Bændablaðið - 29.01.2015, Side 4

Bændablaðið - 29.01.2015, Side 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015 Matvælaöryggi: Nýjar reglur um útgáfu heilbrigðis- vottorða með búfjárafurðum Hinn 1. mars 2015 taka gildi nýjar reglur Matvælastofnunar um útgáfu heilbrigðisvottorða með sendingum búfjárafurða til ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Þessum reglum er ætlað að skipuleggja vinnu við eftirlit og útgáfu vottorða. Tilgangur reglnanna er að gera útgáfuna skilvirka og í samræmi við gildandi löggjöf og alþjóðareglur. Reg lur um ú tgáfu heilbrigðisvottorða: 1. Heilbrigðisvottorð skulu gefin út áður en sending fer frá Íslandi. 2. Opinbert eftirlit með sendingu skal framkvæmt af Matvælastofnun áður en vottorð er gefið út. Fyrir hverja sendingu skal útflytjandi fylla út hleðslustaðfestingu og senda ásamt fylgigögnum til héraðsdýralæknis viðeigandi umdæmis. 3. Umsækjandi heilbrigðisvottorðs fyllir út viðeigandi vottorð og sendir rafrænt til Inn- og útflutningsskrifstofu Matvælas to fnuna r á u t f l u t n i n g u r @ m a s t . i s . Afgreiðslutími heilbrigðis- vottorða er á virkum dögum og skal vera að minnsta kosti 24 klukkustundir. Umsóknir sem berast fyrir hádegi kl. 8–12 verða afgreiddar kl. 8–12 daginn eftir. Umsóknir sem koma inn kl. 12–16 verða afgreiddar á tímabilinu kl. 13–16 daginn eftir. Styttri afgreiðslutími er mögulegur fyrir ferskar afurðir. 4. Sendandi (Consignor) í heilbrigðisvottorði skal vera með kennitölu á Íslandi. Aðili með kennitölu á Íslandi getur verið skráður sendandi í heilbrigðisvottorði fyrir hönd erlendra aðila. 5. Umsækjandi fær afhent eitt frumrit af vottorði og eitt afrit. Eitt afrit er geymt hjá Matvælastofnun. Hægt er að óska eftir fleiri afritum/ skönnuðum afritum gegn sérstöku gjaldi. 6. Tilbúin vottorð verða sett í móttöku á skrifstofu inn- og útflutnings að Stórhöfða 23 í Reykjavík, þar sem hægt verður að nálgast þau eða fá þau send í almennum pósti samkvæmt beiðni. 7. Kostnaður vegna ofangreinds, þar með talið eftirlit með hleðslu sendingar og útgáfa vottorðs, greiðist af útflytjanda. /VH Fréttir Skýrsla starfshóps um tollamál á sviði landbúnaðar: Innflutningur frá löndum ESB hefur stóraukist − samanburður Hagstofu á innflutningi við innanlandsneyslu talinn óréttmætur Í skýrslu starfshóps atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um tollamál kemur fram að innflutningur á landbúnaðarvörum frá Evrópusambandinu hefur farið vaxandi síðustu ár og hlutfallslega meira en samanburður við innanlandsframleiðslu gefur til kynna. Fram kemur í innflutningstölum frá Hagstofu Íslands að innflutningur á kjöti til Íslands er að mestu hreinir vöðvar en ekki kjöt í hálfum eða heilum skrokkum. Framleiðsla og neysla innanlands er hins vegar gefin upp í heilum og hálfum skrokkum með beini. Samanburður á innflutningstölum einum og sér við innanlandsneyslu er því ekki réttmætur. Á þetta sjónarmið er fallist í skýrslunni og innflutt magn umreiknað í kjöt í heilum og hálfum skrokkum með meðaltals nýtingarhlutfalli. Þessar niðurstöður eru settar fram í töflu 12 í skýrslunni og má þar sjá að árið 2013 nam innflutningur á alifuglakjöti 15,4% af neyslu, nautakjöts 9,8% af neyslu og 11,9% af neyslu svínakjöts var innflutt kjöt. Helmings aukning milli ára Af innflutningstölum ársins 2014 að dæma stefnir í að þetta hlutfall verði enn hærra. Fyrstu 11 mánuði ársins 2014 var kjötinnflutningur 52% meiri en allt árið 2013. Starfshópurinn sem skýrsluna vann var skipaður af atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra í byrjun mars 2014 til að fara yfir tollamál á sviði landbúnaðar. Tollverndin var skoðuð