Morgunblaðið - 03.09.2015, Page 1
F I M M T U D A G U R 3. S E P T E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 206. tölublað 103. árgangur
MEÐ ÁRUNUM
LÆRIST AÐ
LESA Í SKÝIN
FISKUR OG
FRANSKAR VIÐ
HÖFNINA
ENN EIMIR EFTIR AF
FORDÓMUM GAGN-
VART FLOGAVEIKI
VIÐSKIPTAMOGGINN FRÆÐSLUMYND PÁLS 10JÓN Í LITLU-ÁVÍK 18
Af stað Rannsóknarskipið Oceanic Chall-
enger sigldi frá Reyðarfirði í gær.
Eykon Energy og samstarfs-
aðilar eru að hefja frekari rann-
sóknir á Drekasvæðinu.
Rannsóknarskipið Oceanic Chall-
enger sigldi frá Reyðarfirði áleiðis
á svæðið í gær. Verða tveir staðir á
íslenska hluta Jan Mayen-svæðis-
ins, eða Drekasvæðinu, rannsak-
aðir sérstaklega en leiðangurinn
tekur um mánuð.
Kostnaður við þennan hluta olíu-
leitarinnar er um milljarður króna.
Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og
stjórnarformaður Eykon Energy,
segir að ákveðið hafi verið að fjölga
borunum úr einni í þrjár og eru þær
fyrirhugaðar á árunum 2020, 2022
og 2023. Hver hola kostar nú
minnst um 100 milljón bandaríkja-
dali. »4
Olíuleit í mánuð
kostar milljarð
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hagfræðideild Landsbankans spáir
því að útflutningstekjur Íslands af
ferðaþjónustu verði 349 milljarðar í
ár, en þær voru 276,4 milljarðar árið
2013. Það yrði 72,6 milljarða króna
auking á þremur árum, sem jafngild-
ir aukningu um 66,3 milljónir króna
sérhvern dag árin þrjú.
Í þessari spá eru lagðar saman út-
flutningstekjur af ferðalögum og far-
þegaflutningum með flugi. Spáin var
gerð að beiðni Morgunblaðsins í til-
efni af nýjum tölum Hagstofunnar
um útflutning á fyrri hluta ársins.
Gústaf Steingrímsson, sérfræð-
ingur hjá hagfræðideild Landsbank-
ans, segir að ef bankinn reynist
sannspár muni ferðaþjónustan skila
45 milljörðum króna meiri gjaldeyr-
istekjum á þessu ári en í fyrra.
Verði útflutningstekjur af ferða-
þjónustu 349 milljarðar í ár er það í
fyrsta sinn sem þær eru orðnar meiri
en milljón króna á hvern Íslending.
Gústaf bendir á að á fyrri árshelm-
ingi hafi útflutningstekjur ferða-
þjónustunnar numið um 147,6 millj-
örðum, sem sé 15% meira en á sama
tímabili í fyrra. Brottfarir frá Kefla-
víkurflugvelli á fyrstu sjö mánuðum
ársins voru 28% fleiri en í fyrra.
Tekjurnar í 349 milljarða
Útflutningstekjur ferðaþjónustu stóraukast í ár Voru 276 milljarðar í fyrra
MEnn eitt metið … »9
Útflutningstekjur ferða
þjónustu í milljónum
2013 2014 2015*
*spá Landsbankans Heimild: Hagstofan
276.353 303.609 349.000
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hvanneyri Rætt var á fundinum um
að slíta sveitina úr Borgarbyggð.
Fyrirhuguð lokun grunnskólans á
Hvanneyri hefur valdið megnri
óánægju í sveitinni. Sveitarstjórn
Borgarbyggðar fundaði með íbúum í
gærkvöldi og mættu hátt í 200 íbúar.
Fundinum var ekki lokið þegar
Morgunblaðið fór í prentun.
