Skólavarðan - 01.10.2006, Page 11
11
KYNNING Á STARFI KENNARA
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 6. ÁRG. 2006
Eins og flestum er í fersku minni voru
sett lög á kjaradeilu grunnskólakennara
haustið 2004. Ekki þarf að undrast að
þessi aðgerð ásamt með erfiðu verkfalli
hafði mikil áhrif á kennara og upplifun
þeirra á starfsumhverfi sínu. Kennurum
fannst alvarlega vegið að stéttinni og
henni lítill sómi sýndur. Rætt var um
nauðsyn þess að efla kynningarstarf í
því skyni að vekja almenning til vitundar
um inntak og gildi starfsins.
Á aðalfundi FG í mars árið 2005 var
því ákveðið að mótuð skyldi stefna í
ímyndar- og kynningarmálum og hrundið
af stað átaki í þeim efnum. Stjórn FG
hófst strax handa og leitaði til nokkurra
aðila sem starfa á vettvangi ímyndar- og
kynningarmála. Fram komu tillögur um
hvernig standa skyldi að verkinu og á
ársfundi FG í febrúar 2006 var ákveðið að
ganga til samstarfs við auglýsingastofuna
Hvíta húsið. Verkefnið skyldi vera tvískipt;
annars vegar ímyndarmál og hinsvegar
kynningarmál.
Myndir sem birst hafa í blöðum og
sjónvarpi undanfarið tengjast ímyndar-
hluta verkefnisins og er skemmst frá því
að segja að þær hafa vakið mjög jákvæð
viðbrögð. Myndirnar eru af þekktum
Íslendingum og texti og mynd tengja
á einfaldan hátt skólagöngu þeirra við
jákvæðar minningar.
Síðari hluti átaksins hefst innan skamms.
Send verða skilaboð inn á öll heimili
landsins þar sem útskýrt er meðal annars
hvernig vinnutíma grunnskólakennara
er háttað. Víða gætir enn misskilnings
hvað þetta varðar og halda margir að
kennarar vinni ekki 1800 klukkustundir á
ári eins og aðrir launþegar. Sumir halda
að lækkun kennsluskyldu þýði minni
vinnu. Allt of margir átta sig ekki á að
grunnskólakennari í fullu starfi vinnur
42,86 klukkustundir á viku á starfstíma
skóla; þ.e.a.s. 2,86 stundum lengur en
aðrir. Þannig vinna kennarar af sér 13,6
daga sem jafngildir lengingunni á jóla-
og páskaleyfi umfram aðra launamenn.
Vinnutími grunnskólakennara er því
jafnlangur og hjá öðrum en að hluta
til öðruvísi samsettur.Yfir þessu hvílir
engin leynd. Grunnskólakennarar eiga
að halda þessum staðreyndum á lofti og
vera ófeimnir að tala um þær. Þetta er
einn af kostum kennarastarfsins: Að geta
unnið fleiri tíma á viku á starfstíma skóla
og fengið þannig lengra frí yfir hátíðir. Öll
störf hafa bæði kosti og galla.
Sameiginlegur vilji til átaks
Stjórn FG ákvað einnig að skapa umræður
meðal kennara sjálfra um ímyndar- og
kynningarmál sín. Flestir trúnaðarmenn
grunnskólanna hafa farið með verkefni inn
í kennarahópana og fjallað um þessi mál.
Víðast hafa skapast fjörlegar umræður og
margar skemmtilegar hugmyndir borist
stjórn FG um hvernig haga megi ímyndar-
og kynningarmálum félagsins til framtíðar.
Trúnaðarmenn FG hafa staðið sig af mikilli
prýði í þessu verki og eiga þakkir skilið
fyrir gott starf.
Í könnun Félagsvísindastofnunar fyrir
Kennarasamband Íslands í júní 2006 voru
félagsmenn FG meðal annars spurðir hversu
mikilvægt þeir teldu átak af þessum toga.
Tæp 90% félagsmanna svöruðu því svo að
þeir teldu mikilvægt eða mjög mikilvægt
að farið yrði í slíkt átak. Könnunina í heild
sinni er að finna á www.ki.is
Ástæða er til að hvetja alla kennara til
að taka þátt í átakinu og skapa jákvæða
umræðu í samfélaginu um kennarastarfið.
Það er og verður verkefni kennara sjálfra
að móta og skapa ímynd sína og upplýsa
þjóðina um störf sín.
Heildarkostnaður verkefnisins; áætlana-
gerð, myndataka, gerð auglýsinga í sjónvarpi
og blöðum, birtingar og annað kynn-
ingarefni mun kosta á annan tug milljóna.
Margir hafa spurt um þetta og það er ljóst
að Félag grunnskólakennara getur ekki
eitt staðið straum af þessum kostnaði.
Því leitaði FG eftir og hlaut fjárstyrk í
verkefnið frá Kennarasambandi Íslands.
Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi
forseti Íslands, Andri Snær Magnason
rithöfundur og Tinna Gunnlaugsdóttir
Þjóðleikhússtjóri ljáðu verkefninu lið,
félaginu að kostnaðarlausu. Það þarf vart
að taka fram að Félag grunnskólakennara
kann þeim miklar þakkir fyrir þátttökuna
og þá viðurkenningu sem í henni felst.
Þess má að lokum geta að í Víðsjárþætti
Ríkisútvarpsins nýverið lauk þáttarstjórn-
andi umfjöllun sinni um ímyndar- og
kynningarátak FG með þessum orðum:
„... áfram grunnskólakennarar, meira
svona!“
Aðdragandi og framkvæmd
Allt of margir átta sig ekki á að grunnskólakennari í fullu starfi vinnur
42,86 klukkustundir á viku á starfstíma skóla; þ.e.a.s. 2,86 stundum
lengur en aðrir. Þannig vinna kennarar af sér 13,6 daga sem jafngildir
lengingunni á jóla- og páskaleyfi umfram aðra launamenn. Vinnutími
grunnskólakennara er því jafnlangur og hjá öðrum en að hluta til öðruvísi
samsettur.Yfir þessu hvílir engin leynd. Grunnskólakennarar eiga að
halda þessum staðreyndum á lofti og vera ófeimnir að tala um þær.
Ímyndar- og kynningarátak
grunnskólakennara
„Ég las frönsku og franskar bókmenntir í Grenoble og Sorbonne-háskóla
í París. En alla ævi bý ég að þeim fjársjóði sem íslenskukennarinn
minn, fröken Guðrún Jónsdóttir, gaf mér í Landakotsskóla.“
Frú Vigdís Finnbogadóttir ljáði verkefninu lið