Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2015, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.9. 2015
HEIMURINN
FRAKKLAND
PARÍS Marine Le Pe , leiðtogi
innar, þarffrönsku Þjóðfylkingar
í næstaað mæta fyrir dómstó
r fimmmánuði til að svara fy
ára gömul ummæli, þa
hún bar saman bænag
múslíma á götum úti v
nasista í seinni heimss
Skýringin á urfti
Le Pen frið u. Le
Pen er æf v g s
stjórnmála
Jinp
Kína segir af og
frá að kínversk
stjórnvöld
hafi hakk
n í vur
ann
en eikið grunur á
ig innhakkað s
kja
ðan
eetWa
gi
jálft
NESÍ
SI Dýrav ndu ví fram að apinn
höfund fyrir fjórum áru
f a að undanförn
vid
BANDA
MARYLA
var Neon
höfðaði ge
fangavarða í sinn g
Sandy „það“ og „eins
að henni í steypibaðin
graldrei alvöru kona. Þá
daga án rökstuðning
175 manns hafa verið líflátnir í
Sádi-Arabíu undanfarið eitt ár
sem þýðir að fangi fellur fyrir
hendi böðuls annan hvern dag,
að því er fram kemur í skýrslu
Amnesty International. 102
glæpamenn voru teknir af lífi
fyrstu sex mánuði ársins 2015
og tuttugu ára gamalt met er í
hættu en árið 1995 voru 192
líflátnir í ríkinu. Meðal hinna
látnu eru börn undir átján ára
aldri og fatlaðir.
Amnesty International, sem
heldur téðum upplýsingum til
haga í samvinnu við AFP-
fréttastofuna, fullyrðir að
aftökum hafi fjölgað hratt
frá ágúst á síðasta ári og
síst hafi dregið úr þeim eft-
ir að Salman konungur
tók við krúnunni í
janúar síðast-
liðnum.
Hann var bara sautján áraþegar hann var fangels-aður fyrir mótmæli og
almenna pólitíska óþekkt meðan
arabíska vorið stóð sem hæst.
Stjórnvöld stungu honum í stein-
inn og nú, þremur árum seinna,
hefur hann verið dæmdur til
krossfestingar og dauða af sér-
stökum glæpadómstól í landinu.
Nái refsingin fram að ganga verð-
ur hann afhöfðaður og lík hans
sýnt opinberlega, öðrum mótmæl-
endum til varnaðar.
Alþjóðasamfélagið er í miklu
uppnámi þessa dagana vegna
meðferðar stjórnvalda í Sádi-
Arabíu á Ali Mohammed al-Nimr
og hafa Sameinuðu þjóðirnar
krafist þess að hætt verði við
fyrirhugaða aftöku og að réttað
verði að nýju í máli unga manns-
ins. Í fyrsta lagi tilgreina mann-
réttindasérfræðingar SÞ ungan
aldur al-Nimr, hann hafi verið
undir lögaldri þegar meint brot
var framið, og hins vegar grun
þess efnis að hann hafi ekki notið
sannmælis fyrir dómi og mögu-
lega verið þvingaður, jafnvel pynt-
aður, til að játa á sig sakir.
Þessu hefur al-Nimr haldið fram
sjálfur. Fyrir liggur að al-Nimr
hefur dregið játningu sína til
baka en því er haldið fram að
hann hafi aldrei fengið að hitta
lögmann og hvorki haft aðgang að
penna né bréfsnifsi meðan á
réttarhaldinu stóð.
Af böldnum kominn
Þess má geta að faðir piltsins,
Mohammed al-Nimr, hefur lengi
verið stjórnvöldum í Sádi-Arabíu
óþægur ljár í þúfu og bróðir föð-
urins, Nimr Baqr al-Nimr, bíður
líka örlaga sinna á dauðadeild. Al-
Nimr eldri biðlaði einmitt til
Salmans, hins nýja konungs Sáda,
að þyrma lífi sonar síns í vikunni
en staðfesting dómsins er í hans
höndum.
