Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Síða 22

Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Síða 22
„Var hann duglegur í tímanum?“ Á síðustu árum hafa orðið nokkrar breytingar á þjónustu iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara við börn með hreyfi­ hömlun og fjölskyldur þeirra. Lengi vel beindist þjónustan fyrst og fremst að læknisfræðilegum þörfum barnanna enda skilgreind og skipulögð út frá sjúkdómsgreiningu þeirra. Lögð var megináhersla á að minnka áhrif undir­ liggjandi skerðingar, svo sem að draga úr vöðvaspennu og koma í veg fyrir vöðvastyttingar og kreppta liði. Upp úr 1990 jókst áhersla á færni barnanna við mismunandi aðstæður í kjölfar þess að farið var að beina sjónum í auknu mæli að umhverfi þeirra. Í dag eru uppi háværar raddir um að enn heildrænni þjónustu sé þörf og áhersla á fjöl­ skyldumiðaða þjónustu og þverfaglega teymisvinnu er í brennidepli (King o. fl., 2002; Sloper, 1999). Iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar í Kanada hafa m.a. verið leiðandi í þessari umræðu sem beinist að innihaldi og gagnsemi þeirrar þjón­ ustu sem veitt er (Law o.fl., 2005; Rosen baum, King, Law, King og Ev­ ans, 1998). Í fjölskyldumiðaðri þjónustu er gengið út frá þeirri meginforsendu að foreldrar þekki börnin sín best og að besta leiðin til að stuðla að færni fatlaðs barns sé að hlúa að fjölskyldu þess og nærumhverfi. Hafa beri í huga að fjöl­ skyldur eru mismunandi og þjónustan þurfi því að taka mið af menningu og gildum hverrar og einnar. Fagfólki beri að kanna þarfir fjölskyldunnar, vinna náið með henni og nýta styrkleika hennar eins og kostur er. Áhersla er lögð á virkan þátt fjölskyldunnar við að skilgreina markmið, skipuleggja íhlutunarleiðir og meta árangur. Þjón­ ustan á því að mæta þörfum fjölskyld­ unnar í stað þess að fjölskyldan þurfi að aðlaga sig að þörfum kerfisins (Franck og Callery, 2004; Hanna og Rodger, 2002; Rosenbaum o.fl., 1998). Nýlegar rannsóknir sýna ótvírætt fram á mikilvægi fjölskyldumiðaðrar nálgunar. Ánægja foreldra með þjón­ ustu virðist háð því hve fjölskyldumiðuð hún er, auk þess sem gott upplýsinga­ flæði, virðing og stuðningur frá fagfólki skiptir foreldra almennt miklu (King, Cathers, King og Rosenbaum, 2001; King, Teplicky, King og Rosenbaum, 2004; Law o.fl., 2003; Sloper, 2006, 1999). Sveigjanleg og vel samhæfð þjónustutilboð eru ofarlega á blaði, og hugað er að tímamótum í lífi barnanna og fjölskyldna þeirra, sér í lagi þegar farið er milli þjónustukerfa. Þetta á meðal annars við um upphaf skóla­ göngu á öllum skólastigum og þegar einstaklingurinn fetar sig áfram í hlutverki unglings og hins fullorðna (King o.fl., 2002). Áherslu á fjöl­ skylduumhverfið gætir einnig í líkani Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um færni, fötlun og heilsu (Interna­ tional Classification of Function, Disabilities and Health) eða ICF sem kom út árið 2001 (World Health Organization, 2001) og beinir sjónum að samspili heilsufars og aðstæðna. Fjölskyldan skiptir miklu í þessu samhengi enda mótar hún að ýmsu leyti þær aðstæður sem barnið býr við. Samkvæmt áherslum ICF er því mikilvægt að styðja við fjölskyldur og vinna með þeim (Rosenbaum og Stewart, 2004). Þrátt fyrir umræðu síðustu ára um mikilvægi fjölskyldumiðaðrar þjónustu getur reynst erfitt að breyta hefð­ bundum vinnubrögðum. Bent hefur verið á að þjálfarar taki síður mið af þörfum og markmiðum barns og fjölskyldu ef þau stangast á við gildi og markmið þeirra sjálfra. Sumir eiga erfitt með að vinna í svo nánu samstarfi við foreldra eða takast á við tilfinningar þeirra. Í slíkum tilvikum kann að reynast auðveldara að beita hefð­ bundnum aðferðum þar sem valda­ hlutföll eru skýr (Hanna og Rodger, 2002). Áhrif hins læknisfræðilega Viðhorf foreldra barna með hreyfihömlun til þjónustu iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf foreldra barna með hreyfihömlun til þjónustu iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara. Rann­ sóknin var unnin samkvæmt eigind legri hefð. Gögnum var safnað með opn um viðtölum við 17 foreldra (14 mæður og þrjá feður) barna í 1.­7. bekk grunn skóla. Börn in og fjölskyldur þeirra höfðu notið þjón ustu iðju­ þjálfa og sjúkraþjálfara frá unga aldri. Gagna­ grein ing byggði á grundaðri kenningu. Niðurstöður: Foreldrar töldu þjónustu iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara mikilvæga en breyti lega, háða því hvaða einstaklingur sinnti málum hverju sinni. Skortur á skýr um viðmiðum og samræmdu vinnu lagi varð til þess að einstaklingsbundnir þættir í fari þjálfara skiptu miklu. Fram kom sterk ósk um fjölskyldumiðaða þjónustu með breyti­ legar þarfir barns og fjölskyldu að leiðarljósi. Einnig að þjálfarar hugi vel að aðstæðum barnanna og taki virka ábyrgð í að samhæfa upplýsingar og þjónustu. Flest ir foreldrar óskuðu eftir gagnkvæmri virð ingu, sameigin­ legri ákvarða natöku um mark mið og leiðir og samvinnu við þjón ustuaðila. Foreldrar lýstu jafnframt þörf fyrir virk en viðráðanleg hlutverk sem taka ekki of mikið af tíma þeirra og kröftum. Niður stöður rannsóknar innar sýna fram á mikilvægi stefnumótunar í skipu­ lagi og framkvæmd þjónustu þvert á þjón­ ustukerfi heilbrigðis­, félags­ og mennta mála. ■ dr. Snæfríður Þóra Egilson Dósent við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri 22 • IÐJUÞJÁLFINN 2 / 2007

x

Iðjuþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.