Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 44

Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 44
34 FÉLAGSBRÉF stæðu svo nærri honum, að von gæti verið um, að þeir fengju skrifað og ort sitthvað, sem hefði í sér fólgin einhver sannleikskorn, og ennfremur var ýtt við ýmsum íslenzkum höfundum, ýmist laðað eða ógnað, ekki óvægilega, en þó svo, að það skildist. Samfara hinum bókmenntalega áróðri í Rau'ðum pennum og síðar Tímariti Máls og Menningar var svo haldið uppi hóflausu skjalli um Ráðstjórnarríkin og allt, sem rússneskt er, og um leið hrópað á sam- fylkingu gegn nazisma og fasisma, hinum mikla voða veraldar. Frá Ráð- stjórnarríkjunum stafaði auðvitað enginn háski, — þau höfðu einmitt gengið í Þjóðabandalagið til verndar smáríkjunum og fordæmdu gersam- lega alla landránspólitík, kjörorð þeirra var að sögn Kristins Andrés- sonar í Rauðum pennum: „Vér ásœlumst ekki fet af landi annarra, en látum ekki spönn af voru eigin landi.“ Þórbergur skrifaði RauSu hættuna og Laxness Gerzka œvintýrið, báðir að loknum boðsferðum til Rússíá, og fjöldi manna, sem boðið hafði verið austur í Paradís, launaði með greinum og fyrirlestrum. 1 Rússlandi var ekkert atvinnuleysi — og framfarirnar, do, do, ná, ná! — annað eins ekki til á byggðu bóli. Jafnvel rússnesk kúabú og vöggustofur tókst að gera að hreinum veraldarundrum í augum fjölda manns, já, segja mætti með nokkrum sanni, að þegar sumir hafi til lofts litið á heiðriku vetrar- kvöldi, hafi stjörnurnar breytzt í rússneskar kýr og tarfa, sem gengu þar að grasi á blessaðri festingunni — og fjósakonur og barnfóstrur, sem spásseruðu glaðar í geði, paradísarsælar, til starfa sinna í fjósum og vöggu- stofum ráðstjómar-himin-hnatta. ... Skáld ortu lofkvæði, og mun slíkur skáldskapur hafa náð hámarki sínu í kvæði Jóhannesar skálds úr Kötlum um sálugan Stalín, fátæka drenginn, sem lallaði að heiman með geitarost í lúkunni, en sat, þegar hér var komið, með hnöttinn okkar í hendinni eins og ríkisepli — a-ba-ba-ra-ra-ta! og bomm, bomm, bomm! Nú skyldu ungir menn, sem ekki muna þennan tíma, ætla, að gegn þess- um áróðri, þessum blekkingavaðli, þessu tungutaki tal- og ritvéla með holdi og blóði og skynsemi, sjón og heyrn og öllu, sem manneskjunni er af Guði gefið, hefðu risið einhverjir af helztu mönnum hinna stóru og voldugu andstöðuflokka kommúnista á þessu landi — eða að minnsta kosti menn, sem samkvæmt embætti mættu teljast skyldir til að vernda heilbrigða ís' lenzka menningarþróun ? En nei, nei, það var engu líkara en stjórnmála-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.