SÞ segja aftökuna ganga
í berhögg við „alþjóð-
legar skyldur“ Sádi-
Arabíu. „Alþjóðalög,
sem Sádi-Arabía hef-
ur staðfest að
séu bindandi,
kveða á um
að dauða-
dómi
megi að-
eins
framfylgja að undangengnum rétt-
arhöldum þar sem fyllstu sann-
girni hefur verið gætt. Í ljósi
þess að bornar hafa verið brigður
á þetta krefjumst við þess að
stjórnvöld í Sádi-Arabíu tryggi að
réttað verði að nýju í máli Ali
Mohammed al-Nimr og aftöku
hans þegar í stað aflýst,“ segir í
yfirlýsingu SÞ.
Mannréttindasamtökin Reprieve
hafa líka gagnrýnt Sáda harðlega.
Segja áform stjórnvalda „við-
urstyggileg“.
Frakkar og Bretar and-
mæla en Bandaríkin þegja
Frönsk og bresk stjórnvöld hafa
líka blandað sér í málið. Frakkar
hafa óskað eftir því að aftökunni
verði frestað, enda eru þeir í
prinsippinu andvígir dauðarefs-
ingu, og Bretar hafa lýst áhyggj-
um sínum. „Okkur skilst að laga-
leg nótt sé úti hjá Ali Mohammed
al-Nimr og lokaáfrýjun hans hafn-
að. Við munum taka málið upp
þegar í stað við stjórnvöld í Sádi-
Arabíu,“ segir í fréttatilkynningu
frá utanríkisráðuneyti Bretlands.
Bandarísk stjórnvöld hafa ekki
tjáð sig opinberlega um málið og
sæta fyrir vikið vaxandi gagnrýni.
Spurður um málið í vikunni neit-
aði talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins að tjá sig en fagnaði við
sama tækifæri skipun fulltrúa
Sáda í lykilembætti hjá mannrétt-
indaráði Sameinuðu þjóðanna. Sá
gjörningur hefur einmitt farið fyr-
ir brjóstið á mannréttinda-
samtökum enda kemur hann á
sama tíma og Sádar gera sig lík-
lega til að lífláta ungmenni sem
var ósjálfráða þegar meint brot
þess var framið.
Nánir bandamenn
Að sögn talsmanns utanríkisráðu-
neytisins, Marks Toners, eru
Bandaríkin og Sádi-Arabía nánir
bandamenn sem ræðast reglulega
við og vinna saman að marg-
víslegum málum. „Við ræðum
mannréttindi við Sáda og lítum
svo á að þetta leiðtogahlutverk
[innan mannréttindaráðs SÞ] gefi
þeim tækifæri til að kynna sér
mannréttindi í heiminum og innan
eigin landamæra.“
Verður gerð-
ur höfðinu
styttri
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, MANNRÉTTINDASAMTÖK, BRET-
AR OG FRAKKAR HAFA KRAFIST ÞESS AÐ SÁDI-ARABÍA
HÆTTI ÞEGAR Í STAÐ VIÐ AÐ TAKA UNGMENNIÐ ALI MO-
HAMMED AL-NIMR AF LÍFI EN HANN HEFUR VERIÐ DÆMD-
UR TIL DAUÐA FYRIR PÓLITÍSKT ANDÓF. AL-NIMR VAR AÐ-
EINS SAUTJÁN ÁRA ÞEGAR HANN VAR TEKINN HÖNDUM.
Salman Sáda-
konungur.
175 MANNS LÍF-
LÁTNIR Á EINU ÁRI
Ali Mohammed al-Nimr verður tekinn af lífi innan skamms, staðfesti konungur Sádi-Arabíu dóminn yfir honum.
* Í skýrslu Amnesty International kemur fram að2.208 manns hið minnsta hafi verið teknir af lífií Sádi-Arabíu frá árinu 1985. AlþjóðamálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is