Skólavarðan - 01.05.2015, Page 80
MOLAR MAÍ 2015
ÓKEYPIS ÖRNÁMSKEIÐ
Vefnámskeið þar sem fjallað
er um og kennt á ýmis veftól
til notkunar í námi og kennslu
er að finna í ýmsu formi á
vefnum. Ein leið er að sækja
námskeið Richard Byrne en
hann heldur reglulega örnám-
skeið þar sem hann kynnir
veftól af ýmsu tagi og er óspar
á ráð og hugmyndir er kemur
að notkun upplýsingatækni
í kennslu. Námskeið Byrne
eru ókeypis, þátttakendur
koma alls staðar að og þau
taka ekki langan tíma. Hægt
er að nálgast þessi námskeið í
vefkerfi sem kallast Training
Viewer og einnig er fróðlegt
að fylgjast með bloggi Richard
Byrne.
APPIÐ
KANNTU SKYNDIHJÁLP?
Rauði krossinn sendi fyrir
nokkru frá sér skyndihjálp-
arsmáforrit sem vert er
að gefa gaum. Hægt er að
nálgast allar helstu upplýs-
ingar um skyndihjálp, prófa
þekkingu sína og skoða
myndbönd. Smáforritið er
hannað fyrir iOs og Android
og kostar ekkert að hlaða því
niður.
CHATTERPIX KIDS
Handhægt smáforrit sem
tekur enga stund að læra á.
Börnin geta tekið ljósmyndir
af fólki eða teikningum. Síðan
er teiknaður munnur á þann
sem er á teikningunni og
talað inn á. Alls kyns skraut
fylgir til að glæða myndina lífi
en útkoman verður hreyfi-
mynd með tali. Smáforritið er
ókeypis.
SPJALDTÖLVURÁÐSTEFNA VESTANHAFS
Ráðstefnan iPad Summit
Boston 2015 verður haldin 17.
og 18. nóvember næstkom-
andi. Þar verður upplýsinga-
tækni í kennslu rædd frá öllum
hliðum og til ráðstefnunnar
mæta kennarar og kennslu-
ráðgjafar sem eru leiðandi
í faginu. Fjóla
Þorvaldsóttir,
sérkennari og
sérfræðingur í
upplýsingatækni,
fjallar um ráðstefnuna
á bloggsíðu sinni. Meðal
fyrirlesara má nefna Kristen
Wideen sem hefur kennt í
leikskóla og upp í sjötta bekk.
Wideen er hætt að kenna
og einbeitir sér nú að fyrir-
lestrahaldi. Hún heldur úti
öflugu bloggi sem fróðlegt er
að lesa. Annar áhugaverður
fræðimaður er Kyle Pearce
sem bloggar um stærðfræði
og vísindi með notkun Ipad
að leiðarljósi. Það er kostn-
aðarsamt að sækja
ráðstefnuna en
þeir sem vilja
fylgjast með úr
fjarlægð ættu að
skoða #ettipad á Twitter
en þar deila aðstandendur ráð-
stefnunnar ýmsum hugmynd-
um og fróðleik.
MYNDLISTARKENNSLAN
FRÁ ÝMSUM HLIÐUM
Kennarar koma saman í mörg-
um skemmtilegum hópum á
Facebook. Einn slíkur er hóp-
ur myndlistarkennara og kall-
ast einfaldlega Myndlistar-
kennsla. Þar kennir ýmissa
grasa, kennarar spjalla um
praktískt mál kennslunnar og
deila sniðugum hugmyndum.