Bændablaðið - 13.08.2015, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015
Það ríkti hátíðarstemning á Heims-
meistaramóti íslenska hestsins sem
fór fram í Herning í Danmörku
dagana 3. til 9. ágúst. Þar öttu
kappi glæsilegir fulltrúar hins ís-
lenska gæðings í íþróttakeppni og
kynbótasýningum. Íslenska lands-
liðið var sigursælt og vann til fjölda
verðlauna.
Óvæntustu úrslit mótsins voru
ef laust sigur Kristínar Lárusdóttur,
bónda í Syðri-Fljótum í Vestur-
Skaftafellssýslu, og Þokka frá Efstu-
Grund, í firnasterkri töltkeppni.
Jóhann R. Skúlason hefur unnið grein-
ina sex sinnum á síðustu átta mótum,
en lét sér nú linda 4. sæti á nýjum
keppnishesti Garpi frá Hojgaarden.
Fimmti, með sömu lokaeinkunn og
Jóhann, varð Sigurbjörn Bárðarson
á Jarli frá Mið-Fossum.
Kristín og Þokki komu óvænt
inn í íslenska landsliðið, tveimur
viku m fyrir mót, eftir að Sigurður
Sigurðarson ákvað að draga sig úr
liðinu. Sigur þeirra var því einkar
sætur. Kristín og Þokki voru í 4. sæti
fyrir úrslit en sýning þeirra í úrslit-
um var sannfærandi. Hlutu þau 8,44 í
lokaeinkunn, en Nils Christian Larsen
og Viktor frá Diisa frá Noregi, sem
urðu í 2. sæti, hlutu 7,94.
Þeir Nils Christian og Viktor hlutu
einnig silfur í firnasterkum úr slitum
fjórgangs en þar hampaði Guðmundur
Björgvinsson og Hrímnir frá Ósi
sigri, en aðeins skildi að 0,05 stig.
Guðmundur og Hrímnir komu efstir
inn í úrslit en þeir eiga langan og far-
sælan keppnisferil að baki hér heima
sem lauk nú með heimsmeistaratitli.
Reynir Örn Pálmason og Greifi frá
Holtsmúla gengu frá móti með þrenn
verðlaun. Þeir urðu heimsmeistarar í
samanlögðum fimmgangsgreinum, en
þann titil hlýtur sá keppandi sem reyn-
ist vera með hæstu meðaleinkunn úr
forkeppni í fimmgangi og slak tauma-
tölti. Þeir félagar urðu í 2. sæti beggja
flokka. Sigurvegari í fimmgangi varð
hin danska Julie Christiansen á Hug
frá Flugumýri II og heimsmeistari í
slaktaumatölti varð Vignir Jónasson
sem keppir fyrir Svíþjóð á Ivan från
Hammarby.
Svíar áberandi í skeiði
Keppt var í þremur skeiðgreinum:
100 metra flug skeiði, 250 metra
skeiði og gæðingaskeiði.
Svíar voru sigursælir í skeiðgrein-
um en Íslendingar áttu þar kraftmikla
fulltrúa. Hinn ungi Teitur Árnason og
Tumi frá Borgarhóli voru hlutskarp-
astir í gæðingaskeiði og skaut Teitur
þar sér eldri og reyndari knöpum ref
fyrir rass. Þeir Teitur og Tumi bættu
svo við bronsverðlaunum í 250 metra
skeiði en þar sigraði Guðmundur
Einarsson og Sproti frá Sjávarborg,
sem keppa fyrir Svíþjóð, á nýju
heimsmeti, 21,49 sekúndum.
Helmut Bramesfeld frá Þýska-
landi á Blöndal vom Stördal urðu
svo fljótastir keppenda í 100 metra
skeiði, en Íslendingar fengu silfur
og brons. Styrmir Árnason var annar
á hryssunni Neyslu frá Schloßberg
og fyrrum heimsmeistarinn Bergþór
Eggertsson á Lotus frá Aldenghoor
varð í 3. sæti. Þess má einnig geta
að Svíar hömpuðu sigri í 250 og 100
metra skeiði ungmenna.
Spennandi keppni ungra knapa
Ungir knapar íslenska landsliðsins
stóðu sig einnig afar vel á mótinu.
Jó hanna Margrét Snorradóttir á
Stimpli frá Vatni hlaut silfurverð-
laun eftir spennandi úrslit ungmenna
í slaktaumatölti. Aðeins munaði 0,04
stigum á henni og sigurvegaranum,
hinni þýsku Lucie Maxheimer og
Stjörn frá Eifelhaus.
Gústaf Ágeir Hinriksson og
Geisli frá Svanavatni urðu í 2. sæti
í fimmgangi en þeir félagar leiddu
úrslitin framan af. Sigurvegari þar
var Marvin Heinze frá Þýskalandi á
Myrkva frá Quillerhof.
Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
og Týr frá Skálatjörn hlutu brons í
fjórgangi en hún varð fyrir því óláni
að Týr steig úr braut í forkeppni slak-
tauma tölts, sem var þeirra sterkasta
grein. Þau komu því ákveðin til leiks
í úrslit og unnu sig upp um þrjú sæti
frá forkeppni og enduðu á verðlauna-
palli. Sigurvegari fjórgangs ung-
menna var Pierre Sandsten Hoyos
frá Svíþjóð á Falka frá Karlsro.
Heiðraði minningu Einars
Andi Einars Öders Magnússonar,
reið kennara, sveif yfir Herning þegar
gæðingur hans og vinur, Glóðafeykir
frá Halakoti, kom fram fyrir hönd
Íslands í elsta flokki stóðhesta á kyn-
bótasýningu heimsmeistaramótsins.
Glóðafeykir stóð þar efstur allra kyn-
bótahrossa með 8,74 í aðaleinkunn.
Daníel Jónsson sýndi Glóðafeyki
sem hlaut 9,02 fyrir kosti, þar af
einkunnina 9,5 fyrir tölt, brokk og
vilja og geðslag. Glóðafeykir sýndi
í fyrsta sinni skeið á kynbótasýn-
ingu fyrr á árinu en hann hlaut nú
8 fyrir skeið. Glóðafeykir og Einar
Öder sigruðu B-flokk gæðinga á
Landsmóti hestamanna árið 2012.
Þá sigraði Kengála frá Neðri-
Rauðalæk elsta flokk hryssna með
einkunnina 8,53. Knapi á Kengálu
var Agnar Snorri Stefánsson. Garún
frá Árbæ hlaut hæstu aðaleinkunn sex
vetra hryssna, 8,62, en knapi henn-
ar var Guðmundur Björgvinsson.
Andvari frá Auðsholtshjáleigu hlaut
hæstu einkuknn fimm vetra stóð-
hesta, 8,49. Knapi hans var Árni
Björn Pálsson.
Ríkey frá Flekkudal var í 2. sæti
í flokki 5 vetra hryssna með aðal-
einkunnina 8,42. Hæstu aðaleink unn
þar hlaut þýska hryssan Hrönn frá
Kronshof sem hlaut 8,52. Svaði frá
Hólum hlaut næst hæstu einkunn sex
vetra stóðhesta, 8,63. Sigurvegari í
flokknum var Viking från Österåker
frá Svíþjóð með aðaleinkunnina 8,69.
Ánægja með framkvæmd mótsins
Um 9000 gestir voru viðstaddir
Heims meistaramótið í Danmörku.
Heimsmeistaramót hefur áður verið
haldið á þessu glæsilega keppnisvæði
í Herning, en það var árið 2001. Þá
var Norðurlandamótið haldið þar í
fyrra. Mótið þótti takast með miklum
ágætum og vel var staðið að skipu-
lagningu þess. Framkvæmd þess var
nú í fyrsta sinn samstarfsverkefni
allra Norðurlandaþjóðanna og FEIF,
alþjóðasamtaka um íslenska hestinn.
Keppendur komu fram fyrir hönd
14 þátttökuþjóða, en alls eru 19 þjóð-
ir með skráð félög í FEIF.
Liðsbikar mótins fór að þessu
sinni til Svíþjóðar og er það í fyrsta
sinn sem Svíþjóð hlýtur þau eftir-
sóttu ver ðlaun. Var það ekki síst
að þakka góðu gengi ungra knapa
frá Svíþjóð og glæsilegum árangri
í skeiði.
/ Guðrún Hulda Pálsdóttir
Fréttir
Átta íslenskir heimsmeistarar á
Heimsleikum íslenska hestsins
Skaftfellskur bóndi, Kristín Lárusdóttir, kom, sá og sigraði
Íslenski hópurinn sem tók þátt á Heimsleikum íslenska hestsins í Herning. Mynd / Hallveig Fróðadóttir
Söluaðilar buðu sinn varning á móts-
staðnum.
Það skiptust á skin og skúrir og
vissara að vera klæddur eftir veðri.
Jón Þorsteinn og Magni skemmtu
gest um og gangandi.
Samstarf þeirra Guðmundar Björgvinssonar og Hrímnis frá Ósi hefur verið farsælt. Þeir hafa unnið til fjölda verðlauna
heima á Íslandi og luku nú ferli sínum saman með heimsmeistaratitli í fjórgangi. Full stúka áhorfenda hyllti Guðmund
og Hrímni að lokinni verðlaunaafhendingu. Mynd / Karen Diehn
Teitur Árnason og Tumi frá Borgarhóli sigruðu nokkuð óvænt keppni í
gæð ingaskeiði. Þeir bættu svo um betur og hlutu brons í 250 metra skeiði.
Mynd / Karen Diehn
Glóðafeykir frá Halakoti var hæstdæmda kynbótahross mótsins og má segja
Mynd / Karen Diehn
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com