Morgunblaðið - 03.09.2015, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Mörg hundruð flóttamenn mótmæla
annan daginn í röð þeirri ákvörðun
ungverskra yfirvalda að tálma ferð-
um þeirra til annarra Evrópulanda.
Um tvö þúsund manns hafa sett
upp tjaldbúðir á Keleti járnbraut-
arstöðinni í Búdapest. Þau hafa
keypt miða til nærliggjandi landa,
þar á meðal Þýskalands, en komast
ekki áfram vegna áðurnefndrar
ákvörðunar.
Fólkið veifaði lestarmiðum og
kallaði meðal annars „Frelsi!
Frelsi!.“
Lögreglumenn hafa nú lokað
innganginum að lestarstöðinni. eftir
því sem kemur fram í fréttum BBC
um málið. Blaðamenn á vettvangi
segja mikla spennu á milli flótta-
fólksins og óeirðalögreglunnar,
Þá kom einnig til átaka á ann-
arri lestarstöð í Búdapest í gær,
þegar hópur flóttafólks tók yfir
brautarpall eftir að hafa neitað að
fara um borð í lest sem átti að senda
þau að móttökumiðstöð í borginni
Debrechen í austurhluta landsins.
Haft var eftir lögreglumanni í
fréttum í ungverska sjónvarpi að
„ólöglegir innflytjendur“ héldu
börnum sínum á lofti og krefðust
þess að fá að halda áfram för sinni til
Þýskalands.
Forsætisráðherra Ungverja-
lands, Viktor Orban, fer á morgun á
fund starfsbræðra sinna í Evrópu-
sambandinu til að ræða hvernig
Ungverjaland eigi að taka á vand-
anum.
Pattstaða á
járnbrautarstöð
Fjölmenn mótmæli flóttafólks í
Búdapest í Ungverjalandi halda áfram
AFP
Föst Fólkið hefur nú verið fast á járnbrautarstöðinni í tvo daga.
Skógareldar loga í Family Peak Complex fjalllendinu,
nærri bænum Heart Butte í Montana-fylki í norðvestur-
hluta Bandaríkjanna. Skógareldarnir, sem kenndir eru
við Spotted Eagle, hafa nú brennt yfir 200 ferkílómetra
svæði en öllum íbúum Heart Butte var gert að yfirgefa
heimili sín síðastliðinn föstudag.
Eldurinn kviknaði við eldingar í þrumuveðri á svæð-
inu þann 9. ágúst síðastliðinn. brynja@mbl.is
AFP
Skógareldar loga í Montana
Brynja B. Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Bandaríska leyniþjónustan (CIA) og
þarlendar sérsveitir (e. Joint Special
Operations Command eða JSOC)
hafa hafið leynilega herferð í því
augnamiði að elta uppi menn
grunaða um hryðjuverk í Sýrlandi.
The Washington Post hefur eftir
ónafngreindum bandarískum emb-
ættismanni að um sé að ræða lið í að-
gerðum stjórnvalda til að ráða nið-
urlögum Íslamska ríkisins.
Drónar á vegum CIA og JSOC
fljúga nú yfir Sýrlandi en þeir bera,
að sögn embættismannsins, ábyrgð
á nokkrum nýlegum árásum á ráða-
menn Íslamska ríkisins. Einn af
þeim sem drónarnir hjálpuðu til við
að finna, var breskur hermaður,
Junaid Hussain að nafni, sem talinn
var heilinn bakvið netárásárásir Ísl-
amska ríkisins og virkur í að afla ný-
liða. Í frétt The Independent um
málið er nánar lýst hvernig Hussain
fannst. Eftir að ákveðið var að gera
hann að skotmarki, var fylgst með
hegðun hans á netinu, sem leiddi svo
til þess að hann var ráðinn af dögum
í drónaárás á bíl hans í Raqqa í Sýr-
landi þann 24. ágúst síðastliðinn.
Aðgerðir CIA og JSOC eru
sagðar til þess að finna menn
grunaða um hryðjuverk sem teljast
„verðmæt skotmörk. Talsmenn
þessara stofnana vildu ekki tjá sig
við The Washington Post og aðrir
embættismenn vildu aðeins tjá sig
undir nafnleynd.
AFP
Leynidróni Drónar ku sveima yf-
ir Sýrlandi um þessar mundir.
Drónar finna
ISIS-liða
Bandaríska leyniþjónustan með
leynilegar aðgerðir í Sýrlandi
Aseríska rannsóknarblaðakonan
Khadija Ismayilova var í fyrradag
dæmd af innlendum glæpadómstól í
sjö og hálfs árs fangelsi fyrir „fjár-
málaglæpi, þar á meðan ólögmæta
nýsköpun og skattsvik“. Um þetta er
fjallað í Time.
Khadija segir fangelsisdóminn
pólitískt kænskubragð til að koma í
veg fyrir fréttaflutning hennar um
ríkisstjórn Aserbaijan. Þegar dóm-
urinn var kveðinn upp í vikubyrjun,
sagði hún: „Yfirvöld geta ekki neytt
mig til að þegja, jafnvel þótt þau
dæmi mig í fangelsi í 15 eða 25 ár.“
Lögmaður
hennar, Fariz Na-
mazly, segir að
dóminum verði
áfrýjað.
Khadija hefur
skrifað fréttir um
gífurlega fjármuni
í eigu fjölskyldu
forsetans, Ilham
Aliyev, sem lýsti
henni sem „óvini
ríkisstjórnarinnar“ í
gögnum sem WikiLeaks birti árið
2009. Sömu gögn sýndu fram á að
forsetinn hafi beðið sendiherra
Bandaríkjanna í Aserbaijan að láta
reka Khadiju frá fjölmiðlinun Radio
Free Europe/Radio Liberty net-
work, þar sem hún vann sem frétta-
stjóri á árunum 2008 til 2010. Yfir-
völd gerðu húsleit og lokuðu
höfuðstöðvum fjölmiðilsins í Bakú í
desember 2014. Alþjóðleg mannrétt-
indasamtök gagnrýna dóminn harð-
lega. Human Rights Watch sagði
dóminn yfir Khadiju fáránlegan og
Amnesty International sagði réttar-
höldin óréttlát og byggjast á tilbún-
um gögnum. brynja@mbl.is
Blaðakona í fangelsi
Khadija
Ismayilova
„Óvinur“ ríkistjórnarinnar segir dóminn pólitíska brellu