Bændablaðið - 29.01.2015, Blaðsíða 11

Bændablaðið - 29.01.2015, Blaðsíða 11
11Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015 Nánari upplýsingar: lagnadeild@byko.is, sími 515-4040. LAGNAVERSLUN w w w .v er t.i s / VE RT m ar ka ðs st of a Vnr. 29500913-25 SABIANA Helios hitablásarar, 7-40 kW. Sabiana hitablásarar eru með sterkt stál element sem þolir hitaveituvatn. Gæði á góðu verði HRINGRÁSARDÆLUR Eigum flestar gerðir af hringrásardælum á lager Bændablaðið Kemur næst út 12. febrúar Smáauglýsingar 56-30-300 Pólskar haughrærur Aflgjafar: 3 fasa rafmótor eða glussarótor. Mótorstærðir: 7,5 KW, 9,2 KW, 11 KW / Glussarótor : 8 KW Sterk og vönduð smíð, burðarvirki úr heitgalf stáli, ryðfrítt stál í þeim hluta sem fer niður í hauginn. Mesta vinnudýpt: 130 cm, vinna í öllum gráðum á hlið. Hrærurnar fara niður um 17 mm eða 23 mm rimla, en einnig er hægt að sérpanta aðra sverleika. Hrærurnar eru komnar í notkun hér heima og hafa reynst vonum framar. Afgreiðslutími: 4 til 6 vikur, mjög hagstætt verð. Hákonarson ehf. s. 892-4163, netfang: hak@hak.is vefslóð: www.hak.is Mýrdalshreppur: Óánægja með vetrarþjónustu „Við erum að krefjast þess að farið sé að þessum reglum og leiðin frá Hvolsvelli til Víkur strax færð í þjónustuflokk tvö, sem er sá þjónustuflokkur sem við eigum að vera í samkvæmt reglum Vegagerðarinnar miðað við umferðarþunga,“ segir Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri Mýrdalshrepps. „Þjónustuflokkur tvö er fyrir svæði sem eru með VDU (vetrardagsumferð yfir 500 bíla á sólarhring), en erum sett í þjónustuflokk þrjú, það er talsverður munur á þjónustu þessara flokka bæði hvað varðar mokstur, en þó er mestur munur á hálkuvörnum,“ segir Ásgeir, en sveitarstjórn gerði harðorða bókun um þessi mál. Hann segir að staðan sé þannig í dag að þjónustuflokkur tvö nær bara til Landeyjarhafnar. Ástandið í síðustu viku hafi verið þannig að ökumenn aki á auðum vegi allt austur að Þorvaldseyri en þaðan til Víkur er fljúgandi hálka og engin hálkuvörn nema í bröttustu brekkunum. „Það er mikil og almenn óánægja með þessa þjónustu og bílar eru stöðugt að lenda í vandræðum vegna hálku,“ bætir Ásgeir við. „Þetta er í skoðun hjá okkur og ákvörðunar að vænta fljótlega, það er ljóst að það fylgir því talsverður viðbótarkostnaður að hækka þjónustustigið,“ segir Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Suðursvæði, þegar leitað var viðbragða hans við málinu. /MHH

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.