Bændablaðið - 29.01.2015, Síða 35

Bændablaðið - 29.01.2015, Síða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015 RAFSTÖÐVAR Eigum á lager úrval rafstöðva í stærðum 0.9 kW – 5.4 kW Honda – Yanmar – Hatz benzín/diesel mótorarar Eins og þriggja fasa rafalar Úrval stærri rafstöðva frá EUROPOWER í mörgum útfærslum. Úrval rafstöðva frá EUROPOWER fyrir aflúrtak dráttarvéla. ÞÓR HF Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Vor 3 21. apríl - 3. maí Sardinía & Korsíka Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Glæsileg eyjaferð til Sardiníu og Korsíku, þar sem við ferðumst um stórbrotna náttúru með mikilli gróðursæld milli lítilla krúttlegra þorpa. Gullinn sandur, sægrænt haf og ilmur frá Macchia gróðri rammar inn ótrúlega upplifun um þessar fögru eyjar. Verð: 298.100 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Sp ör e hf . Fararstjóri: Þóra Valsteinsdóttir Umfjöllun Bændablaðsins um ódýra virkjanakosti og lágtæknivirkjanir í október 2013 vakti mikla athygli og eru enn að berast fyrirspurnir vegna þess. Þar var m.a. fjallað um lágtækni eins og bátamyllur og allt upp í nýjustu tækni hvað varðar kjarnasamrunaorku. Erlendis er umræðan stöðugt í gangi og áhugi jarðeigenda sem aðgengi hafa að vatni greinilega mikill á að verða sjálfbærir í orkumálum. Landrými er þó víðast hvar að þrengjast sem takmarkar möguleika fólks á að virkja. Sennilega er Ísland þó enn best sett hvað þetta varðar af öllum löndum Evrópu. Virkjun vatnsafls er ekki alltaf umhverfisvæn Á undanförnum árum hefur verið nokkur vakning í þá átt að leita leiða til að búa til minni vatnsaflsvirkjanir en oftast hafa verið á stefnuskrám ríkja heimsins. Þar er fyrst og fremst verið að líta til neikvæðra umhverfislegra þátta sem stórvirkjanir óneitanlega hafa. Í Bandaríkjunum er bent á gríðarleg orkumannvirki í því sambandi eins og Hoover Dam, Niagara Power Plant og fleiri slíkar sem valdið hafa gríðarlegum umhverfisáhrifum. Þótt orka þessara virkjana sé sögð umhverfisvæn, er það ekki alveg sannleikanum samkvæmt. Stór orkumannvirki breyta oft flæði vatns á stórum landsvæðum með tilheyrandi áhrifum á gróður, dýralíf og mannlíf. Því hafa umhverfisverndarsamtök á borð við Green Energy Ohio (GEO) og fleiri tekið upp baráttu fyrir því að virkjað verði í minni skala og byggðar virkjanir sem eru minni en 30 megawött. Samkvæmt þeirra hugmyndum geta einungis slíkar „smávirkjanir“ talist skila umhverfisvænni orku. Smávirkjanir umhverfisvottaðar Í Bandaríkjunum er starfandi stofnun sem rekin er án gróðasjónarmiða sem gefur út umhverfisvottorð fyrir smávirkjanir. Þessi stofnun heitir Low Impact Hydropower Institute (LIHI). Til að standast skilyrði þessarar stofnunar eru metin átta atriði er tengjast áhrifum virkjunar á umhverfisþætti. Það er áhrif á flæði vatns, vatnsgæði, hindrun fiskgengdar, vatnssóun, hvort það skapi áhættu fyrir viðgang dýrategunda, menningarleg áhrif, afturkræfni og leiðbeiningar um hvaða aðstöðu þurfi að fjarlægja. Er þessi stofnun einnig búin að gera úttektir á og gefa út vottanir fyrir fjölda smávirkjana í Kanada. Þessu tengist aukinn áhugi víða um heim á lágkostnaðar míkróvirkjunum sem skila kannski frá einni kílówattstund (1 kWh) upp í 30 kílówattstundir. Benda samtökin GEO á að slíkar virkjanir gætu víða hentað, einkum til sveita, því meðal heimili í Bandaríkjunum noti ekki nema 10–15 kílówattstundir á dag. Þá gæti víðari hugsun á nýtingu á straumflæði vatns gert slíka orkunýtingu mun víðtækari. Straumvatnssvirkjanir Virkjun hægstreymandi straumvatns í ám og í sjó, án þess að beita stíflumannvirkjum, hefur verið þekkt fyrirbæri og mikið nýtt víða um lönd í mörg hundruð og jafnvel þúsundir ára. Því er virkjun slíks afls alls ekki langsótt og víða vel framkvæmanleg. Fjöldi skýrslna hefur verið gerður og mikil þróun hefur verið í gerð margvíslegs búnaðar fyrir ódýrar vatnsaflsvirkjanir eða svokallaðar Low Cost Micro-Hydroelectric Power Generation. Eina slíka skýrslu eftir Sivasakthy Selvakumaran má t.d. finna á netinu á vefslóðinni: http://www.ewb-uk.org/filestore/ FINAL%20REPORT_Sakthy%20 Selvakumaran.pdf. Skýrsluna setur hann m.a. fram í þeim tilgangi að hún geti orðið öðrum leiðarvísir við hönnun og smíði smávirkjana. Skoðar hann þar fjölmörg mannvirki og dregur upp myndir af hvað menn hafi gert rétt og rangt. /HKr. Vaxandi áhugi fyrir smávirkjunum Það þarf ekki alltaf Stefán Rögnvaldsson á Leifsstöðum fékk Þorsteinshrútinn Þorsteinshrúturinn er veittur þeim sem á besta veturgamla hrútinn í Norður-Þingeyjasýslu ár hvert. Afhending verðlaunanna fór fram 21. nóvember síðastliðinn. Að þessu sinni var það Stefán Rögnvaldsson á Leifsstöðum sem hlaut verðlaunin fyrir hrútinn Lása. Nýjar reglur tóku gildi á síðasta ári. Það voru reiknuð stig fyrir 62 veturgamla hrúta þetta árið. Í fyrsta sæti er Lási 13-175 á Leifsstöðum en hann hlaut 85 stig. Lási er undan Hvít 10-786 á Leifsstöðum og Yrstu 06-706, Lásadóttur 02-944. Lási átti 23 sláturlömb, fallþungi þeirra var 17,8 kg, einu kílói yfir búsmeðaltali. Gerðarmat þeirra var 10,35 og fitumat 7,09. Kynbótamat Lása er 107 fyrir fitu, 112 fyrir gerð, 113 fyrir mjólkurlagni og 110 fyrir frjósemi. Næstur að stigum kom Lúði 13-101 í Hafrafellstungu sem er einnig undan Hvít 10-786 frá Leifsstöðum.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.