Bændablaðið - 13.08.2015, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 13.08.2015, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015 Á brattann að sækja hjá kjötvinnslum og sláturhúsum Óhjákvæmilegt að kanna sameiningar eða samvinnu Forsvarsmenn Bændasamtakanna voru ósáttir við ummæli for- stjóra Haga, Finns Árnasonar, sem hélt því fram í blaðagrein í Frétta blaðinu þann 4. ágúst sl. að Bændasamtökin fengju 500 milljónir króna í opinbera styrki til hagsmunabaráttu. Í tilkynningu sem birt var á vef sam takanna sagði að þessi fullyrðing forstjór- ans væri röng. Bentu samtökin á að í fjárlög um 2015 væri liður sem héti „Búnaðar- lagasamningur“. Fjármunirnir sem þar um ræðir renna meðal annars til ráðgjafarstarfs í landbúnaði, jarða- bóta í sveitum, til Framleiðnisjóðs (sem er þróunar- og nýsköpunar- sjóður landbúnaðarins) búfjárrækt- arstarfs og fleira sem er óskylt rekstri hagsmunabaráttu bænda. Bænda sam- tök in eru frjáls félagasamtök og í bókhaldi þeirra er skilið á milli þeirra fjármuna sem koma frá rík- inu vegna bún aðar lagasamnings og fjármuna sem fara í að reka hagsmunabaráttu bænda. Verkefni í gegnum búnað- ar lagasamning eru lögbundin en samninginn má lesa í heild sinni á vef atvinnuvega- og nýsköpun- arráðuneytisins. Í tilkynningu frá BÍ var bent á það að hagsmunabarátta samtaka bænda væri rekin fyrir tekjur af búnaðargjaldi sem bændur greiða sjálfir. Kjötvinnslur og sláturhús bera sig mörg hver illa eftir taprekstur og erfiða tíð í rekstrinum undan- farið. Norðlenska tapaði tugum milljóna á liðnu ári og eru menn þar á bæ að skoða hvernig best verður brugðist við. Rekstur slát- urhússins á Blönduósi hefur verið þungur og þar á bæ leita menn leiða til að styrkja rekstrargrund- völlinn. Kjötvinnslan Kjarnafæði er talin ætla að auka hlut sinn í SAH-Afurðum en þeir þvertaka fyrir að bjóða aftur í Norðlenska eftir að bændur höfnuðu tilboði þeirra í sumar. Ekki réttlætanlegt að láta hlutina ganga svona áfram „Það er vítavert ef menn taka ekki á málum áður en í óefni er komið. Það er engan veg- inn réttlætanlegt að láta hlutina ganga svona áfram, rekst urinn er ekki viðunandi og okkur ber skylda til að taka á málum áður en illa fer. Við erum að fara yfir stöðuna og skoða ýmsa möguleika,“ segir Aðalsteinn Jónsson varaformaður Norðlenska. Félagið var gert upp með 48 millj- óna króna tapi á liðnu ári sem eru mikil umskipti frá árinu 2013 þegar tæplega 140 milljón króna hagnaður varð af rekstri félagsins. „Það þarf engin geimvísindi til að sjá að þetta gengur ekki upp,“ segir Aðalsteinn. Hann nefnir að laun hafi hækkað töluvert á árunum 2014 og 2015. Aðstæður á markaði séu erfiðar, samkeppni í öllum kjötgrein- um og framboð á innanlandsmarkaði mikið. Norðlenska hafi tekið kostn- aðarhækkanir á sig. „Við höfum setið uppi með þessar hækkanir, það er ógerlegt að koma þeim út á markað- inn. Staðan er alvarleg og engin teikn á lofti um breytingar. Þegar hefur heilmikið verið hagrætt í rekstrinum og allt skorið niður sem hægt er,“ segir Aðalsteinn. Minnir á ástandið 1995 til 2000 Hann segir að nú þurfi menn að fara vandlega yfir stöðuna