í alþjóðlegu samhengi og fjallar fyrri hluti skýrslunnar um alla viðskiptasamninga Íslands og annarra ríkja og tengjast landbúnaðarvörum. Þar er einnig fjallað um markaðsaðgang til og frá Íslandi, hvernig aðgangur erlendra ríkja er að markaði hér á landi og hvað Íslendingar eru að fá á móti. Ítarleg umfjöllun um tollasamning Ítarlega er fjallað um samning Íslands og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO), eðli hans og hvernig tollkvótarnir voru ákveðnir upphaflega og þróun þeirra. Verðmæti útflutnings hefur dregist saman Af öðrum viðskiptasamningum er samningur Íslands og ESB á grundvelli 19. gr. EES-samningsins sá sem veitir mestan markaðsaðgang fyrir óunnar landbúnaðarvörur. Samningurinn tók gildi 1. mars 2007 og er m.a. ætlað að leiða til fjölbreyttara vöruframboðs og skapa ný sóknarfæri til útflutnings. Í skýrslunni segir um þetta: „Ekki hefur farið fram sérstök athugun á framangreindum atriðum en ljóst er að innflutningur frá Evrópusambandinu hefur farið vaxandi síðustu ár en verðmæti útfluttra landbúnaðarvara hefur heldur dregist saman á meðan magn hefur aukist í tonnum talið, sbr. töflur um inn- og útflutning í 5. kafla þessarar skýrslu. Í þessu sambandi kann að þurfa að bæta markaðsaðgang Íslands til ESB, einkum á unnum landbúnaðarvörum. Stefna Íslands hefur verið að lækka tolla á innfluttum búvörum eða veita aukinn markaðsaðgang gegn bættum markaðsaðgangi fyrir innlendar búvörur á erlendum mörkuðum með gerð viðskiptasamninga. Þó eru í lögum heimildir til að veita svokallaða opna tollkvóta þegar innlent framboð uppfyllir ekki eftirspurn. Innflutningur á kjöti Í skýrslunni er gerð tilraun til að fjalla um tollvernd í víðum skilningi þess orðs, þ.e. með tilliti til útboðskostnaðar (kvótaverð), á nautakjöti, svínakjöti, alifuglakjöti, reyktu og söltuðu kjöti, ostum og unnum kjötvörum. Síðan segir í skýrslunni: „Þessir vöruflokkar eru valdir til útreiknings í ljósi þess að þeir bera nokkuð hærri tolla samanborið við margar aðrar landbúnaðarafurðir og ekki síður af þeirri ástæðu að útboð tollkvótanna er fremur aðferðarfræði í þeim tilgangi að úthluta takmörkuðum gæðum (kvótum). Það skal undirstrikað að hér er um að ræða nálgun til að mæla hversu hátt hlutfall tollvernd er af heildarverði innflutnings, þ.e.a.s. hversu hátt hlutfall kostnaðar vegna tolla og útboða á tollkvótum er af heildarverði vöru þegar búið er að leysa hana úr tolli.“ Verð sem innflytjendur greiða fyrir tollkvóta rennur sem tekjur til ríkissjóðs og leggst að sama skapi ofan á vöruverð. En um þetta segir nánar í skýrslunni: „Jafnframt er nauðsynlegt að hafa í huga að með lækkun heimsmarkaðsverðs má ætla að eftirspurn aukist eftir tollkvótum sem jafnframt hækkar kvótaverð og þ.a.l. útreikning á hlutfalli tollverndar.“ /VH Hlutverk starfshópsins var: • Að gera grein fyrir helstu núgildandi samningum um viðskipti með landbúnaðarvörur, • a) alþjóðlegum samningum (WTO) um viðskipti með land- búnaðarvörur með hliðsjón af tollum • b) tvíhliðasamningum t.d. á grundvelli EES samnings og EFTA samnings o.fl. • c) gildandi fríverslunarsamningum • Að greina þau sóknarfæri sem kunna að vera til staðar í ofan- greindum samningum. • Athugaðir verði möguleikar á gerð tvíhliða samninga við ný lönd og ríkjasambönd. • Að gera úttekt á þróun tollverndar á helstu landbúnaðarvörum frá 1995. Lífland á nú 75% í eggjabúinu Nesbú ehf. á Vatnsleysuströnd − Fyrirtækið jók hlut sinn í búinu talsvert á síðasta ári Kristinn Björnsson, einn eigenda Líflands, segir að fyrirtækið hafi um skeið átt drjúgan hlut í eggframleiðandanum Nesbú ehf. á Vatnsleysuströnd. „Lífland hefur verið hluthafi í Nesbúinu frá 2010 og átti til að byrja með um 25% hlut. Á síðasta ári jukum við svo hlut okkar ásamt Feier ehf., sem er fjárfestingarfélag í eigu hjónanna Hjörleifs Jakobssonar og Hjördísar Ásberg, sem eiga 25% á móti 75% hlut Líflands.