Þjóðmál - 01.09.2013, Qupperneq 13
12 Þjóðmál haust 2013
leika í sveitarstjórnarkosningunum, allt
eftir að stæðum í hverju sveitarfélagi . Hvar
er skyn samlegt að bjóða fram saman,
mynda kosn inga bandalög o .s .frv .?
Á þennan veg hefur verið talað árum saman
til að efla pólitískt baráttuþrek vinstrisinna
en þegar á hólminn er komið skerst alltaf
einhver úr leik eins og þegar Steingrímur
J . Sigfússon fór eigin leið en ekki í Sam
fylkinguna árið 2000 .
Ekki ætti að vera erfitt að sameina
Sam fylkingu og Bjarta framtíð eða
Samfylkingu og Besta flokkinn . Sjást þó
engin merki um vilja til þess heldur sýnist
talið um samein ingu vinstri manna snúast
um nánara samstarf milli Samfylkingar
og vinstri grænna (VG) . Fylgi hugur
máli verða flokkarnir að koma sér saman
um nýja ESBstefnu, lífvænlegri en þá
sem þeir fylgdu í stjórn ar tíð Jóhönnu
Sigurðardóttur .
Margrét S . Björnsdóttir fer tæp 30 ár
aft ur í tímann máli sínu til stuðnings og
segir að árið 1985 hafi hópur ungs fólks
úr Alþýðu flokki, Alþýðubandalagi, Banda
lagi jafnaðarmanna og Kvennalista, ásamt
vinstri sinnuðum framsóknarmönn um,
stofn að Málfundafélag jafnaðarmanna,
sem hafði að markmiði að þrýsta á samstarf
og/eða sam einingu flokkanna . Síðar hafi
Gróska og Röskva komið til sögunnar með
svip uð markmið . „Er aftur kominn tími
slíkra samtaka?“ spyr Margrét .
Röskva er nú svipur hjá sjón og hefur
tapað hinni sterku stöðu sem hún hafði
um tíma í Háskóla Íslands . Vaka fékk
rúm 70% atkvæða í síðustu kosningum til
Stúdentaráðs Háskóla Íslands . Rlistinn í
Reykjavíkurborg splundraðist haustið 2002
þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar
stjóri lýsti áhuga á að skipa forystusæti á
framboðslista Samfylkingarinnar í þing
kosn ingunum vorið 2003 .
Ábending Margrétar S . Björnsdóttur
var tímabær að því leyti að nú fer í hönd
undir búningur sveitarstjórnarkosninga hjá
stjórn málaflokkunum .
Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur til dæmis
að huga að róttækum ráðum til að styrkja
stöðu sína í Reykjavík, vilji hann ná vopn
um sínum á ný . Því miður hefur flokkn
um mistekist að skapa öfluga viðspyrnu í
borgarstjórn á þessu kjörtímabili og inn an
borgarstjórnarflokksins ríkir ónóg sam
staða eins og best lýsti sér í klofningi meðal
borgarfulltrúa sjálfstæðismanna í atkvæða
greiðslu um tillögu að nýju aðalskipu lagi
Reykjavíkur .
Sjálfstæðismenn ættu að huga að öllum
góðum ráðum til að efla framboðslista sinn í
Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar .
Sigur Besta flokksins í kosningunum 2010
sýndi að hópur nýrra manna, kvenna og
karla, getur náð góðum árangri á skömmum
tíma í höfuðborginni . Sambærileg vakning
er nauðsynleg í röðum sjálfstæðismanna
bæði til að hrista upp í flokksvélinni í
Reykjavík og til að höfða til kjósenda á
nýjan og spennandi hátt . Nú fer í hönd
rétti tíminn til að huga að málum vegna
kosninganna vorið 2014 .
III .
ÍMorgunblaðinu birtist fimmtudaginn 8 . ágúst 2013 bréf frá færeyskri konu,
Biritu Gøtuskeggi Jennysdóttur sem ólst
upp í Vestmannaeyjum . Hún lýsir mikilli
sorg sinni vegna þess að hún telur að Íslend
ingar hafi svikið Færeyinga . Íslend ingar
hafi ákveðið á einhverjum fundi sem hún
man ekki hvar var haldinn að segja skilið
við Færeyinga í viðræðum við ESB um
síldveiðar . Hún segir: „En þið fóruð einir á
fund með ESB og fenguð víst mjög góðan
díl, á meðan Færeyingar sátu fyrir utan