Morgunblaðið - 03.09.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015
Björgunarsveitarmenn höfðu í
nógu að snúast í gær. Á Suðurlandi
voru sveitir kallaðar út vegna er-
lends ferðamanns sem var í sjálf-
heldu í Smjörgili, skammt suður af
Gígjökli. Var hann kominn utan al-
fararleiðar í miklum bratta og
komst ekkert áleiðis. Þyrla frá
Landhelgisgæslunni kom til að-
stoðar við að koma manninum til
byggða. Skömmu síðar voru björg-
unarsveitir frá Jökuldal og Egils-
stöðum beðnir að sækja slasaða
konu sem hafði verið ásamt fleirum
á göngu sunnan við Eyjabakkafoss,
austan við Snæfell. Hún var ekki al-
varlega slösuð en treysti sér ekki til
að ganga meira. Var hún flutt á
fjórhjóli til byggða og síðan björg-
unarsveitarbíl.
Slasaðir ferðamenn
sóttir til byggða
Björgun Sveitirnar standa oft í ströngu.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Síðasta sunnudag tók Íslendingur
prestvígslu við Niðarósdómkirkju í
Þrándheimi í Noregi, hinn fyrsti á
eftir Jóni Arasyni Hólabiskup árið
1524. Séra Gunnar Einar Stein-
grímsson vígðist þar og þá til prests,
en hann hefur síðastliðin þrjú ár
þjónað í bænum Beitstad í Norður-
Þrændalögum. Áður var Gunnar
Einar djákni við Grafarvogskirkju í
Reykjavík en fór til starfa ytra áður
en hann lauk guðfræðiprófi. Í Noregi
hefur vantað presta til starfa og í
dag sinna 22 Íslendingar þjónustu
ytra.
Lauk námi jafnhliða þjónustu
„Það eru rúm þrjú ár síðan ég fór
út og sakir þess hve tilfinnanlega
hefur vantað presta til starfa var sú
undanþága gerð að ég kæmi til þjón-
ustu og starfa á sama tíma og ég
stundaði guðfræðinámið. Ég var bú-
inn með talsverðan hluta þess í Há-
skóla Íslands en lauk því við há-
skólana í Ósló og Tromsö,“ segir
Gunnar Einar, sem segir það
óneitanlega hafa verið hátíðlegt að
vígjast í Niðarósi, sem um aldir var
höfuðkirkja Norðurlandanna og
dómkirkja Íslendinga.
Nokkrir prestar íslenskir, auk
annarra, voru viðstaddir athöfnina
sem vígsluvottar; sr. Vigfús Þór
Árnason sóknarprestur í Grafarvogi,
sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslu-
biskup í Skálholti, sr. Arndís Ósk
Hauksdóttir sóknarprestur í
Norður-Þrændalögum, sr. Kristinn
Ólason sóknarprestur í Guðbrands-
dal og sr. Sigurður Grétar Helgason
prestur í Grafarvogskirkju.
Kenningin er hin sama
Kenningargrundvöllur norsku og
íslensku þjóðkirknanna er hinn sami,
það er hin evangelíska lúterska
kirkja. „Kristnihaldið í Noregi og á
Íslandi er um margt svipað. Sjálfur
þjóna ég þremur kirkjum í víðfeðmu
prestakalli, sveitahéraði sem er 100
kílómetrar enda á milli,“ segir Gunn-
ar og bætir við að sér og sínum hafi
þótt frábært tækifæri að setjast að í
Noregi. Þau Erla Valdís Jónsdóttir
og börnin þeirra þrjú finna sig vel í
Noregi.
„Norðmönnunum sem ég þjóna
þykir vænt um kirkjuna sína og þeir
sækja hana vel. Æskulýðsstarfið er
öflugt og núna erum við til dæmis bú-
in að stofna hljómsveit sem leika
mun við guðsþjónustur í vetur.
Fermingarbörnin hjá mér í vetur eru
um 50 og þau fermast fimmtán ára,
árinu eldri en hér á Íslandi. Annað
sem er ólíkt er að hér eru börnin
jafnan skírð við guðsþjónustur,
skírnarathafnir á heimilum eða eftir
athafnir tíðkast ekki og við messu
hjá mér um daginn voru skírnar-
börnin alls níu,“ segir Gunnar.