“ Eggjavinnsla á Vatnsleysuströnd „Reksturinn á Nesbúinu er góður og þegar fyrri eigendur ákváðu að selja stækkaði Lífland sinn hlut. Nesbúið rekur einnig eggjavinnslu og er í dag að vinna ýmsar afurðir úr eggjum fyrir almenna neytendur og hótel í vinnsluhúsi í Vogum á Vatnsleysuströnd.“ Margir sem vilja egg í morgunmat „Hingað til lands koma í heimsókn um milljón manns á ári og drjúgur hluti þeirra vill fá egg í morgunmat. Í mínum huga er enginn vafi á að það liggja miklir möguleikar í íslenskum landbúnaði og gæðum hans.“ Kjarnastarfsemin er fóðurframleiðsla Kristinn segir að þrátt fyrir að Lífland eigi hlut í Nesbúinu líti hann fyrst og fremst á fyrirtækið sem þjónustufyrirtæki við bændur og hestamenn. „Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík og satt best að segja erum við stoltir af þeirri starfsemi og eigum fullt í fangi með að sinna henni með þeim hætti sem við viljum,“ segir Kristinn Björnsson, stjórnarformaður í Líflandi ehf. /VH Í tilefni af umfjöllun um hugsanlega sameiningu Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólans á Bifröst og Hólaskóla – Háskólans á Hólum hefur menntamálaráðuneytið sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu. Mennta- og menningar mála- ráðuneytið vinnur að stefnumótun um háskóla og vísindastarfsemi og hugsanlega verða á grundvelli hennar mótaðar tillögur um breytingar á háskólakerfinu á Íslandi með áherslu á öfluga, framsækna og samþætta háskólastarfsemi, aukin gæði og bætta nýtingu fjármuna. Ráðherra telur nauðsynlegt að kanna vel hvort með auknu samstarfi, samrekstri eða sameiningu megi efla rannsókna- og kennslustarfsemi þessara háskólastofnana og þar með efla eða styrkja þær byggðir þar sem þessar stofnanir eru staðsettar. Skýrslur og greiningar til grundvallar Margvíslegar úttektir og skýrslur frá liðnum árum ásamt ítarlegum greiningum er meðal þess sem lagt er til grundvallar. Má þar nefna skilagrein nefndar menntamálaráðherra um fýsileika sameiningar Háskóla Íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands frá 2009, úttektarskýrslur og ábendingar Ríkisendurskoðunar, úttektarskýrslur Gæðaráðs háskólastigsins, ábendingar frá fjárlaganefnd Alþingis um málefni háskólanna, tillögugerð hagræðingarnefndar ríkisstjórnarinnar, stefnumótun og áherslur Vísinda- og tækniráðs auk ýmissa úttekta erlendra sérfræðingahópa. Greina má tiltekinn samhljóm og skilaboð í þessum gögnum þegar kemur að skipulagi háskólakerfisins hér á landi, sem mikilvægt er að tekið verði tillit til við stefnumótun til framtíðar. Sterkar og samkeppnishæfar einingar Í nágrannalöndunum hefur verið gripið til markvissra aðgerða til að skapa sterkari og samkeppnishæfari einingar. Miklar og vaxandi kröfur eru gerðar til háskólaumhverfisins, sem fela í sér miklar áskoranir, einkum fyrir fámennar stofnanir. Að mati Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, var nauðsynlegt að ráðast í þessa úttekt til þess að fá mat á stöðu háskólakerfisins, hægt væri að setja það í alþjóðlegt samhengi, meta þróunina sem hefur verið á síðustu áratugum og meta þá stöðu sem íslenskir háskólar eru í núna hvað varðar fjármagn, gæði kennslu og fleira. Hluti af þessari vinnu er einnig að athuga stöðu minni skólanna og hvaða möguleikar eru á að efla þá. /VH Staða háskóla og umræður um sameiningu þeirra: Unnið að stefnumótun háskóla og vísindastarfs

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.