Skólavarðan - 01.11.2001, Page 15
Starfsfólk skólans heldur vel hópinn og
bryddar upp á ýmsu skemmtilegu til að
krydda tilveruna og auka samheldni. Erla
Gunnarsdóttir skólastjóri Safamýrarskóla
segir allt starfsfólk skólans vera staðráðið í
að gera hann að skemmtilegum vinnustað
þar sem öllum líður vel og gaman er að
vera.
„Hér er mjög góður starfsmannahópur,
jákvæður, úrræðagóður, glaðlyndur, metn-
aðarfullur og duglegur í starfi. Starfsand-
inn er mjög góður. Ef til vill má rekja það
að hluta til þess að löng hefð er fyrir miklu
samstarfi í skólanum, við þurfum hvert á
öðru að halda.“
Árlega er kosin þriggja manna starfs-
mannastjórn sem skipuleggur leikhúsferð-
ir, bíóferðir, partý, óvissuferð og svo fram-
vegis. Hún stendur fyrir uppákomum og
viðheldur hefðum sem hafa orðið til í
gegnum árin og gefist vel. Í kringum
hverja árstíð hafa til dæmis skapast vissar
hefðir.
„Hefð er fyrir því að fara í álfaleik fyrir
jólin en þar á hver sinn leynilega velgjörða-
mann sem gaukar að honum hlýlegum orð-
um, brandara eða einhverju örlitlu en
huggulegu. Meðan á álfaleik stendur er
skemmtilegt andrúmsloft, skólinn er undir-
lagður af alls kyns vísbendingum, svo sem
blöðrum, borðum og ýmsum vörðum sem
eiga að leiða fólk að gæsku álfanna.
Smákökur finnast í vösum, bílar eru
skreyttir, til dæmis með músastigum, skór
burstaðir, frumort ljóð á glámbekk eða
rúnstykki bíður á uppdekkuðu borði í kaffi-
tíma. Álfar fara laumulega um og álfabörn-
in eru sífellt að reyna að lesa í hver þeirra
álfur er,“ segir Erla.
Á jólunum er borðað saman hangikjöt í
skólanum og haldið jólaball fyrir börn,
barnabörn og/eða frændsystkini starfs-
manna.
Vorið er tími óvissuferðar skólans og
verið er að fjármagna hana allt árið.
„Óvissuferðin er fjármögnuð að miklu leyti
með kökusölu. Við skiptumst á að mæta
með köku einu sinni í viku og það kemur
þannig út að hver starfsmaður þarf að
koma með köku einu sinni á ári. Við höf-
um líka stundum hlaðborð á starfsdegi. Þá
skiptum við okkur niður í hópa og kemur
hver í hópnum með einn rétt. Við erum
líka með sjoppu fyrir kennara sem starfs-
mannafélagið rekur og þar er sjálfsaf-
greiðsla.“
Andrúmsloftið er að sögn Erlu með
miklum ágætum hvað sem fólk tekur sér
fyrir hendur. „Stór hluti starfsmanna sótti
gítarnámskeið í skólanum og hittist annað
veifið á gítarkvöldum. Hópurinn hefur frá
upphafi troðið upp, öðrum og ekki síður
sjálfum sér til skemmtunar. Sönghópurinn
Safasystur nýtur mikilla vinsælda á
skemmtunum, þær syngja gömul hugljúf
lög og klæðast að sjálfsögðu í þeim anda.
Árshátíð hefur undanfarin tvö ár verið
haldin með Öskjuhlíðarskóla og hefur
skemmtilegt fólk beggja skóla séð um
skemmtiatriði. Við hittumst stundum í
heimahúsi á þemakvöldum, ræðum um
bók, lesum ljóð eða ráðum einfaldlega lífs-
gátuna. Auðvitað eru einstaklingar í hópn-
um ólíkir en það þykir bara kostur og hver
og einn fær að njóta sín eins og hann er.
Þetta þýðir ekki að allir séu alltaf sammála
um allt en venja er að taka á málum sem
upp koma og afgreiða þau. Flestir eru líka
mjög meðvitaðir um að hlátur er af hinu
góða, á vel við á skemmtilegum stundum
en getur líka létt róðurinn í erfiðleikum,“
segir Erla að lokum, full tilhlökkunar enda
stutt í að uppákomur tengdar jólunum
hefjist í Safamýrarskóla.
Steinunn Þorsteinsdóttir
Safamýraskól i
Í Safamýrarskóla er löng hefð fyrir
öflugu félagsstarfi starfsmanna og er
skólinn rómaður fyrir það. Þar er
kraftmikið starfsmannafélag sem
stendur fyrir ýmsum uppákomum. Í
skólanum eru 37 starfsmenn sem all-
ir leggja sitt af mörkum til að gera
hann að eftirsóknarverðum vinnu-
stað og í Safamýrarskóla er hláturinn
aldrei langt undan.
Leynivinir, kökusala og gott skap
- félagslíf starfsfólks Safamýrarskóla í Reykjavík
17
Vísbending um næsta áfanga í óvissuferðinni
var í flöskuskeyti
Fyrsta stopp í ævintýraferð 1998 - nestistími
Vísbending leiddi hópinn á sjó
Að lokum var farið í kúlu - „kúlusveifla“