Félagsbréf - 01.03.1961, Síða 61
félagsbréf
S1
stöðugt, en j)ó séu aSeins fáeinir dagar á ári sem hann geti sagt, að hann
sé verulega vel fyrir kallaður til skrifta, enda er það á þeim stundum,
sem leikritin verða til, hinn tíminn sé í rauninni ekki til annars en að
halda sér í æfingu.
Á seinasta leikriti hans á Broadway eru nýhafnar sýningar, það heitir
Period of Adjustment, alvarlegur gamanleikur um nýgift hjón, sem hafa
enga kynferðisreynslu og geta ekki samstillzt, en tekst það þó að lokum
fyrir góð orð vinar brúðgumans, sem sjálfur hefur átt í áþekkum erfið-
leikum. Eru ýmisleg kátleg atvik í leikritinu, en þó er það heldur veiga-
b'tið samanborið við ýmis önnur leikrit hans. Blaðadómar hafa þó verið
fremur vinsamlegir og Walter Kerr t.d. tekið því vel.
í vor er von á einu nýju leikriti eftir Tennessee Williams, það er harm-
leikur sótt í þjóðsagnaefni Indíánanna og heitir The Night of The Iguana.
Williams segist langa mest til að skrifa leikrit í stíl grískra harmleika,
þar sem söguhetjan komi hreinsuð og upphafin úr eldskírninni, „Catharsis.“
Seinasta leikritið, sem ég ætla að minnast á, er enn ekki farið að sýna
á Broadway, en verður frumsýnt í byrjun desember. Ég sá það á „Try out“ í
New Haven. Það heitir All The Way Home eftir Tad Mosel byggt á skáld-
sögu eftir Pulitzverðlaunahöfundinn James Agee.
Þetta er fyrsta leikrit Mosels á Broadway, en hann er einn kunnasti sjón-
varpsþáttahöfundur hér.
Tad Mosel er fæddur 1922 og stundaði nám við School of Drama við
Yale háskólann. Sum af sjónvarpsleikritum hans hafa verið gefin út svo
sem Other People’s House og Six Television Plays 1956.
Mosel velur sér verkefni úr daglegu lífi millistéttarfólks, lýsir oft einstæö-
mgum, sérstaklega gömlu fólki, og hefur mikla samúð með því og þeirri
raun að verða gamall og einmana. í leikritum hans eru sjaldan mikil átök,
honum tekst oft að láta fólk lýsa sér eftirminnilega í smáatvikum.
Þó að Mosel hafi skrifað mikið fyrir sjónvarp, hefur hann margt út á
það að setja, eins og það er rekið hérna vestra. Af siðferðisástæðum er
ýmiss konar efni bannað, en auk þess kemur líka mjög til greina sjónar-
^aið þess fyrirtækis eða fyrirtækja sem kosta útsendinguna.
Sjónvarpsstöövarnar eru kostaðar af einkafyrirtækjum, sem reka þær í
auglýsingaskyni. Þannig eru útsendingar stöðugt rofnar með alls konar
Þlkynningum og auglýsingabrellum. Getur það verið mjög hvimleitt, þegar
Verið er að senda út gott efni.