Morgunblaðið - 03.09.2015, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015
HÓLMAVÍKÁ FERÐ UMÍSLAND
OG NÁGRENNI
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Veðráttan er síbreytileg og úr skýj-
unum má lesa margt. Stundum er
léttskýjað og sól en næsta dag blikur
á lofti. Þá veit maður að brugðið get-
ur til beggja átta og viðbúið er að
leiðindaveður hellist yfir. Með tím-
anum lærir maður að lesa svona í
skýin og þekkja skilaboðin sem þau
bera,“ segir Jón Guðbjörn Guð-
jónsson, veðurathugunarmaður í
Litlu-Ávík í Árneshreppi.
Í síðasta mánuði, þann 12. ágúst,
voru liðin 20 ár frá upphafi reglulegra
veðurathugana þar, sem Jón hefur
annast frá upphafi. Saga athugana
þessara á Ströndum nær þó langt aft-
ur, en það var árið 1943 sem byrjað
var að fylgjast með veðráttu á Gjögri
og færa veruleika hvers dags til bók-
ar. Það hélst í hálfa öld, til ársins
1993.
Fimm sinnum á sólarhring
Norður á Ströndum koma
stundum – einkum á veturna – afar
snarpar hviður úr suðvestri sem rífa í
þegar þær hella sér niður af brúnum
hárra fjallanna. „Þess eru mörg
dæmi að þær hafi valdið skemmdum
á mannvirkjum og ég þræti ekkert
fyrir að vera stundum smeykur með-
an þetta gengur yfir. Norðaustan-
áttin hér getur líka verið ansi
grimm,“ segir Jón Guðbjörn, sem
tekur veðrið fimm sinnum á sólar-
hring; það er klukkan 6 á morgnana
og svo kl. 9, 12, 18 og 21 á kvöldin.
Veðurlýsingin er lesin í útvarpi og
segist Jón finna vel að fólki þyki þetta
skipta máli.
Hafís og hálkuveður
„Bændum og sjómönnum eru
þessar upplýsingar afar mikilvægar.
En svo þær komi að sem bestu gagni
þarf net athugunarstöðva að vera
þéttriðið og öruggt. Að mínu mati var
mikill skaði þegar mannaðar athug-
anir á Hrauni á Skaga lögðust af, því
að með þeim var Húnaflóinn vel kort-
lagður,“ segir Jón.
Veðrátta á Ströndum var ágætt í
ágúst, en fyrri hluti sumarsins var
kaldur og þoka lá yfir dögum saman.
Um miðjan ágúst kom raunar mjög
góður og sólríkur kafli þegar hitastig-
ið náði fimmtán stigum, sem þóttu
veruleg viðbrigði frá veðráttunni vik-
urnar þar á undan.
Bílarnir dansa á vegunum
„Þegar ég var strákur hér voru
öfgar í veðrinu ef til vill meiri en nú er
raunin. Hlýrra var á sumrin og kald-
ara á veturna. Á hafísárunum 1968 til
1969 var algengt að hér væri fimmtán
stiga gaddur en nú nær þetta sjaldan
meira en tveimur til þremur gráðum í
mínus. Slíkt kalla ég hálkuveður, því
þá leggst glæra yfir vegina svo að
bílar dansa á þeim,“ segir Jón, sem
þekkir þetta vel sem landpóstur
sveitarinnar. Er þá hans starf að vitja
um póstsendingarnar þegar þær
koma í sveitina, til dæmis með áætl-
unarfluginu, og dreifa síðan bréfum
og pinklum á bæi.
Á þeim tuttugu árum sem Jón
hefur staðið veðurvaktina í Litlu-
Ávík hafa oft komið slæm skot. Fár-
viðrið mikla sem olli snjóflóðinu
mikla á Flateyri í október 1995 er það
sem upp úr stendur og verst var.
„Þá var hér ofsaveður í nokkra
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fróður „Þegar ég var strákur hér voru öfgar í veðrinu ef til vill meiri en nú,“ segir Jón veðurathugunarmaður.
