Bændablaðið - 13.08.2015, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 13.08.2015, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015 Það ríkti hátíðarstemning á Heims- meistaramóti íslenska hestsins sem fór fram í Herning í Danmörku dagana 3. til 9. ágúst. Þar öttu kappi glæsilegir fulltrúar hins ís- lenska gæðings í íþróttakeppni og kynbótasýningum. Íslenska lands- liðið var sigursælt og vann til fjölda verðlauna. Óvæntustu úrslit mótsins voru ef laust sigur Kristínar Lárusdóttur, bónda í Syðri-Fljótum í Vestur- Skaftafellssýslu, og Þokka frá Efstu- Grund, í firnasterkri töltkeppni. Jóhann R. Skúlason hefur unnið grein- ina sex sinnum á síðustu átta mótum, en lét sér nú linda 4. sæti á nýjum keppnishesti Garpi frá Hojgaarden. Fimmti, með sömu lokaeinkunn og Jóhann, varð Sigurbjörn Bárðarson á Jarli frá Mið-Fossum. Kristín og Þokki komu óvænt inn í íslenska landsliðið, tveimur viku m fyrir mót, eftir að Sigurður Sigurðarson ákvað að draga sig úr liðinu. Sigur þeirra var því einkar sætur. Kristín og Þokki voru í 4. sæti fyrir úrslit en sýning þeirra í úrslit- um var sannfærandi. Hlutu þau 8,44 í lokaeinkunn, en Nils Christian Larsen og Viktor frá Diisa frá Noregi, sem urðu í 2. sæti, hlutu 7,94. Þeir Nils Christian og Viktor hlutu einnig silfur í firnasterkum úr slitum fjórgangs en þar hampaði Guðmundur Björgvinsson og Hrímnir frá Ósi sigri, en aðeins skildi að 0,05 stig. Guðmundur og Hrímnir komu efstir inn í úrslit en þeir eiga langan og far- sælan keppnisferil að baki hér heima sem lauk nú með heimsmeistaratitli. Reynir Örn Pálmason og Greifi frá Holtsmúla gengu frá móti með þrenn verðlaun. Þeir urðu heimsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum, en þann titil hlýtur sá keppandi sem reyn- ist vera með hæstu meðaleinkunn úr forkeppni í fimmgangi og slak tauma- tölti. Þeir félagar urðu í 2. sæti beggja flokka. Sigurvegari í fimmgangi varð hin danska Julie Christiansen á Hug frá Flugumýri II og heimsmeistari í slaktaumatölti varð Vignir Jónasson sem keppir fyrir Svíþjóð á Ivan från Hammarby. Svíar áberandi í skeiði Keppt var í þremur skeiðgreinum: 100 metra flug skeiði, 250 metra skeiði og gæðingaskeiði. Svíar voru sigursælir í skeiðgrein- um en Íslendingar áttu þar kraftmikla fulltrúa. Hinn ungi Teitur Árnason og Tumi frá Borgarhóli voru hlutskarp- astir í gæðingaskeiði og skaut Teitur þar sér eldri og reyndari knöpum ref fyrir rass. Þeir Teitur og Tumi bættu svo við bronsverðlaunum í 250 metra skeiði en þar sigraði Guðmundur Einarsson og Sproti frá Sjávarborg, sem keppa fyrir Svíþjóð, á nýju heimsmeti, 21,49 sekúndum. Helmut Bramesfeld frá Þýska- landi á Blöndal vom Stördal urðu svo fljótastir keppenda í 100 metra skeiði, en Íslendingar fengu silfur og brons. Styrmir Árnason var annar á hryssunni Neyslu frá Schloßberg og fyrrum heimsmeistarinn Bergþór Eggertsson á Lotus frá Aldenghoor varð í 3. sæti. Þess má einnig geta að Svíar hömpuðu sigri í 250 og 100 metra skeiði ungmenna. Spennandi keppni ungra knapa Ungir knapar íslenska landsliðsins stóðu sig einnig afar vel á mótinu. Jó hanna Margrét Snorradóttir á Stimpli frá Vatni hlaut silfurverð- laun eftir spennandi úrslit ungmenna í slaktaumatölti. Aðeins munaði 0,04 stigum á henni og sigurvegaranum, hinni þýsku Lucie Maxheimer og Stjörn frá Eifelhaus. Gústaf Ágeir Hinriksson og Geisli frá Svanavatni urðu í 2. sæti í fimmgangi en þeir félagar leiddu úrslitin framan af. Sigurvegari þar var Marvin Heinze frá Þýskalandi á Myrkva frá Quillerhof. