Morgunblaðið - 03.09.2015, Síða 35

Morgunblaðið - 03.09.2015, Síða 35
á sjúkrahúsinu á Patreksfirði og vann eitt sumar á Hótel Bjarkalundi. Hún sótti fiskmatsnámskeið og öðl- aðist réttindi fiskmatsmanns og verkstjóra, var um tíma verkstjóri í frystihúsinu Skildi á Patreksfirði og var kokkur tvö sumur á togaranum Guðmundi í Tungu. Erla tók við matsölunni Sólbergi á Patreksfirði á miðjum sjöunda áratugnum og rak hana ásamt eigin- manni sínum árum saman. Við bætt- ist gisting sem síðar varð Gistihús Erlu sem hún rak til ársins 2012, þá komin fram yfir áttrætt. Frá 1985 var Erla einnig vökukona á Sjúkra- húsinu á Patreksfirði og lét af þeim störfum sjötug að aldri. Var í brids- og leikfélaginu Erla hefur tekið virkan þátt í félagsmálum. Hún er félagi í Slysa- varnafélaginu Unni og Kvenfélaginu Sif, þá starfaði hún með Leikfélagi Patreksfjarðar frá upphafi, lék mörg hlutverk í uppfærslum félagsins, sat í stjórn þess og var gerð að heiðurs- félaga árið 1986. Erla starfaði í Bridsfélagi Patreksfjarðar, var stjórnarmaður í Brids- og taflfélag- inu, eins og það hét áður, og hefur tekið þátt í fjölmörgum brids- keppnum. Hún tók þátt í hrepps- og lands- pólitík á árum áður, gekk ung í Framsóknarflokkinn, var um tíma varamaður í hreppsnefnd og vann að nefndarstörfum innan hreppsins, þ. á m. í sjómannadagsráði í tíu ár. Erla var sæmd orðu Sjómannadagsráðs árið 2004. Fjölskylda Erla giftist 21.9. 1948 Kristjáni Jó- hannessyni, f. í Höfðadal í Tálknafirði 26.9. 1921, d. 2.11. 1986, sjómanni. Foreldrar hans voru Jóhannes Krist- ófersson bóndi og Kristín Ólafsdóttir húsfreyja, sem bjuggu í Höfðadal og síðan í Hjallatúni í Tálknafirði. Börn Erlu og Kristjáns: Erlend- ur, f. 26.6. 1949, rafverktaki og sjó- maður á Patreksfirði, kvæntur Sig- ríði Karlsdóttur hjúkrunarforstjóra; Kristín, f. 11.9. 1950, ferðamála- fulltrúi á Höfn í Hornafirði, sam- býlismaður Guðbrandur Jóhannsson ferðafrömuður; Ólafur Arnar, f. 8.2. 1952, mjólkurfræðingur í Reykjavík, kvæntur Svanhvíti Bjarnadóttur skrifstofumanni; Bára, f. 22.12. 1953, d. 7.5. 2005, þroskaþjálfi í Kópavogi, hún var gift Kristjáni Geir Arnþórs- syni kerfisfræðingi; Björn, f. 31.3. 1960, d. 13.4. 2008, kjötiðn- aðarmeistari á Blönduósi; Jökull, f. 21.6. 1964, d. 15.5. 2012, vinnumaður á Reykhólum; Björk, f. 30.12. 1965, sjúkraliði í Garðabæ, gift Andra Kristni Karlssyni lækni. Barnabörn og langömmubörn Erlu eru orðin fjörutíu og þrjú tals- ins en eitt barnabarnið, Kristján Rafn Erlendsson, lést af slysförum 1995. Systur Erlu eru Anna, f. 29.6. 1927, húsmóðir á Patreksfirði, gift Árna Helgasyni, fyrrv. bónda í Neðri- Tungu, og eignuðust þau níu börn; Ólöf Þórunn, f. 16.4.1932, hjúkrunar- fræðingur í Reykjavík, gift Þórði Guðlaugssyni vélstjóra og eru þeirra börn fjögur. Foreldrar Erlu voru Hafliði Hall- dórsson, f. 6.10. 1899, d. 5.7. 