Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 40

Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 40
30 FÉLAGSBRÉF þótt undarlegt megi virðast, tilfinningu tugmilljóna fyrir mannúð og mann- helgi. Það var sem heimurinn hefði færzt aftur á bak og þokazt inn í skugga liðinna ógnaralda. Því var það, að fegurðin varð að víkja úr há- sæti á vettvangi lista og bókmennta, og mörgum hinum hjartaheitustu og viðkvæmustu hugsjóna- og listamönnum varð vandleitað fróunar og örvunar til nýrrar sóknar. Fjölda slíkra manna varð það fyrir að vænta góðs af hinni blóðugu rússnesku byltingu. Enn einu sinni kom það upp á í verald- arsögunni, að grimmd, harðstjórn og ófrelsi var afsakað með hinni örlög- þrungnu setningu, sem mundi eitt hið bitrasta vopn myrkrahöfðingjans: oð tilgangurinn helgi tœkin. Sjálfir játendur friðar, réttlætis og bræðralags töldu sér trú um, að innan skamms viki eymd og hungur, ofbeldi, rétt- leysi og harðstjórn í hinum víðáttumiklu og mannmörgu Ráðstjórnarríkjum fyrir öllu því, sem fegurst hafði verið hugsað og dreymt: Þar risi upp blómlegt ríki allsnægta, réttlætis, jafnaðar, mannhelgi og alhliða menn- ingar, eins konar jarðnesk uppfylling paradísardrauma mannkynsins —■ halelúja! Þróun mála í hinum vestræna heimi var og ekki glæsileg. í Þýzkalandi stundi hin dugmikla þjóð undir oki ofurhárra stríðsskaðabóta og sá engar horfur á því, að okinu mundi af henni létt. Þar þróaðist því annars vegar kommúnismi, hins vegar nazismi, og þaðan bárust sýklar beggja þessara öfgastefna víðs vegar um lönd. Á Ítalíu ríkti, þrátt fyrir svokallaðan sigur í styrjöldinni, stjórnmálalegt, fjárhagslegt og atvinnulegt öngþveiti, og þar blómgaðist fasismi og kommúnismi hlið við hlið, en eftir fá ár náði fasisminn þar öllum tökum. í Frakklandi, Bretlandi og Bandaríkjun- um voru við völd úrræðalitlir og lítilsigldir meðalmenn, sem létu að mestu reka á reiðanum, unz svo var komið, að fjárhags- og atvinnukreppa skall yfir Vesturlönd, þar sem var blómi hinnar húmanistísku veraldar. Kreppan gaf kommúnistum og nazistum byr í seglin. í Þýzkalandi og fleiri lönduin Evrópu varð nazisminn ofan á — og um leið fékk hinn alþjóðlegi komrn- únismi í hendur hræðu, sem hann notaði óspart sér til framdráttar, og áróðrinum var stjórnað frá Moskvu, sem varð nú í margra augum hið eina hugsanlega vígi gegn ægisókn brúnstakkaðra stormsveita hins vestræna einræðis. Hér á íslandi olli styrjöldin ekki jafnmikilli röskun og víða annars staðar, en hún stöðvaði þó hina farsælu þróun atvinnulífsins. Að henni lokinni ríkti hér ekki annað eins örvæni og víðast á Vesturlöndum, en
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.