Skólavarðan - 01.05.2015, Blaðsíða 24
Nám í hagnýtri margmiðlun hefur það að mark-
miði að veita nemendum alhliða kennslu og þjálf-
un í framsetningu og vinnslu efnis með stafrænum
hætti, gerð prentmynda, kvikmynda og vefefnis
svo fátt eitt sé nefnt. Hagnýt margmiðlun hefur
verið kennd í Borgarholtsskóla um skeið og svo
verður einnig í haust en þá verður boðið upp á
þetta nám með dreifnámsfyrirkomulagi. Að sögn
Kristján Ara Arasonar, kennslustjóra lista- og
fjölmiðlasviðs Borgarholtsskóla, var ákveðið að
bjóða upp á námið í ljósi þeirra miklu breytinga
sem átt hafa sér stað í samfélaginu og skólakerfinu
á undanförnum árum.
„Aukin áhersla er á skapandi vinnu nemenda
og að þeir nýti sér upplýsingatæknina til að afla sér þekkingar
og leikni og um leið miðla hæfni sinni. Sumpart eru nemendur
komnir langt fram úr okkur skólafólkinu í nýtingu tækninn-
ar. Það er hins vegar á ábyrgð okkar kennaranna að kenna
ungviðinu að nýta tæknina á ábyrgan og skilvirkan hátt og um
leið að varast pyttina með því að innleiða nýjungar í kennslu-
hættina,“ segir Kristján Ari.
Hann segir margmiðlunartæknina gefa jafnt nemendum
sem kennurum tækifæri til skapandi vinnu og á fjölbreyttari
hátt en við áttum að venjast á árum áður. „Hið nýja tungumál
einskorðast ekki við talaða og ritaða framsetningu – með því
„Námið gefur góða heildarsýn á hvað marg-
miðlun er. Námið er áhugavert og án efa hefur
það hjálpað mér að opna nýja leið að framtíð-
inni og það hefur leitt mig inn í hugarheim lista,
hönnunar, menningu og tækni. Að fara í nám
með vinnu er strembið á köflum, en þetta nám
er alveg þess virði. Ég er mjög ánægð að hafa
farið í námið og er margs vísari sem nemandi og
manneskja.“
Nanna Ævarsdóttir, verkefnastjóri Lauga lækjarskóla.