1987, bóndi á Hvallátrum í Rauðasands- hreppi, og Sigríður Filippía Erlends- dóttir, f. 13.4. 1901, d. 29.3. 1982, hús- freyja. Úr frændgarði Erlu Kristjönu Hafliðadóttur Erla Kristjana Hafliðadóttir Benjamín Magnússon bóndi í Bröttuhlíð, síðar vinnum. í Stekkdal á Rauðasandi Ingibjörg Bjarnadóttir húsfr. í Bröttuhlíð, síðar vinnuk. Halldór Benjamínsson bóndi í Keflavík á Rauðasandi Anna Jónsdóttir húsfreyja í Keflavík Hafliði Halldórsson bóndi á Hvallátrum Jón Gíslason bóndi í Keflavík Ástríður Bjarnadóttir húsfreyja í Keflavík á Rauðasandi Kristján Jónsson bóndi á Hamri Valgerður Jónsdóttir húsfreyja á Hamri og Haga á Barðaströnd Erlendur Kristjánsson útvegsbóndi og vita- vörður á Hvallátrum Steinunn Ólafsdóttir Thorlacius húsfreyja á Siglunesi og Hvallátrum Sigríður Filippía Erlendsdóttir húsfreyja á Hvallátrum Ólafur „yngri“ Thorlacius Ólafsson hreppstjóri í Dufansdal Filippía Ólafsdóttir húsfreyja í Dufansdal í Arnarfirði Kjarnakona Erla Hafliðadóttir. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015 85 ára Fríða Benediktsdóttir Guðmunda M. Jóhannsdóttir Hulda S. Guðmundsdóttir 80 ára Guðríður Júlíusdóttir Heiða Þórðardóttir Svandís Sigurðardóttir 75 ára Guðmundur Þ. Jónsson Rúna Gísladóttir Skúli Guðbrandsson Þórður Jónsson Örlygur Geirsson 70 ára Rúnar Sigurður Þórisson Sigríður Stefánsdóttir 60 ára Áslaug Sólveig Guðmundsdóttir Björn Benediktsson Björn Þrastar Þórhallsson Guðmundur Valur Stefánsson Hjördís Inga Sigurðardóttir Jón Arnfinnur Helgason Laura Ann Valentino Magnús Jónasson Piotr Janusz Frydrysiak Sigríður Anna Ragnarsdóttir Þorbjörg Guðnadóttir 50 ára Berta Súsanna Hreinsdóttir Guðrún Helga Kristjánsdóttir Hjalti Jóhannes Guðmundsson Iwona Jolanta Czechowska Jóhanna Dagbjört Magnúsdóttir Jón Oddur Davíðsson Pétur Einar Jónsson Reynir A. Guðlaugsson Siggeir Magnússon Sigurbjörg Ingimarsdóttir Svanbjörn Thoroddsen Sævar Þór Guðmundsson Vilborg Davíðsdóttir 40 ára Ásmundur Vilhjálmsson Jaroslaw Czartoryski Jóhannes Arnljóts Ottósson Jón Sverrir Friðriksson Kjartan Due Nielsen Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir Kolbrún Hrönn Pétursdóttir Magnús Ragnar Magnússon Tómas Sigurðsson Vigdís Pétursdóttir 30 ára Baldur Tryggvason Benedikt Logi L. Sörensen Birkir Freyr Sigurðsson Dýrleif Halla Jónsdóttir Gísli Hvanndal Ólafsson Jósep Birgir Þórhallsson Lára Jóna Björgvinsdóttir Marek Pucyk Phonphailin Chaksukhiaw Skorri Rafn Rafnsson Sonali Vivek Gaware Til hamingju með daginn 40 ára Sigrún er Reykvík- ingur og er skrifstofu- stjóri hjá HR í tölvunar- fræðideildinni. Maki: Friðrik Ingi Kar- elsson, f. 1975, flota- fulltrúi hjá Strætó. Börn: Ágúst Þórir, f. 1998, og Axel Snær, f. 2003. Foreldrar: Páll Ammen- drup, f. 1947, svæfinga- læknir, og Þórdís Hall- grímsdóttir, f. 1946, d. 1989, hjúkrunarfr. Sigrún María Ammendrup 30 ára Hrafnhildur er Reykvíkingur, er með meistaragráðu í ensku og vinnur hjá