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir og Týr frá Skálatjörn hlutu brons í fjórgangi en hún varð fyrir því óláni að Týr steig úr braut í forkeppni slak- tauma tölts, sem var þeirra sterkasta grein. Þau komu því ákveðin til leiks í úrslit og unnu sig upp um þrjú sæti frá forkeppni og enduðu á verðlauna- palli. Sigurvegari fjórgangs ung- menna var Pierre Sandsten Hoyos frá Svíþjóð á Falka frá Karlsro. Heiðraði minningu Einars Andi Einars Öders Magnússonar, reið kennara, sveif yfir Herning þegar gæðingur hans og vinur, Glóðafeykir frá Halakoti, kom fram fyrir hönd Íslands í elsta flokki stóðhesta á kyn- bótasýningu heimsmeistaramótsins. Glóðafeykir stóð þar efstur allra kyn- bótahrossa með 8,74 í aðaleinkunn. Daníel Jónsson sýndi Glóðafeyki sem hlaut 9,02 fyrir kosti, þar af einkunnina 9,5 fyrir tölt, brokk og vilja og geðslag. Glóðafeykir sýndi í fyrsta sinni skeið á kynbótasýn- ingu fyrr á árinu en hann hlaut nú 8 fyrir skeið. Glóðafeykir og Einar Öder sigruðu B-flokk gæðinga á Landsmóti hestamanna árið 2012. Þá sigraði Kengála frá Neðri- Rauðalæk elsta flokk hryssna með einkunnina 8,53. Knapi á Kengálu var Agnar Snorri Stefánsson. Garún frá Árbæ hlaut hæstu aðaleinkunn sex vetra hryssna, 8,62, en knapi henn- ar var Guðmundur Björgvinsson. Andvari frá Auðsholtshjáleigu hlaut hæstu einkuknn fimm vetra stóð- hesta, 8,49. Knapi hans var Árni Björn Pálsson. Ríkey frá Flekkudal var í 2. sæti í flokki 5 vetra hryssna með aðal- einkunnina 8,42. Hæstu aðaleink unn þar hlaut þýska hryssan Hrönn frá Kronshof sem hlaut 8,52. Svaði frá Hólum hlaut næst hæstu einkunn sex vetra stóðhesta, 8,63. Sigurvegari í flokknum var Viking från Österåker frá Svíþjóð með aðaleinkunnina 8,69. Ánægja með framkvæmd mótsins Um 9000 gestir voru viðstaddir Heims meistaramótið í Danmörku. Heimsmeistaramót hefur áður verið haldið á þessu glæsilega keppnisvæði í Herning, en það var árið 2001. Þá var Norðurlandamótið haldið þar í fyrra. Mótið þótti takast með miklum ágætum og vel var staðið að skipu- lagningu þess. Framkvæmd þess var nú í fyrsta sinn samstarfsverkefni allra Norðurlandaþjóðanna og FEIF, alþjóðasamtaka um íslenska hestinn. Keppendur komu fram fyrir hönd 14 þátttökuþjóða, en alls eru 19 þjóð- ir með skráð félög í FEIF. Liðsbikar mótins fór að þessu sinni til Svíþjóðar og er það í fyrsta sinn sem Svíþjóð hlýtur þau eftir- sóttu ver ðlaun. Var það ekki síst að þakka góðu gengi ungra knapa frá Svíþjóð og glæsilegum árangri í skeiði. / Guðrún Hulda Pálsdóttir Fréttir Átta íslenskir heimsmeistarar á Heimsleikum íslenska hestsins Skaftfellskur bóndi, Kristín Lárusdóttir, kom, sá og sigraði Íslenski hópurinn sem tók þátt á Heimsleikum íslenska hestsins í Herning. Mynd / Hallveig Fróðadóttir Söluaðilar buðu sinn varning á móts- staðnum. Það skiptust á skin og skúrir og vissara að vera klæddur eftir veðri. Jón Þorsteinn og Magni skemmtu gest um og gangandi. Samstarf þeirra Guðmundar Björgvinssonar og Hrímnis frá Ósi hefur verið farsælt. Þeir hafa unnið til fjölda verðlauna heima á Íslandi og luku nú ferli sínum saman með heimsmeistaratitli í fjórgangi. Full stúka áhorfenda hyllti Guðmund og Hrímni að lokinni verðlaunaafhendingu. Mynd / Karen Diehn Teitur Árnason og Tumi frá Borgarhóli sigruðu nokkuð óvænt keppni í gæð ingaskeiði. Þeir bættu svo um betur og hlutu brons í 250 metra skeiði. Mynd / Karen Diehn Glóðafeykir frá Halakoti var hæstdæmda kynbótahross mótsins og má segja Mynd / Karen Diehn Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.