Vilja slíta sig úr Borgarbyggð
Mikill hiti var í fundarmönnum og
lýstu fundarmenn yfir algjöru van-
trausti á meirihluta sveitastjórnar
Borgarbyggðar. Uppskar vantraust-
tillagan mikið lófaklapp fundar-
manna.
Einn fundarmanna sagði í samtali
við Morgunblaðið að nokkrir hefðu
tárast í ræðupúlti og vildu margir að
slíta ætti sveitina úr Borgarbyggð
þar sem meirihlutinn bæri ekki hag
heildarinnar fyrir brjósti.
Á Hvanneyri búa 260 manns allt
árið um kring, þar af rúmlega 60
börn á grunnskólaaldri en sveitar-
stjórnin ákvað að loka grunnskólan-
um á Hvanneyri eftir þetta skólaár.
Starfrækt hefur verið deild innan
Grunnskóla Borgarfjarðar fyrir 1.-4.
bekk á Hvanneyri sem hét áður
Andakílsskóli. ash@mbl.is
Fólk táraðist í ræðupúlti
Hitafundur á Hvanneyri Tillaga um vantraust
Stuðningsmenn Íslands lögðu undir sig veitinga-
staðinn Euro Pub og næsta nágrenni í Amster-
dam í gær og hituðu upp fyrir landsleikinn gegn
Hollandi. Í dag má reikna með að þúsundir Ís-
lendinga verði á torginu og kyrji stuðnings-
söngva fyrir leikinn í kvöld. Benjamín Hall-
björnsson, varaformaður Tólfunnar, sló taktinn
á torginu í gær og vantaði ekkert upp á stuðið,
stemninguna og fjörið. »4 og Íþróttir
Tólfan slær taktinn fyrir leikinn í kvöld
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bláar landsliðstreyjur fyrirferðarmiklar á Dam-torginu í Amsterdam
Þeim sem fá
matargjafir frá
Mæðrastyrks-
nefnd Reykjavík-
ur hefur fjölgað
jafnt og þétt og
álagið var orðið
of mikið á þeim
eina degi vik-
unnar sem út-
hlutun fór fram
á. Frá og með
næstu viku verður fyrirkomulaginu
breytt á þann veg að úthlutað verð-
ur tvo daga í viku, annan daginn
kemur fjölskyldufólk og hinn dag-
inn þeir sem búa einir.
Anna H. Pétursdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar, segir til-
ganginn vera að veita betri þjón-
ustu. Hún segir að 400 – 500 leiti
aðstoðar nefndarinnar í viku hverri
og að talsverð aukning hafi orðið
meðal yngra fólks. »6
Gefa 400-500
matargjafir á viku
Úthlutun Margir
þurfa mataraðstoð.
Slitastjórn Glitnis hefur nú 120
daga til að fá nauðasamning sam-
þykktan af kröfuhöfum og staðfest-
an af dómstólum. Takist það ekki
mun stöðugleikaskattur leggjast á
eignir búsins í stað þess stöðug-
leikaframlags sem helstu kröfuhaf-
ar Glitnis hafa fallist á að greiða í
ríkissjóð við samþykkt nauðasamn-
ings. Munurinn á skattinum og
framlaginu gæti numið allt að 174
þúsund milljónum króna.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum ViðskiptaMoggans telja að-
ilar tengdir Glitni að tímaramminn
sem slitastjórninni er markaður sé í
allra stysta lagi og að minnstu tafir
gætu orðið til þess að ferlið tefðist
fram yfir áramót og gert mögu-
leikann á samþykkt nauðasamnings
að engu.
Átta vikur eru nú liðnar frá því
að slitastjórn búsins sendi Seðla-
bankanum beiðni um undanþágu
frá gjaldeyrishöftum en hún er talin
forsenda þess að hægt sé að fá
nauðasamninginn samþykktan.
Samkvæmt upplýsingum frá Seðla-
bankanum er enn unnið að því að
leggja mat á efnahagsáhrif sem
undanþágurnar geta haft í för með
sér. »Viðskipti
Glitnir má engan tíma
missa fram að áramótum