Skólavarðan - 01.05.2015, Qupperneq 21
Stórutjarnaskóli hefur yfir að ráða. Nemendur læra að fara eftir
þeim reglum sem gilda í skólanum almennt og þeir þjálfast í
samskiptum við aðra á hinum ýmsu aldursstigum. Nemendur
leikskólans kynnast því starfi sem bíður þeirra í grunnskóla og
þeir læra að líta á Stórutjarnaskóla sem skólann sinn. Nemendur
grunnskólans fá að sjálfsögðu einnig tækifæri til að halda tengsl-
um við leikskólann.
Hefð er fyrir því að fimm ára börnin sæki ákveðna tíma með
1. og 2. bekk, auk þess hópastarfs sem er í leikskólanum. Þetta
eru íþróttir, sundaðlögun og útiskóli ásamt tónmennt, tölvu-
fræði, heimilisfræði, smíðum, íslensku og stærðfræði eins og það
heitir í stundaskrá grunnskólans. Yngri börnin eru í tónmennt
og íþróttum. Ein af valgreinum 9. og 10. bekkjar er starf í leik-
skóla, en þar kynnast nemendur og taka þátt í starfi leikskólans.
Þess eru dæmi að fyrrum valgreinanemendur séu leikskóla-
kennarar í dag.
Hótel á sumrin
Allir borða á sama tíma í matsal skólans, bæði börn og kennarar.
Opnunartími er sá sami á báðum skólastigunum, bæði hvað
varðar skólaárið og daglega viðveru. Er það m.a. vegna
vegalengda á skólasvæðinu og þess að sum barnanna ferðast
með skólabílum. Skólinn er nýttur undir rekstur Hótel Eddu á
sumrin, og nú hefur tekist að koma leikskóladeildinni þannig
fyrir í húsnæðinu að í sumar verður í fyrsta skipti hægt að hafa
opið.
Skólinn starfar undir merki Grænfánans. Í Grænfánastefn-
unni er lögð rík áhersla á lýðheilsu í víðasta skilningi. Því hefur
Stórutjarnaskóli gengið formlega í raðir heilsueflandi skóla, og
er því með stefnumótun sem m.a. birtist í matseðlum mötuneyt-
isins og starfi umhverfis- og lýðheilsunefndar skólans. Í henni
sitja fulltrúar allra starfshópa í skólanum, fulltrúar nemenda
(þ.m.t. fulltrúi úr leikskóla) og foreldra auk sveitarstjóra Þing-
eyjarsveitar. Þá hefur skólinn sett sér umhverfis- og lýðheilsu-
stefnu og sáttmála. Stórutjarnaskóli hefur undanfarin fimm ár
haldið umhverfisþing sem eru öllum opin.