Bændablaðið - 29.01.2015, Side 6

Bændablaðið - 29.01.2015, Side 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015 Málgagn bænda og landsbyggðar Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 7.500 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.750. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 – Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Auglýsingastjóri: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Sími: 563 0303 – Frágangur fyrir prentun: Prentsnið. Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621 LEIÐARINN Aldrei verður of oft tönglast á því hversu heppin við erum að búa í þessu landi. Hér eru náttúruauðlindir sem margir öfunda okkur af og allt til staðar svo tryggja megi fæðuöryggi þjóðarinnar. Þrátt fyrir öll þau gæði sem landið býður upp á þá heyrist samt endalaus bölmóður fólks sem telur að allt sé betra í útlöndum. Þetta fólk sér engan tilgang í að halda uppi landbúnaðarframleiðslu á Íslandi, eða að skynsemi geti verið fólgin í því að halda uppi byggð víða um land. Allt skal setja í reiknilíkan hámarks arðsemi þar sem menning og mannlíf skiptir engu máli. Þetta fólk gleymir þá um leið að án lifandi mannlífs og byggðar víða um land er tómt mál að tala um áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu. Það gleymir því líka að þéttbýlið eins og við Faxaflóa mun aldrei geta þrifist án jaðarbyggða. Um leið og þær hrynja fer fljótt að saxast á innviði þéttbýlisins sem byggja m.a. á að þjónusta dreifbýlið. Það mun síðan augljóslega fljótt leiða til fólksflótta þéttbýlisbúa úr landi. Slík þróun er vel þekkt fyrirbæri bæði hér á landi og í útlöndum. Annar angi af þessu lýsir sér í yfirgangi og frekju ofdekraðra minnihlutahópa. Þannig reyndi einn slíkur að knýja þjóðina inn í ríkjasamsteypu Evrópusambandsins með valdi. Það átti að gera án þess að nokkrum í þessum „lýðræðiselskandi“ hópi dytti í hug að spyrja þjóðina fyrst um hvort hún vildi ganga í þennan klúbb. Í dag býr ESB við mikla óvissu ekki síst varðandi gjaldmiðil sinn, evruna, sem hríðfellur um þessar mundir. Samt heggur þessi hópur í sama knérunn. Athyglisvert var að heyra Lars Christensen, yfirmann grein- ingardeildar Danske bank, á fundi sem Íslandsbanki stóð fyrir í Hörpu á miðvikudagsmorgun. Ekki styðja hans orð þá ráðagjörð að spyrða Ísland saman við efnahagsblokk ESB, − þvert á móti. Lars benti á að íslenska hagkerfið væri í eðli sínu ekkert líkt því evrópska, heldur líkara því sem gerist í Noregi, Kanada og á Nýja- Sjálandi. Því mætti segja að út af efnahagslegum ástæðum væri ekki heppilegt fyrir Íslendinga að tengja krónuna við evru. Nær væri að tengja hana við kanadískan eða nýsjálenskan dollar. Ein leið væri líka að taka hreinlega upp aðra hvora þessara mynta á Íslandi. Þannig talaði bankamaður sem gjörþekkir efnahagsveruleikann í ESB-landinu Danmörku. /HKr. LOKAORÐIN Aftur að tollum Nýkomin er út skýrsla atvinnuvegaráðuneytisins um tollvernd á landbúnaðarvörum, þróun hennar og möguleg sóknarfæri erlendis. Í skýrslunni er greinargott yfirlit yfir milliríkjasamninga Íslands og hvernig álagningu tolla á innfluttar búvörur er háttað. Þar getur munað miklu á milli þess sem heimilt er að leggja á og þess sem raunverulega er gert. Segja má að Ísland sé langt frá því að fullnýta álagningarheimildir í samningum Alþjóða viðskiptastofnunarinnar (WTO). Í skýrslunni kemur líka fram að við flytjum mun meira inn af landbúnaðarvörum en við flytjum út. Árið 2013 nam verðmæti innflutningsins nærri 52 milljörðum króna, sem er aukning um 10 milljarða frá 2010. Útflutningur búvara á sama tíma var 8 milljarðar, sem er aukning um einn milljarð frá 2010. Af því leiðir að vöruskiptajöfnuður okkar á landbúnaðarvörum var neikvæður um 44 milljarða árið 2013. Fyrir því þarf að afla gjaldeyris annars staðar frá. Viðskiptasamningar Íslands sem fjalla eitthvað um búvöruviðskipti eru fjölmargir. Þar er meðal annars áðurnefndur samningur við WTO, tvíhliða samningur við ESB og annar tengdur 19. gr. EES-samningsins, samningur vegna aðildar að EFTA, fríverslunarsamningar við 35 ríki sem EFTA hefur gert og sérstakir tvíhliða samningar Íslands svo sem við Noreg, Færeyjar og Kína. Ekki lokaður markaður Oft er látið að því liggja að innflutningur búvara sé hér að mestu bannaður. Helst að einstöku sinnum sé leyft að flytja inn eitthvert smáræði, en þá undantekningalaust á ofurtollum. En 52 milljarðar eru ekki smáræði. Markaðurinn er ekki lokaðri en svo að innflutningur á kjöti, sem nýtur tollverndar, hefur vaxið stórlega frá 2010. Markaðshlutdeild innflutts kjöts er orðin á bilinu 10–15% í kjúklinga-, svína- og nautakjöti. Reynt er í skýrslunni að leggja mat á umfang tollverndar, að meðtöldum gjöldum sem innflytjendur greiða fyrir tollkvóta, þegar þeir eru boðnir út. Niðurstaðan er að hún sé á bilinu 18–50% af innkaupsverði vörunnar erlendis að viðbættum flutningskostnaði (CIF verð) og greiðslum fyrir tollkvóta. Hlutfallið af endanlegu söluverði er lægra þar sem við þetta verð á eftir að bæta heildsölu- og smásöluálagningu og virðisaukaskatti, en þeir þættir leggjast auðvitað líka á innlenda framleiðslu. Stuðningsaðgerðir algengar um allan heim Í skýrslunni er gerð ágæt grein fyrir hug mynda- fræðinni að baki tollvernd sem ástæða er til að endurtaka hér: „Í mörgum ríkjum eru lagðir á tollar til að jafna samkeppnisstöðu búvara gagnvart innflutningi. Skilyrði til framleiðslu landbúnaðarvara geta verið mjög mismunandi eftir löndum sem helgast m.a. af legu þeirra og náttúrulegum aðstæðum, sem og ýmsum efnaghagslegum skilyrðum. Til að jafna þennan mun hafa stjórnvöld einkum mætt þessu með tvennum hætti, þ.e. tollvernd og beinum stuðningi við framleiðendur. Slíkar stuðningsaðgerðir stjórnvalda eru sem fyrr segir algengar um heim allan og er landbúnaður án allra afskipta stjórnvalda vandfundinn. Stuðningur við landbúnað er mismikill og er oft meiri í löndum þar sem skilyrði til landbúnaðar eru lakari vegna veðurfars eða landfræðilegra aðstæðna. Auk þess eru ýmsar aðrar ástæður sem geta valdið því að framleiðendur geta illa keppt við erlenda samkeppni sérstaklega þegar kemur að framleiðslukostnaði. Algengt er að stjórnvöld veiti þá stuðning með það að markmiði að vernda fæðuöryggi og störf, en aðrar ástæður geta legið að baki t.d. verndun ákveðinna landsvæða og vara.