Morgunblaðið - 03.09.2015, Side 34

Morgunblaðið - 03.09.2015, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015 Skorri RafnRafnsson er ísambúð með Elísabetu Einars- dóttur og eiga þau tvö börn; Díu Rakel (átta mánaða) og Eyþór (sex ára stjúpsonur) ásamt því að eiga hundinn Rocky. Skorri Rafn fæddist og ólst upp í Garðabæ. Hann á ættir að rekja til Vestfjarða; til Rauðasands þar sem afi hans og amma í móðurætt bjuggu ásamt því að hann dvaldi góð- um stundum á Pat- reksfirði. Þar er móðir hans, Hall- fríður Ingimund- ardóttir, kennari og rithöfundur, fædd og uppalin. Hall- fríður hefur verið fyrirmynd, stoð og stytta Skorra um alla tíð. Faðir Skorra, Rafn Hafsteinn Skúlason, var lögfræðingur að vestan úr Þorskafirði, en hann lést árið 2008 af slysförum. Skorri Rafn hefur frá unga aldri verið mjög laginn í við- skiptum. Meðal annars byrjaði hann 10 ára að selja og kaupa Önd- vegisbréf og skoðaði hann daglega gengi þeirra í gegnum íslenska textavarpið. Að auki var hann tíður gestur í banka móður sinnar, þar sem hann færði peninga á milli reikninga til að ávaxta fé sitt. Hann ræddi svo við gesti og starfsfólk bankans um hversu vel honum gengi að ávaxta fé sitt og kenndi þeim hvernig fara ætti að. Í dag er Skorri Rafn meðeigandi og forstjóri netfyrirtækisins Móbergs, sem sérhæfir sig að stofna og koma upp nýjum netfyr- irtækjum. Fyrirtækið var stofnað árið 2012 og á og rekur Net- gíró, Hópkaup, Leit.is, Bland, 433.is, Hún.is, Wedo og Mói Media. Á afmælisdaginn ætlar Skorri Rafn að eiga notalegan kvöldverð með unnustu og móður sinni. Forstjórinn Skorri Rafn sérhæfir sig í að stofna og koma upp nýjum netfyrirtækjum. Fór snemma að stunda viðskipti Skorri Rafn Rafnsson er 30 ára í dag E rla Kristjana Hafliða- dóttir fæddist 3. sept- ember 1930 að Hval- látrum í Rauðasands- hreppi, V-Barð. Hún ólst upp við almenn sveitastörf þess tíma og fékk hún sína skólagöngu í farskóla eins og var í sveitum á þeim tíma. Erla giftist Kristjáni Jóhannes- syni árið 1948 en frá þeim tíma hefur hún verið búsett á Patreksfirði. Erla starfaði mikið utan heimilis eftir að hún gifti sig og hefur gjarnan haft mörg járn í eldinum. Árið sem elsta barnið þeirra fermdist hætti Krist- ján eiginmaður hennar að mestu á sjó vegna heilsubrests en var þó áfram á skaki á eigin bát, þá starfaði Kristján sem fiskmatsmaður í nokk- ur ár og síðar hjá póstinum. Hann studdi konu sína í hverju því sem hún tók sér fyrir hendur og Erla vann við það sem til féll. Rak Gistihús Erlu Erla var matráðskona í Breiðuvík þrjú sumur á árunum 1957-60 og á margar góðar minningar þaðan. Þá starfaði hún af og til sem starfsstúlka Erla Hafliðadóttir, húsfrú á Patreksfirði – 85 ára Stórfjölskyldan Erlu var komið á óvart í tilefni af áttræðisafmæli hennar og átti fjölskyldan yndislegan dag. Hefur gjarnan haft mörg járn í eldinum Á Hafnarfjalli Erla á leið á æskustöðvar sínar á Hvallátrum. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Japan Elín Leifsdóttir Sigurðsson fæddist 27. janúar 2015 kl. 10.15. Hún vó 3.300 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Katsuko Sigurðsson og Leifur Sigurðsson. Nýr borgari Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Öflug tæki og tól fyrir pallasmíðina, viðhaldsverkin og sumarbústaðinn. Sumartilboð Iðnvéla - nú er loksins byrjað að hlýna fyrir alvöru! Kynntu þér úrvalið á idnvelar.is Rafstöð 69.826 kr. Fjölnotasög 34.900 kr. Hjólsög og sleðasög með fínstillingu 46.600 kr. Borðsög með bútsleða og ristilandi 115.988 kr. Geirungssög 38.991 kr. Borvél á borði 48.201 kr. IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.