Gerðir kirkjuþings - 2010, Side 156
156
III. Námskrá fermingarfræðslunnar
Markmið
Námskráin er ætluð sem rammanámskrá þannig að söfnuðir geti útfært hana nánar
með hliðsjón af aðstæðum á hverjum stað. Námskráin leiðbeinir um hvernig
heppilegast sé að skipuleggja, standa að og meta fermingarstörfin.
Meginmarkmið fermingarfræðslunnar er að:
styrkja trú fermingarbarnsins á hinn þríeina Guð sem það var helgað í skírninni og
styrkja trúarvitund þess og að það vaxi í kærleika til náungans og lifi í bæn og
samfélagi safnaðarins.
Meginmarkmiðið tekur mið af skírninni og þeirri fræðsluskyldu sem hún leggur á
herðar fjölskyldu barnsins, skírnarvottum og söfnuði og kemur skýrt fram í
kristniboðsskipunni og tvöfalda kærleiksboðinu.
„Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og
jörðu. Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður og sonar
og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er
með yður alla daga allt til enda veraldar.“ (Matt. 28:18-20.)
Jesús svaraði: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni,
öllum mætti þínum og öllum huga þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig.“ (Lúk.
10:27.)
Markmið með fermingarfræðslunni er:
– að fermingarbarnið læri að þekkja Guð sem Skapara og að það upplifi sig sem
einstakt sköpunarverk og hluta af Guðs góðu sköpun.
– að fermingarbarnið þekki boðskap Jesú Krists, og því verði ljós merking
fórnardauða hans og upprisu.
– að fermingarbarnið læri að þekkja Guð sem heilagan Anda, sem vinnur sitt verk í
kirkjunni gegnum orðið og sakramentin og skapar trú og kærleika til annarra.
– að fermingarbarnið læri og upplifi að í bæninni og í guðþjónustunni er það frammi
fyrir augliti Guðs.
– að fermingarbarnið leiti svara við mikilvægum spurningum varðandi líf þess og
tilveru og fái stuðning til að vaxa sem kristinn einstaklingur.
– að fermingarbarnið sjái það sem það hefur lært í stærra samhengi og fái hjálp við að
lifa sem kristinn manneskja, í sátt við sig sjálft, Guð og samferðafólk sitt.
– að yfirfæra orðið inn í lífsaðstæður unglingsins á einfaldan hátt.
1. Fermingarfræðslan
Leiðarljós námskrárinnar er að vekja, kenna og virkja. Finna þarf ólíkar leiðir í
fræðslunni til að virkja fermingarbörnin. Það er því mikilvægt að beita fjölbreyttum
aðferðum í fræðslunni og tengja hana við reynslu og líf unglingsins.
Í gegnum fræðsluna skilur unglingurinn betur hvað trúin felur í sér og hver sá Guð er
sem er hornsteinn trúarinnar. Til að unglingurinn tileinki sér viðfangsefni fræðslunnar
er mikilvægt að hann verði virkur og vinni ólík verkefni, taki þátt í samræðum og
spyrji spurninga sem brenna á honum í gegnum alla fræðsluna. Unglingurinn þarf því
að vinna með viðfangsefnið einn eða í hópi.
Í fræðslunni (virkja, vekja, kenna) tengir unglingurinn nýtt efni því sem áður hefur
verið lært. Hins vegar hefur það sem áður var lært áhrif á það hvernig hin nýja
þekking er túlkuð og skilin. Það er síðan Guð sem gegnum sitt orð vekur trú og
kærleika hjá einstaklingnum. Í fermingarfræðslunni er því mikilvægt að unglingurinn
upplifi nærveru Guðs, og að hann finni leið inn í söfnuðinn og guðþjónustu hans.