og skoða alla möguleika. „Við þurfum að finna einhvern flöt á þessu, hvort sem það verður með sameiningum, samruna eða samvinnu, við þessari stöðu þarf að bregðast strax, það er óhjákvæmilegt. Ástandið er farið að minna á stöðuna á þessum markaði á árunum 1995 til 2000 þegar hér á landi voru margir sláturleyfis- hafar og margar kjötvinnslur, þá gekk einnig illa og nokkur fyrirtæki sigldu í þrot. Við tóku sameiningar sem skiluðu 15 ágætum árum, en það eru blikur á lofti um að sama staða sé nú að koma upp aftur,“ segir Aðalsteinn. Einhvers konar samþjöppun „Það er alveg ljóst að staðan er ekki góð og við erum að skoða hvernig best verður brugð ist við,“ segir Björn M a g n ú s s o n stjórn arformað- ur hjá SAH Afurðum á B l ö n d u ó s i . “ Við erum að vinna að þess- um málum af krafti, staðan er viðkæm núna og lítið hægt að segja fyrir um hvernig þetta fer. Björn segir rekstur sláturhúsa og kjötvinnslustöðva mjög þungan um þess ar mundir. „Þetta er erfiður rekstur og mér sýnist sú staða vera uppi að það verði einhvers konar samþjöppun. Við höfum ekki neitt svigrúm til að velta þeim hækkun- um sem yfir okkur hafa komið út á markaðinn, það er ekki möguleiki. Við höfum farið yfir reksturinn undanfarin misseri og þegar er búið að hagræða eins og kostur er, það er varla hægt að skera meira niður,“ segir Björn. Hann segir að menn velti stöð- unni fyrir sér og hver hugsanleg næstu skref verði til að rétta kúr- sinn af. „Við verðum áfram að huga að því hvernig hægt er að ná fram hagræðingu. Ég sé ekki fyrir mér að það verði hægt með því að fækka sláturhúsum, það yrði ekki gert nema taka of mikla áhættu fyrir framleiðendur, einkum sauð- fjárbændur. Sláturhúsin eru ekki endilega of mörg eins og staðan er núna, en ef til vill er hægt að koma á einhvers konar sérhæfingu þeirra á milli,“ segir Björn. Kjarnafæði gæti komið sterkar inn í SAH-Afurðir Kjarnafæði á stóran hlut í SAH- Afurðum, á bilinu 45 til 50%, og segir Eiður Gunnlaugsson stjórnar- for maður Kjarna fæðis að hugmynd- ir séu uppi um að fyrirtækið komi af enn meira afli inn í félagið. „Það er verið að skoða þetta dæmi og reikna það út fyrir okkur, en hugmyndin er að við komum sterkari inn. Hvort það end- ar með að við eigum 60%, 70% eða 100% þegar þeim útreikningum er lokið á eftir að koma í ljós,“ segir Eiður. Kjarnafæði gerði tilboð í Norð- lenska á liðnu vori, en því var hafn að á fundi Búsældar, eigenda- félags Norðlenska sem haldinn var á Egilsstöðum í júní. „Við sendum inn tilboð í sumar, því var hafnað og það kemur ekki til greina af okkar hálfu að bjóða aftur í félag- ið,“ segir Eiður. „Eins og staðan er núna á þessum markaði erum við ekki að hugsa um það.