Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Page 49
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 2011 45
Þegar viðeigandi meðferð hefur leitt til
þess að skjólstæðingar útskrifast, þá er
búið að kynna þeim þau úrræði sem til
eru og yfirleitt er farið með einstaklingana
á þá staði sem um er að ræða. Vonin
er sú að þeir komi til með að nýta
sér úrræðin til aukins félagsskapar og
uppbyggingar. Sumir hafa engan áhuga,
aðrir hafa áhuga og eflast og sumir byrja
áhugasamir en flosna upp og sigla í
sama farið, leggjast aftur inn og ferlið
endurtekur sig.
Á tímabili velti ég mikið fyrir mér í hvað
betur mætti fara eftir útskrift og ég velti
fyrir mér hvort deildin gæti fylgt fólki
eftir í einhvern tíma eftir útskriftina til að
tryggja að batinn héldist, þó án þess að
við reyndum að þröngva batanum upp
á fólk heima hjá sér. Ég ræddi þetta við
yfirmann minn á þeim tíma sem fannst
hugmyndin góð en lengra fór hún ekki af
minni hálfu.
Það gladdi mig því mjög þegar ég frétti að
það ætti að bæta þjónustu geðsviðs og
stofna samfélagsgeðteymi. Með teyminu
yrði góður stuðningur tryggður sem og
eftirfylgd skjólstæðinganna. Þegar ég
svo gekk í teymið var draumur minn
að rætast, ég var kominn aftur á hjólið.
Það sem mér finnst þó mikilvægast af
öllu er að á sama tíma munu virðing,
uppbygging og líðan einstaklinganna
verða betri því þeir fá aukna aðstoð við
að ná bata og verða sjálfbjarga.
Ég skora á Sigurð Harðarson að skrifa næsta
þankastrik.
Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu
og höfundur hvers pistils stingur upp
á þeim næsta. Í þankastriki gefst
hjúkrunarfræðingum færi á að tjá
sig um ýmislegt sem varðar hjúkrun
og er þeim hjartfólgið. Pistlarnir
geta fjallað um ákveðin málefni,
sögur af kynnum við sjúklinga
eða starfsfólk, eitthvað sem hefur
orðið höfundum til hugljómunar
eða hvaðeina annað sem tengist
starfinu og hugmyndafræði þess.
Fr
ét
ta
pu
nk
tu
r
Samkomulag um framtíðarvarðveislu hjúkrunarminja var undirritað
10. janúar sl. Þar með er lokið áratugavinnu minjanefndar félagsins
við að finna varanlega lausn hvað varðar hjúkrunarminjasafn á
Íslandi. Í samkomulaginu felst að Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
afhendir Lækningaminjasafni Íslands til eignar og framtíðarvarðveislu
hjúkrunarminjar í eigu félagsins.
Bergdís Kristjánsdóttir hefur síðan 2007 safnað og skráð muni
félagsins í samstarfi við Þjóðminjasafnið. Lækningaminjasafnið mun
nú varðveita þessa muni undir heitinu Hjúkrunarminjasafn og mun
leitast við að hafa muni tengda hjúkrun til sýnis á hverjum tíma.
Í minjanefnd félagsins eru, auk Bergdísar Kristjánsdóttur, Pálína
Sigurjónsdóttir, Aðalbjörg J. Finnbogadóttir, Ríkey Ríkharðsdóttir
og Sigþrúður Ingimundardóttir. Hjúkrunarminjasafn hefur lengi verið
áhugamál Pálínu og hefur hún gegnt formennsku í nefndinni. Hún
kvaðst ánægð með þessa lausn þó að hún hafi alltaf séð fyrir sér
sjálfstætt hjúkrunarminjasafn. Þakkaði hún félaginu og sérstaklega
Elsu Friðfinnsdóttur fyrir að hafa unnið sleitulaust að því að koma
þessu í höfn.
Samkomulag um varðveislu
hjúkrunarminja
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Anna Þorbjörg
Þorgrímsdóttir, safnstjóri Lækningaminjasafns Íslands, undurrituðu samkomulagið.