lögfræðiráð- gjafarfyrirtæki á sviði hugverkaverndar. Maki: Atli Ívar Guð- mundsson, f. 1983, vél- virki. Sonur: Fáfnir Freyr, f. 2015. Foreldrar: Halldór Gunn- ar Haldorsen, f. 1963, og Katrín Helga Árnadóttir, f. 1963. Hrafnhildur Haldorsen 40 ára Kristján er Dalvík- ingur en býr á Akureyri og er sjómaður á Björgúlfi frá Dalvík. Maki: Katrín Hólm Hauksdóttir, f. 1976, land- fræðingur hjá Þjóðskrá Íslands. Börn: Haukur Eldjárn, f. 2003, og Agnes Inga, f. 2005. Foreldrar: Sighvatur Kristjánsson, f. 1949, d. 2004, og Svanfríður Jónasdóttir, f. 1951. Kristján Eldjárn Sighvatsson  Agnar Freyr Helgason hefur lokið doktorsprófi í stjórnmálafræði frá The Ohio State University (OSU) í Columbus, Ohio, Bandaríkjunum. Ritgerðin hans nefnist Essays in the Comparative Political Economy of Taxation and Redistribution og voru leiðbeinendur prófessorarnir Philipp Rehm, Sarah Brooks og Janet Box- Steffensmeier. Agnar útskrifaðist frá stjórnmála- fræðideildinni með sérhæfingu í samanburðarstjórnmálum, stjórnmálahagfræði og megindlegri aðferðafræði. Tvö síðustu ár dokt- orsnámsins kenndi Agnar aðferða- fræði við OSU, en áður hafði hann hlotið styrk frá deildinni til að veita fræðimönnum og framhaldsnem- endum við deildina aðferða- og tölfræðiráðgjöf. Doktorsverkefni Agnars saman- stendur af fjórum sjálfstæðum rit- gerðum á sviði samanburðarstjórn- mála með áherslu á skatta- og vel- ferðarpólitík. Rauður þráður í rit- gerðunum er áhrif efnahagsmála og efnahagsþrenginga á velferðarríki vestrænna ríkja annars vegar og við- horf almennings til hlutverks ríkis- valdsins hins vegar. Verkefnið hlaut Henry R. Spencer-verðlaunin sem besta doktorsverkefni útskrift- arnema við stjórnmálafræðideild OSU skólaárið 2014-15. Nánari upp- lýsingar um rannsóknir Agnars má finna á www.agnarhelgason.net. Agnar vinnur nú að samanburðar- rannsókn á viðbrögðum stjórnvalda í Evrópu við alþjóðlegu efnahags- kreppunni 2008. Rannsókninni er stýrt af dr. Stefáni Ólafssyni og er styrkt af Norrænu ráðherra- nefndinni. Agnar Freyr Helgason Agnar Freyr Helgason er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann lauk B.Sc.-námi í hagfræði við Háskóla Íslands 2006 og M.Sc.-námi í samanburðarstjórnmálum við London School of Economics and Political Science (LSE) í Bretlandi 2009. Foreldrar Agnars eru Erna A. Guðjónsdóttir leiðbeinandi og Helgi V. Guðmunds- son lögfræðingur. Eiginkona hans er Katrín Thorsteinsson lögfræðingur og eiga þau tvær dætur, Önnu Vigdísi og Birnu Elísabet. Doktor Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ www.isfell.is Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is TE N G IT A U G A R Fallvarnarbúnaður Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Fjölbreytt og gott úrval til á lager Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði FA LLB LA K K IR BELTI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.