Bændablaðið - 13.08.2015, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 13.08.2015, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015 Ár jarðvegsins: Eignarhald á landi og umfang gróður- og jarðvegseyðingar á miðöldum Skrúfupressur og stimpilpressur Lofthreinsibúnaður Loftkútar - Loftsíur Lofttengibúnaður Loftþurrkarar Ýmsar stærðir og gerðir Einstaklega hljóðlátar Þýsk gæði Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Hress og skemmtileg fjölskylda óskar eftir að komast að í sveit Leiga kemur til greina með möguleika á kaupum seinna meir sem og flutningur í sveit þar sem fjölskyldan mun leggja sitt af mörkum með möguleika á að kaupa og taka við rekstri sem einhver kraftmikill bóndi hefur byggt upp. Undanfarin ár hefur fjölskyldufaðirinn og -móðirin gengið menntaveginn með það að markmiði að byggja vel í haginn fyrir framtíðina. Hannes er með sveins- og meistarabréf í rafvirkjun. Hann hefur einnig lokið iðnfræði námi við HR og stundar nú nám á öðru ári í búfræði við LBHÍ. Anna er með sveinsbréf í hársnyrtiiðn, ásamt því hefur hún lokið B.Ed gráðu í kennarafræðum við HA og áætlar að ljúka meistaraprófsnámi í menntunarfræðum um áramótin n.k. og útskrifast þá sem grunnskólakennari. Saman eiga þau tvo kraftmikla unga drengi. Vinsamlegast hafið samband ef þið getið aðstoðað okkur við að láta draum okkar verða að veruleika. Við erum með topp meðmæli úr öllum áttum og leggjum okkur 100% fram við allt sem við tökum okkur fyrir hendur. Netfang: hannes-bjarki@hotmail.com Sími: 895-4673 Kristni var lögtekin á Íslandi árið 1000 og kaþólsk trú var við líði fram að siðaskiptum árið 1550. Tals verðar breytingar urðu á eign ar haldi á landi í kjölfar kristnitökunnar með þeim hætti að jarðir færðust frá bændum í hendur klaustra og biskupsstóla. Egill Erlendsson landfræðingur og lektor við Háskóla Íslands hélt í sumar erindi sem hann kallaði „Var þeim sama um moldina“ og fjallaði um breytingar á eignarhaldi á landi og umfang gróður- og jarðvegs- eyðingar á miðöldum. Í erindinu velti Egill fyrir sér hvort yfirfærsla á eignarhaldi á landi frá bændum til klaustra hafi verið ein af ástæðunum fyrir aukinni gróð- ur- og jarðvegseyðingu sem hófst skömmu eftir að kristni var lögtekin. „Eignaskrár klaustra og biskups- stóla sýna að þær stofnanir eignast tals vert af jörðum fljótlega eftir að kristni er tekin upp eða í kringum 1100 og fram að siðaskiptum. Með eignatilfærslunni urðu marg ir sjálfseignarbændur að leigu lið um. Spurningin er sú hvort eignar halds breyting af þessu tagi hafi haft áhrif á viðhorf bændanna til landsins og þeir hafi einfaldlega hætt að hugsa eins vel um það. Í stað þess að vera metnaðarfull- ir sjálfseignabændur hverra börn erfðu landið voru þeir leiguliðar klaustranna og ekkert endi lega að leggja á sig mikla vinnu til jarðar- bóta. Margir hafa því eflaust reynt að komast sem einfaldast í gegn um lífíð og vinna sem minnst þar sem aukin vinna var ólíkleg til að bæta hag þeirra.“ Aukin sauðfjárbúskapur „Sauðfjárrækt með vetrarbeit er mun auðveldari búskapur en að vera með nautgripi enda minna fyrir sauðfénu haft.“ Fornleifarannsóknir sýna að frá árinu 1000 til 1300 eykst hlutfall sauðfjárbeina í öskuhaugum við bæi en nautgripabeinum fækkar og sýnir svo ekki verður um villst að hlutur sauðfjár eykst á móti nautgripum. Án þess að fullyrða að það séu bein tengsl milli breytinga á eignar- haldi jarða og aukins sauðfjárhalds er áhuga vert að velta tengslunum fyrir sér,“ segir Egill. Þegar Egill er spurður hvort breyt ingin geti ekki stafað af kóln- andi veðurfari eftir landnám segir hann það geti að sjálfsögðu haft sitt að segja. „Flest bendir til að kólnun- in hafi byrjað í kringum 1250 og því nokkru síðar en aukningin í sauð fjár- haldi hófst.“ Hnignun skóga og jarðvegseyðing „Rannsóknir á gróðurbreytingum og gróðureyðingu sýna að fyrsta stór- fellda breytingin verður við land- nám. Það er í sjálfu sér skiljanlegt í kjölfar þess að landnámsmenn eru að koma sér fyrir og hefja búskap, skapa sér búsetuskilyrði og hefja land búnað. Hnignunin virðist síðan ná nokkru jafnvægi en á árabilinu milli 1150 og 1200 virðist hún aukast á nýjan leik. Upp frá þessum tíma verður hörfun skóganna hraðari og í kjölfarið herðist á jarðvegs rofinu þegar svörðurinn situr óvarinn eftir. Sem dæmi má nefna að frá u.þ.b. 1200 til 1500 hverfa skógar og kjarr úr Mosfellsdal og svipað má lesa úr gögnum frá Mývatnssveit og Borgarfirði. Þannig að breyting á eignarhaldi jarða og fjölgun sauðfjár getur alla- vega verið einn hluti skýringarinn- ar fyrir aukinni jarðvegseyðingu á miðöldum.“ Leiga borguð í osti „Annað sem tengir aukningu í sauð- fjárhaldi við klaustrin er að íslensk klaust ur borguðu gjald til biskupsins í Niðarósi í osti og hann gjald til Róm ar. Leiguliðar klaustr anna borg- uðu því að hluta til leiguna í osti og það getur hafa ýtt undir aukna sauð- fjárrækt í landinu til að framleið ost. Sauðfé var kannski tryggari bústofn til að standa undir gjaldheimtunni Ég hef reyndar ekki skoðað þessa hlið málsins nógu vel til að vita hversu mikið af leigunni var greitt í osti en mér skilst að það hafi verið talsvert og það er áhugaverður vinkill.“ Klaustrin sett upp í pólitískum tilgangi Egill segir að þrátt fyrir að klaustrin á Íslandi hafi oft verið talin lítil og ómerkileg hafi þau verið stofnsett í pólitískum tilgangi. Eignasöfnun klaustranna og biskupsstólanna sýnir að tilvera þeirra skipti máli og rökrétt að álykta að þau hafi haft töluverð áhrif á samfélagslega þróun á fyrstu öldum byggðar í landinu. „Klaustur víða í Evrópu voru miðstöðvar umbóta, meðal annars í landbúnaði, og spurning hvort yfir menn kaþólsku kirkjunnar hafi talið að Ísland hentaði betur til sauð- fjárræktar en nautgriparæktar og beitt áhrifum til að auka hana hér með smjörgjaldinu.“ Að lokum segir Egill að allar þessar vangaveltur séu enn á hug- mynda stigi og ekkert fast í hendi með þær. „Þetta er tilgáta og eins og með allar tilgátur verður að byggja þær upp og prófa áður en hægt er að segja til um niðurstöður með frekari vissu.“ /VH Egill Erlendsson Mynd / VH Ár jarðvegsins. Myndir / Bændablaðið

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.