Skólavarðan - 01.05.2015, Blaðsíða 52
Reynt verður að blanda saman stærðfræði- og kennslufræði-
námskeiðum en námið fer fram í blöndu af stað- og fjarnámi.
Tryggt verður að kennarar af landsbyggðinni geti tekið þátt en
þeir geta þá stundað námið með aðstoð fjarfundabúnaðar. Þeir
sem hafa áhuga á náminu hafa frest til 5. júní til að skrá sig en
sjálft námið hefst með staðarlotu á Menntavísindasviði dagana
10. – 14. ágúst 2015.
Fjölbreyttur kennarahópur
Nánari upplýsingar um námið eru sem hér segir:
Tímasetningar: Flestir tímar verða á þriðjudögum og
fimmtudögum frá kl. 15 til kl. 18. Í júní 2016 er gert ráð fyrir að
haldin verði tveggja vikna staðarlota.
Kennarar: Fjölbreyttur hópur kennara af Menntavísindasviði
og Verkfræði- og náttúruvísindasviði og víðar mun koma að
náminu, m.a. Freyja Hreinsdóttir, Anna Helga Jónsdóttir, Auð-
björg Björnsdóttir, Ingólfur Gíslason, Rögnvaldur Möller, Birgir
Hrafnkelsson, Friðrik Diego, Gunnar Stefánsson o.fl.
Haust 2015:
■ SSF101F Kynning og upplýsingatækni 5e, ágúst/september.
■ SSF102F Talningarfræði 5e, september/október.
■ SSF103F Tölfræði og tölfræðikennsla 5e.
Vor 2016:
■ SSF201F Kennslufræði stærðfræði I 5e.
■ SSF202F Undirstöður stærðfræðigreiningar 10e.
Haust 2016:
■ SSF304F Ályktunartölfræðí 5e.
■ SSF302F Rúmfræði 5e.
■ SSF303F Kennslufræði stærðfræði II 5e.
Vor 2017:
■ SSF401F Talnafræði 5e.
■ SSF402F Stærðfræðileg líkön 10e