Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 62

Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 62
52 FÉLAGSBRÉF Svo er líka hitt, að auglýsendur reyna helzt að flytja það efni, sem fólk er fíknast í, myndir af bardögum við Indíána eða bófamyndir úr skugga- hverfum stórborganna, en reyna síður að bæta smekk fólksins. Það gæti orðið til þess, að fólk hætti að horfa á þá útsendingu. í New York og nágrenni eru 13 sjónvarpsstöðvar, og flytur sú þrettánda langvaldasta efnið. T.d. flytur sú stöð' vikulega leikrit, þessa dagana (í miðjum nóvember) er verið að sýna The Icemans Cometh eftir Evgene Ó’Neille. En svo ég víki aftur að Tad Mosel, þá hefur þetta fyrrnefnda leikrit hans fengið misjafna dóma, t.d. í Boston; hann fær lof fyrir einstök atriði í leikritinu, næmi og fínleik, en í heild þykir það bresta dramatíska bygg- ingu. Það fjallar um viðbrögð eiginkonu, barns og skyldmenna við dauða- slysi eiginmanns. Unga konan er í forgrunninum, en barn, gamalmenni og dauðinn í baksýn. Að lokum get ég ekki látið hjá líða að minna á einn fremsta leikstjóra Bandaríkjanna, en það er Elia Kazan. Hann er fæddur í Constantinopel í Tyrklandi 1909, stundaði nám við School of Drama við Yaleháskóla og hefur sett á svið mörg helztu verk þeirra Tennessee Williams, Arthur Millers og William Inge. Haun hefur líka getið sér mikið orð í kvikmynda- gerð, en þekktustu kvikmyndir lians eru Vivazapeta, On The Waterfron og East of Eden. Það er athyglisvert við iill leikritaskáld, að þau eru háskólagengin. Þetta er ólikt því sem er í Englandi, en þar er hin nýja kynslóð leikritaskálda með John Osborne í fararbroddi óháskólagengin að John Arden einum undanskildum. í Bandaríkjunum er mikið af skólum við háskóla, sem kenna leikritun, leikstjórn, leik og allt annað, er lýtur að leiklist, í Bretlandi er enginn tilsvarandi skóli við háskóla nema í Bristol. Nú á síðustu árum hefur Royal Court leikhúsið í Lundúnum tekið að sér að uppfóstra upprennandi leiklistarfólk og árangurinn hefur orðið miklu ríkulegri en nokkurn gat órað fyrir. Brezk leikritun hefur risið úr öskustónni í heillandi og nýslárlegum klæðum. Ótvíræðasti vottur þess er, að þessar vikurnar er verið að sýna tvö leikrit frá Lundúnum eftir nýú fólk, A Taste Of Honey og The IJostage og ganga bæði við mikla aðsókn* Yale 20. nóvember 1960.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.