Skólavarðan - 01.05.2015, Qupperneq 57
Nemendur á unglingastigi í Suðurhlíðarskóla hófu
á haustdögum samstarf við nemendur í norska
skólanum Vatneli í Sandnesi sem er rétt fyrir
utan Stafangur. Viðfangsefnið var heldur betur
vel kunnugt bæði Íslendingum og Norðmönnum,
orkunýting í allri sinni mynd. Við vorum svo hepp-
in að fá styrk frá Nordplus og gerði það íslensku
nemendunum kleift að fara í skólaheimsókn til
Noregs. Að fá að vinna með norsku nemendunum
hefur víkkað sjóndeildarhring nemendanna, ekki
síst vegna skólaheimsóknarinnar. Námsaðferð-
irnar hafa glætt námsefnið nýju lífi því verið er að
skoða efnið með líðandi stundu í huga og það sem
tengist nemendum beint.
Undangenginn skólavetur unnu nemendurnir á Íslandi
verkefni um orkunýtingu. Þau unnu í hópum eftir áhugasviði og
skiptu með sér eftirfarandi þáttum: jarðvarma, fallvatnsorku,
vindmyllum, kolum, sólarorku, olíu og kjarnorku.
Hver hópur vann kynningu fyrir hina sem voru af ýmsum
toga, og sumar mjög lifandi. Í Suðurhlíðarskóla er samkennsla í
8.-10. bekk og því var vinnan þvert á þessa bekki.
Ferðin til Noregs
Í lok ágúst fóru íslensku nemendurnir í skólaheimsókn til
Noregs. Þar fengu þeir tækifæri til að vera í tímum, fara á norsk
heimili, upplifa norska náttúru og skoða þeirra helstu orkugjafa.
Í skólanum var farið yfir helstu raforkugjafa heims. Eftirminni-
legar voru tilraunir þar sem nemendur kveiktu á vasareikni með
sítrónu og bjuggu til vindmyllu sem þau prófuðu úti og kveiktu
með henni á ljósaperu.
Áhersla var lögð á að skoða hvernig hægt væri að snúa
túrbínu. Við skoðuðum hvernig hægt er að virkja öldur, vind,
fallvötn, sól og kjarnorku til að búa til rafmagn. Við komumst
að því að sameiginlegu orkugjafar landanna eru fallvötn. Ísland
er þar að auki með jarðvarmann á meðan Norðmenn hafa
gnægtir af olíu, en í báðum löndum er verið að gera tilraunir
Steinunn Hulda
Theodórsdóttir
umsjónarkennari
Lilja Irena Guðna-
dóttir
verkefnisstjóri og
stundakennari, í
Suðurhlíðarskóla.