sem skila kannski
frá einni kílówattstund (1 kWh) upp
í 30 kílówattstundir. Benda samtökin
GEO á að slíkar virkjanir gætu víða
hentað, einkum til sveita, því meðal
heimili í Bandaríkjunum noti ekki
nema 10–15 kílówattstundir á dag.
Þá gæti víðari hugsun á nýtingu
á straumflæði vatns gert slíka
orkunýtingu mun víðtækari.
Straumvatnssvirkjanir
Virkjun hægstreymandi straumvatns
í ám og í sjó, án þess að beita
stíflumannvirkjum, hefur verið þekkt
fyrirbæri og mikið nýtt víða um lönd
í mörg hundruð og jafnvel þúsundir
ára. Því er virkjun slíks afls alls ekki
langsótt og víða vel framkvæmanleg.
Fjöldi skýrslna hefur verið gerður
og mikil þróun hefur verið í gerð
margvíslegs búnaðar fyrir ódýrar
vatnsaflsvirkjanir eða svokallaðar
Low Cost Micro-Hydroelectric
Power Generation. Eina slíka skýrslu
eftir Sivasakthy Selvakumaran má
t.d. finna á netinu á vefslóðinni:
http://www.ewb-uk.org/filestore/
FINAL%20REPORT_Sakthy%20
Selvakumaran.pdf.
Skýrsluna setur hann m.a. fram
í þeim tilgangi að hún geti orðið
öðrum leiðarvísir við hönnun og
smíði smávirkjana. Skoðar hann þar
fjölmörg mannvirki og dregur upp
myndir af hvað menn hafi gert rétt
og rangt. /HKr.
Vaxandi áhugi fyrir
smávirkjunum
Það þarf ekki alltaf
Stefán Rögnvaldsson á Leifsstöðum
fékk Þorsteinshrútinn
Þorsteinshrúturinn er veittur þeim
sem á besta veturgamla hrútinn
í Norður-Þingeyjasýslu ár hvert.
Afhending verðlaunanna fór fram
21. nóvember síðastliðinn. Að þessu
sinni var það Stefán Rögnvaldsson
á Leifsstöðum sem hlaut verðlaunin
fyrir hrútinn Lása.
Nýjar reglur tóku gildi á síðasta
ári. Það voru reiknuð stig fyrir 62
veturgamla hrúta þetta árið.
Í fyrsta sæti er Lási 13-175
á Leifsstöðum en hann hlaut 85
stig. Lási er undan Hvít 10-786
á Leifsstöðum og Yrstu 06-706,
Lásadóttur 02-944. Lási átti 23
sláturlömb, fallþungi þeirra var
17,8 kg, einu kílói yfir búsmeðaltali.
Gerðarmat þeirra var 10,35 og
fitumat 7,09. Kynbótamat Lása er
107 fyrir fitu, 112 fyrir gerð, 113 fyrir
mjólkurlagni og 110 fyrir frjósemi.
Næstur að stigum kom Lúði
13-101 í Hafrafellstungu sem
er einnig undan Hvít 10-786 frá
Leifsstöðum.