Félagsbréf - 01.03.1961, Side 17
félagsbréf
7
starfsemin i islenzkum frœðum i dag fer fram i Kaupmannahöfn
við stofnun Árna Magnússonar, reyndar meira og minna unnin
af íslendingum þar, en kostuð af öðrum aðilum. Verður að játa,
að vér stöndum ekki sem bezt að vigi að krefjast handritanna,
meðan svo er.
En jafnvel þótt íslendingar vceru ánœgðir með þá skipan mála,
er Ijóst, að starfsemi Árna Magnússonar stofnunar er ekki nærri
nóg. Óleyst verkefni i islenzkum frceðum eru geigvcenlega mörg.
Vér eigum enga menningarsögu, enga viðhlitandi bókmenntasögu
yfir allt timabilið, enga viðhlítandi íslandssögu yfir allt tima-
bilið, svo að eitthvað sé talið af þvi, sem að almenningi snýr, og er
óliklegt, að nokkur menningarþjóð i nánd við oss sé jafn illa á
vegi stödd að þessu leyti. En skyldu margir gera sér grein fyrir,
að i raun og veru skortir undirstöðurannsóknir á ýmsum sviðum
til þess að vinnandi vegur sé að semja þessi verk. Er ólíklegt, að
stofnun Árna Magnússonar bceti úr því á nœstunni, þó að hún
starfi allmyndarlega, enda ekki víst, að sumir íslendingar kœri sig
um þá aðferð, án þess að vér hér heima eigum nokkurn hlut að.
Vér stcerum oss af mikilli bókaútgáfu og bóklestri og það með
réttu. Vér stcerum oss einnig af alþýðumenningu og allgóðu skóla-
kerfi og það einnig með réttu. Vér getum stcert oss af rikisútgáfu
námsbóka, meir að segja rikisútgáfu skáldsagna- og skemmtibóka,
eins og Rússinn, ef það er þá eitthvað til að stcera sig af. En vér
getum ekki stcert oss af rikisútgáfu visindarita né annarra undir-
stöðurita í islenzkum frceðum — frœðaþjóðin sjálf.
Nú má ekki taka munninn of fullan. íslenzk frceði eru svo sem
langt frá því að vera óplcegður akur. Fornritahandrit vor mega heita
vel rannsökuð og einnig sumt i siðari tima fræðum, og hafa nokkrir
íslendingar orðið viðkunnir afreksmenn á þessu sviði, og sumir
útlendingar hafa þar einnig stóruel gert. En þeir íslendingar, sem
að þessu hafa unnið, hafa flestir gert það i hjáverkum, oftast sam-
fara einhvers konar kennslu. En vegna peningaóreiðu siðari ára
eru þessi störf nú orðin svo lágt greidd, að fræðimennirnir geta
ekki tekið þau að sér lengur, þó að i hjáverkum sé. Er auðséð, að
hér þarf úrbóta við.