Morgunblaðið - 03.09.2015, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.09.2015, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015 Heimildamyndin I want to be Weird verður frumsýnd kl. 20 í Bíó Para- dís í kvöld. Myndin fjallar um bresku listakonuna Kitty Von- Sometime sem hefur verið búsett á Íslandi í tíu ár. Hún er hvað þekkt- ust fyrir The Weird Girls Project, sem er röð verka eða myndbands- þátta þar sem konur eru í for- grunni. Hver þáttur er einstakur og byggist á ákveðinni hugmynda- fræði. Síðasti þáttur The Weird Girls Project, #EmbraceYourself, vakti mikla athygli í fjölmiðlum hér heima og erlendis sl. vor. Í því verki lagði Kitty áherslu á að styrkja lík- amsmynd kvenna. Leikstjóri I Want to be Weird er Brynja Dögg Friðriksdóttir. Myndin var sýnd á Skjaldborgar- hátíðinni í vor þar sem hún fékk góðar viðtökur. Þá verður hún sýnd á norrænu kvikmyndahátíðinni Nor- disk Panorama 18.-23. september, þar sem myndin er tilnefnd til verð- launa sem besta norræna heim- ildamyndin. Í tengslum við sýningar á I Want to be Weird stendur Bíó Paradís fyrir sýningu í innri sal Bíó Para- dísar á verkum Kittyar og The Weird Girls Project. Búningar, ljós- myndir og myndbandsþættir The Weird Girls Project eru meðal þess sem verður á sýningunni sem stend- ur til og með 23. september. Konur Konur eru í bakgrunni í list Kitty Von-Sometime sem hefur verið bú- sett á Íslandi sl. tíu ár og unnið að fjölda verka hér á landi. Heimildarmynd um Kitty Von-Sometime Norski bassaleikarinn og tónlistar- maðurinn Eivind Opsvik og ljós- myndarinn og vídeólistamaðurinn Michelle Arcila frá Costa Rica koma fram í Mengi í kvöld klukkan 21. Samstarf þeirra hefur staðið yf- ir í fjölmörg ár, þau velta fyrir sér gagnvirkum áhrifum hins sjónræna í tónlist og öfugt. Í Mengi flytja Opsvik og Arcila verk sitt A Thousand Ancestors þar sem Eivind Opsvik galdrar fram tónlist, rafræna og lífræna en Mic- helle Arcila sýnir ljósmyndir og vídeó. Verkið var gefið út í tak- mörkuðu upplagi á vínilplötu síð- astliðið haust. Hún hafði að geyma tíu lög og með útgáfunni fylgdu tíu prentaðar ljósmyndir Arcila, ein ljósmynd sem tengdist hverju lagi fyrir sig. Alþjóðleg blanda í Mengi í kvöld Morgunblaðið/Júlíus List Nóg er um að vera í Mengi í kvöld. Japanskir kvikmyndadagar fara nú fram í Bíó Paradís og hófust þeir í gær með opnunarmyndinni Still the Water í leikstjórn Naomi Kawase. Myndin var sýnd bæði á japönsku og ensku og fjallar um að æva- fornar hefðir varðandi náttúruna eru enn í gildi á japönsku eyjunni Amami í heittempraða beltinu. Á meðan hinni fornu tungldansahátíð stendur í eynni, finnur hinn 16 ára gamli Kaito lík í sjónum og reynir kærasta hans að hjálpa honum að skilja atburðinn. Hátíðin stendur fram á sunnudag. Japanskir kvik- myndadagar Morgunblaðið/Júlíus Kvikmyndir Japanir hafa gert margar þekktar kvikmyndir sem vert er að njóta. Í næstu viku, dagana 10.-13. sept- ember, verður sýningin Révélations – Fine Craft and Creation Fair haldin í Grand Palais í París. Þetta er stór viðburður þar sem list- handverk í alþjóðlegu samhengi er í aðalhlutverki og eru flest verkin eftir Frakka. Nokkrir Íslendingar eiga verk á sýningunni, en verkin STAKA eftir Maríu Kristínu Jóns- dóttur og MÓT eftir Baldur Helga Snorrason, Guðrúnu Harðardóttur og Kötlu Maríudóttur verða á svo- kallaðri Banquet-sýningu. Á magic language///game of whispers, sem er hluti Fine Craft-sýningar- innar, voru einnig valin nokkur verk eft- ir Íslendinga. Révélations – Fine Craft and Creation Fair var fyrst haldið fyrir tveimur árum en þá voru það 267 aðilar sem sýndu og kynntu listhandverk sitt í Grand Palais fyrir rúmlega 33.000 gest- um. Stefnt er að því að halda þenn- an viðburð annað hvert ár. Íslendingar á Révélations – Fine Craft Hross í oss Bíó Paradís 18.00 Fúsi Háskólabíó 17.30 Bíó Paradís 20.00 Love 