Skólavarðan - 01.10.2006, Side 28
28
FRÉTTIR, TILKYNNINGAR
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 6. ÁRG. 2006
Málþing um verkefnið Heilsuefling
í leikskólum verður haldið þann 15.
nóvember n.k. á vegum Menntasviðs
Reykjavíkur kl. 13-16. Á málþinginu
verður fjallað um heilsueflingarverkefni
sem hófst árið 2000 og lauk formlega
árið 2006.
Meðal fyrirlesara eru Ágústa Guðmarsdóttir
sjúkraþjálfari, Kristinn Tómasson yfirlæknir
Vinnueftirlits ríkisins, Jóhann Thoroddsen
sálfræðingur og Anna Hermannsdóttir fyrr-
Athygli er vakin á að ný umsóknar-
eyðublöð fyrir sjúkrasjóð eru komin á
heimasíðu KÍ, www.ki.is
Í stað eins blaðs er boðið upp á þrjú núna:
Eitt fyrir venjulegar umsóknir, eitt fyrir
sjúkradagpeninga og eitt fyrir dánarbætur.
Að sögn starfsmanna sjúkrasjóðs er akkur
að nýju eyðublöðunum fyrir félagsmenn
enda bæði nákvæmari og huggulegri en
þau sem fyrir voru!
Ráðstefnan Það er leikur að læra - sam-
ræða allra skólastiga sem haldin var á
Akureyri 29. – 30. september 2006 var
mjög velheppnuð að mati þeirra sem
hana sóttu og fyrirlestrar áhugaverðir.
Ráðstefnan var haldin á vegum skóla-
þróunarsviðs kennaradeildar HA,
Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar
(SÍMEY), MA, VMA og Akureyrarbæjar
um skólamál. Tilgangur hennar var að
stuðla að samræðu kennara af öllum
skólastigum um þróun skólakerfisins
næstu ár og tók uppbygging hennar mið
af tilganginum með áherslu á þátttöku í
málstofum og lifandi umræður.
Samræða á milli skólastiga er mjög brýn og
beinlínis gert ráð fyrir að hún sé til staðar í
samtíma okkar eins og marka má af nýjum
áherslum í skólamálum sem meðal annars
enduróma í 10 punkta samkomulaginu.
Í einni af málstofum ráðstefnunnar var
fjallað um nýja námskrá í þriðja/fjórða
erlenda tungumáli í framhaldsskólum
og lögð fram ályktun þessu að lútandi.
Í ályktun málstofunnar er tillögum um
breytta námsskipan til stúdentsprófs
og stórfelldri skerðingu náms í frönsku,
spænsku og þýsku harðlega mótmælt:
Ályktun
Málstofa um nýja námskrá í þriðja/fjórða
erlenda tungumáli í framhaldsskólum
á ráðstefnunni Það er leikur að læra
– samræða allra skólastiga, haldin á
Akureyri 29.-30. september 2006, mót-
mælir tillögum um breytta námskipan
til stúdentsprófs þar sem kveðið er á um
stórfellda skerðingu á námi í frönsku,
spænsku og þýsku. Þessi skerðing hefur
verið harkalega gagnrýnd af þeim er
málið varðar, t.d. nemendum, kennurum,
fagfélögum og Stofnun Vigdísar Finn-
bogadóttur í erlendum tungumálum.
Ekki er með nokkru móti hægt að sjá
að fyrirhuguð skerðing veiti nemendum
jafngóðan eða betri undirbúning til
háskólanáms en nú er eins og boðað er í
skýrslu menntamálaráðuneytis frá árinu
2004: Breytt námsskipan til stúdentsprófs
– aukin samfella í skólastarfi.
Við fögnum ummælum ráðherra
sem fallið hafa í kjölfar umræddrar
gagnrýni þess efnis að endurskoða
þurfi einingafjölda í tungumálum til
stúdentsprófs. Við skorum á stjórnvöld
að hafa mikilvægi tungumálakunnáttu
að leiðarljósi, horfa til framtíðar og efla
tungumálanám í stað þess að skerða.
Þess má geta að í skýrslu Stofnunar
Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum, Tungumál eru lykill að
heiminum, sem gefin er út í samvinnu
við Háskólann í Reykjavík og kom út í
janúar sl. eru athugasemdir við drög að
námskrám í erlendum tungumálum fyrir
grunn- og framhaldsskóla. Í skýrslunni
er lagt til að átak verði gert til að auka
kennslu í erlendum tungumálum. Bent er
á að undanförnum áratugum hafi dregið
úr kennslu þriðja máls og dönsku. Lagt er
til að blaðinu verði snúið við og stórátak
gert til að efla kennslu tungumála
á áðurnefndum skólastigum og efla
jafnframt menntun tungumálakennara.
Málþing um skapandi starf í leikskólum
verður haldið í Kennaraháskóla Íslands,
Bratta föstudaginn 10. nóvember 2006
frá kl. 13:00 til 16:00. Að málþinginu
standa Félag leikskólakennara og
Faghópur leikskólakennara með sérnám
á sviði listgreina.
Dagskrá:
Kl.13:00 Ljós og skuggar
Kl.13:10 Setning: Kristín Ólafsdóttir,
formaður Faghóps
leikskólakennara með
sérnám á sviði listgreina
Kl.13:20 Hvað færir skapandi starf
börnum? - Ingibjörg
Jóhannsdóttir skólastjóri
Myndlistaskólans í Reykjavík
Kl.13:40 Af hverju eru listgreinar
mikilvægar manninum? –
Guðmundur Oddur
Magnússon, prófessor við LHÍ
Kl.14:00 „Minn ætlar að...“,
- Linda Björk Ólafsdóttir,
leikskólakennari
Kl.14:20 Hlé
Kl.14:40 „Rosalegt fjör yrði þá“
– söngurinn vináttu bindur
bönd, - Kristín Ólafsdóttir,
leikskólakennari
Kl.15:00 Vægi listgreina í námi
leikskólakennara – Fulltrúar
frá KHÍ og HA
Kl.15:20 Flughestarnir í Sæborg, Soffía
Þorsteinsdóttir, leikskólastjóri
og Böðvar Bjarki Pétursson
frá Kvikmyndaskóla Íslands
Málþingsstjóri: Sigurhanna V. Sigurjóns-
dóttir leikskólakennari.
Skráning fer fram á netfanginu fl@ki.is
Síðasti skráningardagur er 1. nóvember.
Vísindasjóður FL styrkir málþingið, ekkert
skráningargjald.
Málþingið verður sent út á Netinuum starfsþróunarstjóri Leikskóla Reykjavíkur.
Bergur Felixson fyrrum framkvæmdarstjóri
Leikskóla Reykjavíkur verður fundarstjóri.
Málþingið er öllum opið.
Skráning er hafin á netfangið namskeid.
menntasvid@reykjavik.is og í síma 411-7000
og stendur yfir til 7. nóvember.
Nánari dagskrá og staðsetning verður
auglýst síðar.
Takið daginn frá.
Skapandi afl í
leikskóla
- draumur eða veruleiki?
Ný eyðublöð fyrir
sjúkrasjóð
Eilífðarferðalag með mörgum áfangastöðum.
Heilsuefling í leikskólum:
ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA
vegvísir inn í framtíðina