Fyrstur Íslendinga í fimm
aldir til að vígjast í Niðarósi
Séra Gunnar Einar þjónar Þrændalögum 22 íslenskir prestar í Noregi
Ljósmynd/Arne Opdal
Vígsla Við athöfnina um sl. helgi. Sr. Gunnar Einar annar frá hægri en yst þar er sr. Kristján Valur Ingólfsson
vígslubiskup í Skálholti. Alls voru fimm íslenskir prestar vígsluvottar við hátíðlegu athöfnina í Niðarósdómkirkju.
Ásmundur Einar
Daðason hefur
tekið við for-
mennsku í þing-
flokki Framsókn-
arflokksins af
Þórunni Egils-
dóttur. Hann er
jafnframt hættur
sem aðstoðar-
maður forsætis-
ráðherra.
Þingflokkur Framsóknar hefur
verið á fundi í Borgarfirði en þar
var þetta samþykkt. Það lá þó fyrir
strax þegar Þórunn tók við embætt-
inu í janúar sl., eftir að Sigrún
Magnúsdóttir tók við umhverfis-
ráðuneytinu, að Ásmundur yrði for-
maður þingflokksins í sumar. Hann
sagðist í samtali við mbl.is í gær
ekki vita hvort einhver tæki við
stöðu hans í forsætisráðuneytinu.
Maður kæmi í manns stað.
Ásmundur Einar
þingflokksformaður
Ásmundur Einar
Daðason
Spurður hvers vegna svo margir Íslendingar sinni prest-
þjónustu í Noregi segir sr. Gunnar Einar að þar geti
margt komið til. Meginástæðan sé þó að sínu mati sú að
hér heima ljúki mun fleiri embættisprófi í guðfræði en
íslenska þjóðkirkjan kalli eftir. Þá hafi mikið hafi verið
skorið niður í starfsemi hennar.
„Já, starfsreynslan að heiman hefur nýst mér vel,“
segir Gunnar, sem starfaði í sex ár við Grafarvogskirkju,
sinnti barna- og unglingastarfi, vann með eldri borg-
urum, sorgarhópum og fleira. Vígðist svo sem djákni ár-
ið 2009 og starfaði sem slíkur við kirkjuna uns hann hélt til starfa ytra.
„Verkefnin hér í Noregi eru fjölbreytt og kirkjan kemur til móts við fólk í
öllum sínum fjölbreytileika,“ segir Gunnar Einar, sem nú í vikunni er
heima á Íslandi sem fararstjóri norskra starfsbræðra sinna sem komu
hingað til að kynna sér líf, land og kristnihald hér.
Kirkjan kemur til móts við fólk
Í NOREGI EFTIR SEX ÁR Í GRAFARVOGSKIRKJU
Gunnar Einar
Steingrímsson
Erfðafræðilegur uppruni hinnar svo-
nefndu „bláklæddu konu“ í Þjóð-
minjasafni Íslands ætti að skýrast
um áramótin, en þá er vænst að fyrir
liggi niðurstöður DNA-greiningar á
erfðamengi hennar. Greiningin er að
sögn Steinunnar J. Kristjánsdóttur
fornleifafræðings unnin af sérfræð-
ingum Íslenskrar erfðagreiningar.
Húsfyllir var á málþingi um blá-
klæddu konuna í fyrirlestrasal Þjóð-
minjasafnsins á laugardaginn. Þar
fjölluðu innlendir og erlendir sér-
fræðingar um rannsókn á kumli
landnámskonu sem fannst árið 1938 í
gröf við bæinn Litlu-Ketilsstaði á
Austurlandi. Framfarir í vísindum
og rannsóknaraðferðum hafa gert
fræðimönnum kleift að öðlast meiri
vitneskju um konuna en þegar hún
fannst, svo sem um heilsufar hennar,
aldur og uppruna. Steinunn, sem
flutti upphafserindið á málþinginu,
sagði þingið vel heppnað. Hún telur
mikla möguleika fólgna í sams konar
þverfaglegum aðferðum við forn-
leifarannsóknir hér á landi.
Rit um rannsóknirnar á kumlinu
var kynnt á fundinum og er fáanlegt
í verslun Þjóðminjasafnsins. Það
heitir Bláklædda konan. Ný rann-
sókn á fornu kumli.
Morgunblaðið/Þórður
Málþing Fjöldi fólks hlýddi á fyrirlestra íslenskra og erlendra fræðimanna
um „bláklæddu konuna“ í Þjóðminjasafninu um síðustu helgi.
Mikill áhugi á „blá-
klæddu konunni“
DNA-niðurstöður koma um áramótin