3D Bíó Paradís 17.30, 22.30 Bönnuð innan 18 ára Absolutely Anything 12 Hópur sérvitra geimvera veita manneskju krafta til að gera hvað sem henni sýnist í tilraunaskyni. Í aðal- hlutverkum eru Simon Pegg, John Cleese, Kate Beck- insale, Terry Gilliam og Rob- in Williams. IMDB 6,4/10 Laugarásbíó 18.00, 20.00, 22.00 Háskólabíó 20.00, 22.10 Borgarbíó Akureyri 17.40 Vacation 12 Rusty Griswold dregur fjöl- skyldu sína í ferðalag þvert yfir landið í flottasta skemmtigarð Bandaríkjanna, Walley World, í þeirri von um að hrista fjölskylduna sam- an. Ekki fer allt eins og áætl- að var. Metacritic 34/100 IMDB 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.50, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.20 Sambíóin Akureyri 20.00 Sambíóin Keflavík 20.00 Southpaw 12 Hnefaleikahetjan Billy (Jake Gyllenhaal) virðist lifa hinu fullkomna lífi, á tilkomumik- inn feril, ástríka eiginkonu og yndislega dóttur. En örlögin knýja dyra og harmleikurinn hefst þegar hann missir eig- inkonu sína. Metacritic 57/100 IMDB 7,8/10 Smárabíó 20.00, 22.40 Borgarbíó Akureyri 17.40 Frummaðurinn Fyrir tveimur milljónum ára féll apamaðurinn Eðvarð úr tré og braut aðra framlöpp- ina sína. Til að lifa af þurfti hann að læra að standa upp- réttur. Smárabíó 15.30, 17.45 The Gift 16 Metacritic 78/100 IMDB 7,7/10 Laugarásbíó 20.00 22.20 Sambíóin Akureyri 22.10 Mission: Impossible - Rogue Nation 12 Ethan og félagar taka að sér sitt erfiðasta verkefni til þessa. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 75/100 IMDB 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.45 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 18.00, 21.00 Trainwreck 12 Amy (Schumer) trúir ekki á að sá eini rétti" sé til og nýt- ur lífsins sem blaðapenni. Morgunblaðið bbbmn Metacritic 75/100 IMDB 6,8/10 Smárabíó 20.00 Pixels Metacritic 27/100 IMDB 5,5/10 Smárabíó 15.30, 17.40 Amy 12 Metacritic 85/100 IMDB 8,0/10 Háskólabíó 18.00, 21.00 Ant-Man 12 Metacritic 64/100 IMDB 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.30 Minions Metacritic 56/100 IMDB 6,8/10 Laugarásbíó 18.00 Sambíóin Álfabakka 17.50 Smárabíó 15.30, 17.50 Inside Out Metacritic 93/100 IMDB 8,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.50 Sambíóin Kringlunni 17.50 Sambíóin Akureyri 17.50 Hrútar 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 83/100 IMDB 8,2/10 Háskólabíó 17.30 Bíó Paradís 22.00 Red Army Bíó Paradís 18.00 Ég vil vera skrítin Bíó Paradís 20.00 Barefoot Gen Bíó Paradís 20.00 Still the Water Bíó Paradís 22.00 Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is Kvikmyndir bíóhúsanna Sagan gerist á fyrri hluta sjöunda áratug seinustu aldar þegar bandaríski leyniþjónustumaðurinn Napoleon Solo og KGB maðurinn Ilya Kuryakin vinna saman að því að finna dularfull glæpasamtök sem vilja kjarnorkuvopn. Metacritic 55/100 IMDB 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 17.30, 18.30, 20.00, 20.00, 21.00, 22.30, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00 The Man From U.N.C.L.E. 12 Spennumynd byggð á tölvuleikjunum vinsælu. Myndin hverfist um leigumorð- ingjann sem var erfðafræðilega sam- settur til að vera hin fullkomna dráps- vél. IMDB 5,9/10 Sambíóin Egilshöll 17.50, 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 22.10 Smárabíó 20.00, 22.40 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.30 Hitman: Agent 47 16 Myndin fjallar um rappsveitina N.W.A. sem markaði djúp spor í sögu rappsins og ollu textarnir miklum deilum þar sem að mörgum fannst þeir upphefja ofbeldi og glæpsamleg athæfi. Metacritic 73/100 IMDB 8,4/10 Laugarásbíó 19.00, 22.00 Smárabíó 16.00, 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 22.20 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.00 Sambíóin Keflavík 22.20 Straight Outta Compton 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.