Félagsbréf - 01.03.1961, Side 18
8
FÉLAGSBRÉF
fStofnun Jdns Si^urðKsoiiar
Ungur jrœðimaður, Þórhallur Vilmundarson, kom fram með
merka hugmynd áhrœrandi þetta mál i erindi, sem hann hélt i há-
tiðasal háskólans hinn 1. des. i vetur. Birtist það siðan i Lesbók
Morgunblaðsins 22. janúar. Lagði Þórhallur Vilmundarson til,.að
17. júni n. k., á 150 ára afmœli Jóns Sigurðssonar og 50 ára afmæli
Háskóla íslands, verði komið upp stofnun, sem beri nafn Jóns
Sigurðssonar og sinni eingöngu visindalegu starfi i þágu islenzkra
fræða. Verði hún hliðstæð við stofnun Árna Magnússonar.
Til þess að slik stofnun komist upp þarf fé, og það yrði ekki
fengið annars staðar en hjá hinu islenzka riki. Það er þvi á valdi
stjórnenda þess, hvort þessi hugmynd verður að veruleika eða
ekki. En ef hún yrði að veruleika og vel yrði að hinni nýju stofnun
búið, væri líka fengið það, sem um er beðið og islenzk fræði eru i
þörf fyrir. Ekki mundi fræðimennina skorta, þá eigum vér marga
og góða.
Vér trúum eigi öðru en islenzk stjórnarvöld taki þessa hugmynd
Þórhalls Vilmundarsonar til jákvæðrar ihugunar. Þau hafa sýnt,
að þau vilja hlúa að menningu þjóðarinnar eftir megni. Og þvi þá
ekki að kosta kapps um, að undirstaðan sé sem traustust, en það
er einmitt undirstaða islenzkrar menningar, sem sofnun Jóns Sig-
urðssonar er ætlað að treysta.