Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 60

Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 60
50 FÉLAGSBRÉF fornar slóðir til að ná til ástmeyjar sinnar, sem hann hefur áður sýkt af kynsjúkdómi. Bróðir stúlkunnar og faðir hóta að gelda hann, ef hann hypji sig ekki burt úr borginni. Ungi maðurinn skeytir því engu, hann þráir að lifa upp aftur æskuást sína, reynir að beita öllum ráðum til að fá stúlkuna til að trúa á sig á ný, læzt vera eftirsótt kvikmyndahetja, en stúlkunnar er gætt og þau hittast aldrei ein. Leikritinu lýkur með því, að bróðir stúlkunnar og aðrir þrjótar með honum ná unga manninum til aö framkvæma verknað sinn, en hann reynir ekki að forða sér, hann hefur í rauninni glatað lönguninni til að lifa. Hann er með sama markinu brennd- ur og margar aðrar persónur Williams, það er enginn baráttuhugur í þeim, þær eru á flótta, i molum eins og Blanche, þegar hún leitar ásjár hjá systur sinni. Á það hefur verið bent, að þessar persónur Tennessee Williams séu alls ekki tragiskar í réttum skilningi, þar sem þær hafa beðið ósigur, áður en þær koma fram á sviðinu E.t.v. er hamleikur þeirra þó fyrst og fremst harmleikur þeirrar menningar, sem skóp og mótaði þau og kastaði þeim síðan á glæ, þegar þverbrestirnir koma í ljós. Menning Suðurríkjanna hefur aldrei borið sitt barr siðan þrælastríöinu lauk fyrir um það bil hundrað árum. Tennessee Williams er Suöurríkjamaður fæddur 1914. Átti hann viö mikla vanheilsu að stríða í bernsku og sökkti sér þá í lestur bóka. Kven- þjóðin á heimilinu dekraði við hann á alla lund og hann var mjög háður þeim, sérstaklega ömmu sinni, og forðaöist jafnaldra sína. Var honum mikiÖ strítt á þeim árum og kallaður stelpustrákur, jafnvel faðir hans gat stundum ekki á sér setið og kallað hann fröken Nancy. Svartsýni og þung- lyndi hefur sótt á hann, og hann hefur leitað til sálfræðinga eins og William Inge og reynt að fá bót meina sinna. Tennessee Williams er bæði mikilhæfur og mikilvirkur höfundur, alls hafa um tíu leikrit verið sýnd eftir hann á Broadway og af þeim hefur A Streetcar Named Disere hlotiÖ mesta frægð og aðsókn, var sýnt í 855 skipti. Marlon Brando lék í því á móti Vivien Leigh og varð á svipstundu þjóðfrægur. — Tennessee Williams hefur stundum verið sakaður um a® laðast óþarflega að ofsa og ofbeldi í leikritum sínum, en Williams, sem er hægur og ljúfur maður í dagfari, segir, að fólk mlsskilji þett*» hann sé einmitt að mótmæla ofbeldi með því að draga þaö fram og sýna þa^- Aöspurður um vinnubrögð sín segist hann skrifa að jafnaði nokkuð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.