“ Það sem hins vegar er ekki í skýrslunni er mat á þýðingu tollverndarinnar fyrir íslenskan landbúnað. Hún hefur veruleg áhrif á hvaða afurðir bændur eru tilbúnir að framleiða og þar af leiðandi á kjör þeirra í heild. Ekki er gerð tilraun til að áætla hvaða áhrif afnám hennar hefði. Það er miður, því full þörf er á að skoða þessa hagsmuni í heild. Hvað erum við að tala um mörg störf tengd framleiðslu sem nýtur tollverndar? Hvaða áhrif erum við að tala um á byggðir landsins? Hvað þýðir þetta mikla gjaldeyrisþörf til viðbótar? Og síðast en ekki síst: Getum við til dæmis nýtt hana betur til að byggja upp fjölþættari innlenda framleiðslu? Hvað getum við gert til að svara aukinni eftirspurn eftir nautakjöti og svínakjöti? Er tollverndin í dag líkleg til að stuðla að því að íslenskir bændur bregðist við aukinni eftirspurn og hafi jafnframt eðlilegt endurgjald fyrir vinnu sína? Hefur það verið skoðað í alvöru? Ekki gera ekki neitt auglýsir stærsta innheimtufyrirtæki landsins og það á vel við hér. Auðvitað er eðlilegt að röksemdir fyrir tollverndinni hverju sinni séu ljósar – hvað erum við að vernda og til hvers? En við getum líka spurt okkur að því hvort ekki sé þörf á að fara vel yfir þennan hluta landbúnaðarstefnunnar, setja þar skýrari stefnu, markmið og meta hvernig þeim verði best náð. Tollverndin á einfaldlega að vera hluti af skilgreindu starfsumhverfi landbúnaðarins og þar af leiðandi hluti af samningum þar um. Með því er alls ekki sjálfgefið að halda eigi áfram á þeirri braut að grafa undan tollverndinni og rýra verðgildi hennar – eins og einnig má lesa um í skýrslunni. Að veifa fremur röngu tré en öngu Sumir kjósa að nýta rangtúlkanir til að þjóna einhverjum málstað. Fyrir skömmu fréttu Bændasamtökin af því að Viðskiptaráð Íslands væri að láta gera könnun þar sem m.a. væri spurt um hvort að svarendum þætti rétt að Bændasamtökin fengju rekstrarstyrk á fjárlögum. Og í niðurstöðum könnunarinnar kom fram að meirihluti svarenda var mótfallinn því. Þetta væri eðlileg spurning ef Bændasamtökin fengju slíkan styrk. Það er alrangt eins og oft hefur verið leiðrétt. Til að freista þess að leiðrétta það enn einu sinni, hafði ég samband við framkvæmdaaðila könnunarinnar og benti á að þarna væri verið að spyrja um hlut sem ætti sér ekki stað. Svarið var að þetta væri að vilja kaupanda könnunnarinnar og eins mætti alveg skilja spurninguna sem svo að hún snerist um hvort Bændasamtökin ættu að fara að fá styrk á fjárlögum þó það væri ekki þannig nú! Þeir sem vinna svona eru svo sannarlega tilbúnir að veifa frekar röngu tré en öngu. /SSS Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur samþykkt að selja Seljalandsskóla undir Eyjafjöllum og íbúðarhús honum tengdum. „Ástæðan er að þessi mannvirki hafa ekki verið notuð í áraraðir og við viljum gjarnan koma lífi í þau á ný. Í hluta húsnæðisins gerðum við tilraun með dagvistun – sem gekk því miður ekki upp – en að öðru leyti hefur húsnæðið staðið autt. Talsvert hefur verið spurt um það – við erum búin að kaupa hlut ríkisins í þessum húsum. Eftir er að afmarka lóðir. Samþykkt hefur verið að söluhagnaður af húsunum renni til áframhaldandi uppbyggingar á Hjúkrunar- og dvalar- heim ilinu Kirkjuhvoli,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri. Húsin sem tengjast skólanum eru parhús með bílskúrum. Í þeim er búið í dag. /MHH Ekki evru! Rangárþing eystra: Seljalandsskóli undir Eyjafjöllum seldur Hreinn Óskarsson, skógfræðingur á Odda á Rangárvöllum, áttti fallega mynd af sauðfé og norðurljósunum sem birtist á forsíðu síðasta Bændablaðs. Hér er önnur mynd frá Hreini og ekki síðri með ekta sveitastemningu og dráttarvél í forgrunni. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.