Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Qupperneq 9
IÐJUÞJÁLFINN 2 / 2007 • 9
bygg ingu slíks hjálpartækjabanka. Þar í
landi rekur MND félagið sinn eigin
hjálpartækjabanka. Leiðbeining arnar
eru ítarlegar og fara vandlega yfir málin
allt frá þrifum á hverju hjálpartæki
fyrir sig og upp í skrásetningu búnað
arins og geymsluleiðbeiningar. Amanda
mun einnig leiðbeina í réttri notkun
hjálpartækjanna.
Mongólía er dásamlegt land. Mong
ólska þjóðin er upp til hópa hjálpsamt
og glaðvært fólk með mikinn metnað
fyrir þjóðinni. Sérstaklega finnur mað
ur fyrir því hjá yngri kynslóðinni. Ég
hreifst gríðarlega af þessari miklu
menn ingarsögu sem Mongólar eiga,
stolti þeirra yfir þjóðarhetjunni Cheng
gis Chaan, og fallegri óspilltri nátt
úrunni, sem um leið er svo óvægin við
þjóðina.
Mikil þörf er á utanaðkomandi að
stoð heilbrigðisstarfsfólks og vil ég
hvetja alla iðjuþjálfa sem og annað
heilbrigðis starfsfólk sem áhuga hefur á
að víkka út sjóndeildarhringinn og gera
virkilegt gagn að hugleiða þann kost að
starfa í Mongólíu. Við höfum skapað
góð tengsl við fagfólk í landinu og
einnig hefur hluti af hópnum sem fór
utan stofnað IceMongstyrktarsjóðinn
sem hefur að markmiði að styðja við
bakið á fátækum barnafjölskyldum í
Mongólíu. Fyrsta verkefni sjóðsins var
að kaupa „ger“ handa heimilislausum
mæðgum þar sem móðirin glímir við
lifrarbólgu og getur því lítið unnið.
Þessar mæðgur eru af hirðingjaættum
og því ekki á neinum manntalsskrám
og þurfa algerlega að reiða sig á aðstoð
hjálparsamtaka. Þegar við rákumst á
þær bjuggu þær inni á vandamönnum
og höfðu lifað á hveitiblönduðu vatni í
viku. 11 ára stúlkan hafði ekki komist í
skólann í nokkra daga því skórnir
hennar voru ónýtir.
Meðan við vorum við störf í Mong
ólíu komumst við ekki hjá því að reka
augun í götubörnin sem búa í hol
ræsakerfi borgarinnar. Talið er að þau
séu í kringum 2000. Þau hafa svefnstað
í holræsunum þar sem er heitt og rakt
en um leið stórhættulegt að vera. Þau
hafa í sig og á með betli, glæpum og
vændi (Unicef, 2003). Við hittum fyrir
Ariungerel, 13 ára stúlku sem búið
hafði á götunni í tvö ár. Mörg barnanna
eiga foreldra á lífi, en hafa hrökklast að
heiman sökum óreglu, heimilisofbeldis
eða kynferðislegs ofbeldis sem þau hafa
mörg hver orðið fyrir. Svo var einnig
um Ariungerel. Hún hafði upplifað
bæði höfnun foreldra sem og ofbeldi. Í
holræsi Ariungerel bjuggu 13 ung
menni á aldrinum 622 ára. Dag
skrárgerðarmennirnir okkar gerðu inn
slag í Kompás um götubörnin og
feng um við hin tækifæri til að fylgjast
með þeim. Skoða má innslögin sem
gerð voru í Mongólíu á www.visir.is/
kompas. Það var athyglisvert að heyra
að þessir krakkar sem búa við slíkar
hörmungaraðstæður eigi sér stóra fram
tíðardrauma. Vinkonu okkar Ariunger
el langaði t.a.m. mikið til að verða
japanskur túlkur. Það er erfitt að gera
sér hugarlund hvernig hún ætlar að
nálgast þau markmið sín. Í sjónmáli
virtust einhvern veginn fáar leiðir færar
frá því lífi sem hún lifði. Ljóst er þó að
hjálparstarfssamtök líkt og Save the
children og Unicef eru að reyna að
aðstoða þessi börn og hafa þau komið
upp búðum fyrir þau þar sem sjálf
boðaliðar aðstoða þau við nám og iðju.
Einnig hafa nokkrir erlendir aðilar sem
heimsótt hafa Mongólíu hreinlega selt
allt sitt og flutt til Mongólíu til að
starfa með götubörnunum.
Þarna er óplægður akur fyrir iðju
þjálfa sem vilja láta til sín taka og
aðstoða þessi yndislegu börn við að
finna tilgang með lífinu og stunda
innihaldríka iðju og tómstundir fram
yfir það líf sem þau lifa í dag. Sögur
ganga að þeim sé rænt og líffærin úr
þeim seld til Kína. Það saknar þeirra
enginn. Mongólska þjóðin er rík af
þjóðerniskennd. Þjóðin lítur þessi börn
hornauga og lítið er gert þeim til að
stoðar annað en að siga lögreglunni á
þau. Þessu þarf að breyta. Við gátum
fært nokkrum börnum lopapeysur og
húfur sem kvenfélagskonur í Selfos
skirkju höfðu prjónað handa þeim.
Þeim veitti svo sannarlega ekki af hlýrri
ullinni í fimbulkuldanum.
Það er alveg ljóst að eftir svona lífs
reynslu eins og að fara til Mongólíu
verður maður aldrei samur. Öll lífsgildi
breytast og áherslur verða aðrar. Mér
finnst eins og ég hafi fengið mína köll
un. Mongólía er landið sem ég í hjarta
mínu hef tekið í fóstur. Ég þreytist
heldur ekki á að minna á að heimurinn
er eitt stórt þorp. Okkur ber að gæta
hvers annars.
Styrktarreikingur IceMong styrkt
ar sjóðins til styrktar fátækum barna
fjöl skyldum í Mongólíu: 1175 05
4120 23. KT. 6809070130
Hlekkir á skýrslu iðjuþjálfa sem eru
að koma iðjuþjálfanámi á koppinn
http://www.wfot.org/documents/
VisitMongRep2005web(1).pdf
http://www.wfot.org/documents/
Mongolia_Newsletter1.pdf
Heimildir:
Zinamider, B. (2005). NGO report with the eva
luation of the AsianPacific Decade activities.
NGO PERSPECTIVES for Full Participation and
Equality, 1. Sótt 23. ágúst 2007, frá gagnasafninu
DINF.
Unicef (2003). Street Children and Unsupervised
children of Mongolia. Sótt 21. ágúst 2007 frá
http://www.unicef.org/mongolia/