Skilaboð í skýjum
Veðurathuganir í 20 ár í Litlu-Ávík Suðvestanátt er
skæð Flateyrarveðrið var verst Er stundum smeykur
Nú um miðjan september hefjast
framkvæmdir við gerð nýs vegar yfir
Bassastaðaháls í Strandasýslu, það
er milli Steingrímsfjarðar og
Bjarnarfjarðar. Þetta er 7,4 kíló-
metra langur kafli en vegurinn sem
þarna er nú er barn síns tíma og
ekki í samræmi við kröfur dagsins.
Nú verður vegstæðið bætt og hærri
vegur byggður upp með mikilli fyll-
ingu. Verkið var boðið út í sumar og
átti Borgarverk hf. lægsta tilboðið,
sem var upp á 338 milljónir króna.
Það var þó vel yfir kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar, sem var 281 millj-
ón króna.
Bygging vegarins nýja yfir Bassa-
staðaháls – sem aðrir kenna við
Bjarnarfjörð – er langþráð sam-
göngubót sem til dæmis greiðir leið-
ina norður í Árneshrepp til mikilla
muna. Þá teppist vegur þessi gjarn-
an í vetrarsnjóum og af því helgast
að framkvæmdatíminn er rúmur, en
Borgarverksmenn eiga að skila verk-
inu af sér í sumarlok 2017.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Samgöngur Horft úr Steingrímsfirði þar sem vegurinn liggur upp á hálsinn háa.
Ætla að bæta Bassastaðaháls
Kaupfélagið í Súðavík er ný mat-
vöruverslun sem hóf starfsemi sína
þar í bæ í sumar, en engin slík versl-
un var þar síðastliðinn vetur. Er það
sveitarfélagið sem er eigandi versl-
unarinnar, en Elsa Guðbjörg Borgars-
dóttir sér alfarið um reksturinn.
„Veturinn reyndist okkur öllum
mjög erfiður. Það var mikil ófærð á
milli staða og snjóflóðahætta svo að
þetta var alveg hræðilegt ástand,“
segir hún og bætir við að verslunin
hafi frá opnun fengið frábærar við-
tökur enda sé þar veitt fjölbreytt
þjónusta. „Þetta er mjög notaleg
matvöruverslun þar sem við bökum
brauð og rekum einnig kaffihús og fé-
lagsmiðstöð. Þannig reynum við eftir
fremsta megni að hafa þetta hlýlegt
og heimilislegt,“ segir Elsa Guðbjörg
og bendir á að hin nýja verslun sé því
mikil lyftistöng. khj@mbl.is
Ljósmynd/Elsa Guðbjörg Borgarsdóttir
Kaffi Oft myndast skemmtileg og hlý stemning í Kaupfélaginu í Súðavík.
Ný og hlýleg verslun í Súðavík
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Galdrasafnið á Hólmavík nýtur sí-
felldra vinsælda meðal ferða-
manna, jafnt innlendra sem er-
lendra. Í samtali við Morgunblaðið
segir Sigurður Atlason, fram-
kvæmdastjóri Strandagaldurs, að
aðsókn ferðamanna hafi aukist um
tuttugu prósent á milli ára.
„Það er nóg að gera og sumar-
ið er búið að vera nokkuð erilsamt.
Það sem kom okkur samt mest á
óvart er hvað umferðin byrjaði
snemma. Strax í byrjun maí var allt
komið á fulla ferð og við erum svo-
lítið óvön því hérna,“ segir Sig-
urður, en þrátt fyrir aukna aðsókn
telur hann að rekstur safnsins sé
ekki að sprengja utan af sér. Þá séu
engar áætlanir uppi um stækkun á
safninu í bráð.
Hættir aldrei að elta rófuna
„Hér er allt hefðbundið og við
höfum ekkert bætt í. Þannig verður
þetta bara áfram í bili,“ segir hann
„Pýramídar“ Íslend-
inga eru á Ströndum
Vaxandi vinsældir Galdrasafnsins
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Kukl Kotbýli kuklarans í Bjarnarfirði er einnig á vegum Galdrasafnsins á Hólmavík. Er aðgangur öllum opinn.