“ Minna framboð af lambakjöti Hann tekur undir og segir stöðuna erfiða, framboð af kjöti sé mun meira en eftirspurn sem geri að verkum að verð sé lágt. Hann nefn- ir að vel hafi gengið á lambakjöts- birgðir síðasta vor þegar verkfall dýralækna stóð yfir og skortur varð á öðrum kjöttegundum. Þá megi allt eins búast við að með- alþyngd dilka á komandi hausti verði lægri en t.d. í fyrrahaust. Verði hún um hálfu kílói lægri eða jafnvel meira á svæðunum norð- an og austanlands megi gera ráð fyrir að um 550 tonnum minna af lambakjöti komi inn á markaðinn nú í haust. Fjárdauðinn sem upp kom síðasta vor gæti einnig leitt til þess að færra fé kæmi til slátrunar en ella. „Það gerir að verkum að minna kemur inn á markaðinn af lambakjöti,“ segir Eiður. /MÞÞ Herbergjum fjölgað á Hótel Sögu Fréttir Laugardaginn 22. ágúst næstkom- andi verður land búnaðarsýningin og bændahátíðin Sveitasæla haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauð árkróki. Á sýningunni koma saman bænd- ur og búalið, ásamt vinnuvélasölum og handverksfólki, sýna sig og sjá aðra og skemmta sér saman. Eins og venjulega verða básar og sýningarsvæði inni og úti til leigu og er verðið það sama og í fyrra. Nán ari upplýsingar gefur Steinunn Gunnsteinsdóttir í síma 865 5146, en netfang Sveitasælunnar er sveitasa- ela@svadastadir.is. Þeir sem vilja panta borð á handverksmarkaðnum eða bás, geta gert það með því að senda tölvupóst. Sveitasæla í Skagafirði Nú standa fyrir dyrum breytingar á Hótel Sögu þar sem herbergj- um verður fjölgað og skrifstofur hótels ins færðar til innan hússins. Þá er fyrirhugað að efla viðhald og endurbætur á fasteigninni á kom- andi misserum og breyta rekstrar- fyrirkomulagi Hótel Sögu ehf. Starfsmönnum hússins voru á dög unum kynntar fyrirætlanir um að skipta félaginu Hótel Sögu ehf. upp í fasteignafélag og rekstrarfé- lag. Ingibjörg Ólafsdóttir verður áfram hótelstjóri Hótel Sögu og framkvæmdastjóri rekstrarfélags- ins Hótel Sögu ehf. sem annast sem fyrr allan hótel- og veitingarekstur í húsinu. Elías Blöndal Guðjóns- son, lögfræðingur Bændasamtaka Íslands, verður framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Bænda hall ar inn- ar ehf. Skrifstofur hótelsins, sem nú eru í austurhluta norðurbygg ing ar Bænda hallarinnar, verða færðar inn á skrifstofugang Bændasam- tak anna. Lífeyrissjóði bænda og bú greina félögum stendur jafn framt til boða annað skrifstofupláss í hús inu. Í framhaldinu verður allri norður byggingu Bændahallarinnar breytt í hótelherbergi eins og lengi hefur til staðið. Þá verður útbúin ný sameiginleg matstofa starfsmanna í Bændahöllinni í gamla Búnaðar- þingssalnum á 2. hæð. Við þessar breytingar fjölgar herbergjum um allt að 27 og gert er ráð fyrir að þau verði tilbúin til notkunar í byrjun sumars 2016. Á næstu mánuðum og árum verð ur að auki ráðist í umtalsverðar endurbætur á hótelinu, m.a. verða herbergi gerð upp, veitingarými verða endurhönnuð og svæðum fyrir verslun og þjónustu fjölgað. Að sögn eigenda hefur rekstur Hótels Sögu gengið mjög vel undanfarið og nýt- ingin aukist á milli ára, sérstaklega utan háannar. Nú er því stefnt að enn frekari uppbyggingu að sögn eigenda. Bændur greiða sjálfir fyrir hagsmunabaráttu sinna samtaka „Þetta var ansi mikið, en sem betur fór stóð þetta ástand ekki lengi yfir,“ segir Ragn ar Magnússon bóndi á Skriðufelli í Jökulsárhlíð. Gríðarleg úrkoma var fyrir aust- an um miðja síðustu viku frá því síðdegis á þriðjudag og fram á mið- vikudagskvöld. Veðurstofan gaf út viðvörun þar sem lýst var yfir óvissuástandi vegna skriðuhættu og var vegi í sunnanverðum Seyðisfirði lokað þar sem óttast var að skriður gætu fallið. Sólarhringsúrkoma á veðurathugnarstöð á Hánefsstöðum mældist rúmlega 128 millimetrar frá kl. 9 á þriðjudagskvöld til kl. 9 á miðvikudagsmorgun. Ekki féllu þó skriður eystra, en lítilsháttar skemmd ir urðu á vegum hér og hvar, m.a. á leiðinni frá Borgarfirði yfir í Loðmundarfjörð. Heyrúlla flaut 8 kílómetra Ragnar segir að ausandi rigning hafi verið eystra í rúman sólarhring, að auki hafi verið stórstreymt og háflóð, en Skriðufell stendur í um það bil 12 kílómetra fjarlægð frá sjó. Heyrúllur stóðu á túnum við bæinn og flutu að minnsta kosti tvær þeirra af stað og lentu einhverja stund undir brú heima við bæinn. Önnur þeirra losn- aði síðan og flaut á brott, „hún fór hér niður eftir ánni og langleiðina út að sjó, ætli hún hafi ekki tekið svona um 8 kílómetra siglingu,“ segir Ragnar. Hann segir að flóð hafi komið í Jökulsá í fyrrasumar. Hann var þá víðs fjarri góðu gamni á landsmóti hestamanna. Flaut þá yfir tún við Skriðufell líkt og nú. „Við erum ekki óvön því að hér flæði yfir tún,“ segir hann. Tæplega hálfnaður með fyrri slátt Tún við Skriðufell voru undirlögð af vatni en Ragnar segir að jafnvægi sé nú að komast á og hefur hann verið að tína upp rúllur sínar síðustu daga. Hann er um það bil hálfnaður með heyskap, búin að ná tæplega 500 rúllum af um 1100. „Ég er svona nokkurn vegin hálfnaður með fyrri slátt og veit alls ekki núna hvort yfir- leitt verður eitthvað um seinni slátt hér um slóðir. Þetta er orðið frekar pirrandi og maður er farinn að hug- leiða hvort grípa þurfi til plans b, að rúlla í rigningu, en held að það gangi nú reyndar alls ekki.“ Vonandi verður haustið gott Ragnar segir sprettu hafa verið frem- ur hæga í sumar, enda kalt og blautt fyrir austan flesta daga. „Svo hrekkur maður bara við, það er langt liðið á sumarið og skólar fara senn að byrja, þannig að það er mikil óvissa með framhaldið í heyskapnum,“ segir Ragnar sem er skólabílstjóri á svæð- inu. „Það er ekki annað hægt en að halda í vonina um að haustið verði gott.“ /MÞÞ Beikonhátíðin haldin um helgina Matar- og fjölskylduhátíðin Reykja- vík Bacon Festival verður haldin í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 15. ágúst. Sérvaldir veitingastað- ir munu, gegn vægu gjaldi, bjóða upp á fyrsta flokks beikoninnblásna rétti í bland við besta mögulega hráefni, – m.a. ferskan íslenskan fisk, svína-, lamba- og nautakjöt og íslenskt grænmeti. Það verða ýmsar uppákomur, hljómsveitir, kórar, lúðrasveitir, hoppukastalar og lukkutröll gleðja yngri kynslóðina. Hátíðin er til styrktar góðu málefni en árið 2013 gáfu forsvarsmenn há- tíðarinnar tvo hjartasírita til hjarta- deildar Landspítalans og í fyrra var stutt veglega við bakið á félögunum Umhyggju og Hjólakrafti. Hátíðin hefst kl. 14.00 og stendur til 17.00 og að sögn forsvarsmanna eru allir velkomnir. Mynd / Bacon Festival Fjölbreytt afþreying á Sveitasælu. Gríðarleg úrkoma fyrir austan í liðinni viku Mynd / Heiðar Broddason Björn Magnússon. Jónsson. Gunn laugsson.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.