Félagsbréf - 01.03.1961, Page 63
BÆKUR
Jökull Jakobsson:
Dyr standa opnar.
225 bls. Almenna bókafélagið,
bók mánaðarins — nóvember 1960.
Arið 1944 ákvað útgáfufyrirtæki eitt
í borginni Barcelona, sem nefnist
Destino, að efna til bókmenntaverðlauna
til iþess að heiðra minningu rithöfundar-
ins Eugenio Nadal, sem þá var nýlátinn.
Af einkennilegri tilviljun voru þessi verð-
laun fyrst veitt ungum kvenrithöfundi að
nafni Carmen Laforet, fyrir bók er bar
•tafnið Nada, sem þýðir nánast Ekki neitt.
Skáldsaga þessi felur ekki í sér neinn
s°guþráð, eða það sem á ensku er venju-
I^ga nefnt plot, með öðrum orðum hún
tafur enga sérstaka sögu að segja, ekk-
crt sérstakt á sér stað, eins og raunar er
mJng viðeigandi fyrir þá skáldsögu, sem
'ler þennan titil. Verkið er aðeins flokk-
,lr sundurlausra frásagna úr lífi heimspeki-
s,udents nokkurs, sem býr hjá fátækum
u'ttingjum sínum í Barcelona.
f allmerkilegri grein, sem út kom fyrir
n°kkru, gerir spænska skáldið og rit-
I'ófundurinn Mariano García þetta bók-
mcnntalega fyrirbrigði að umtalsefni, og
Se6ir þar meðal annars: „Vera má að
stjórnendur útgáfufyrirtækisins Destino
hafi vonazt til þess, að með því að krýna
hinn unga höfund lárviðarsveig þessara
nýju verðlauna, hafi þeir verið að styðja
nútíma skáldsagnagerð spænska til vegs
og virðingar eftir martröð og hrunarúst
borgarastyrjaldarinnar. Það sem þeir á
hinn bóginn gerðu var að vígja nýjan
stíl og nýja stefnu í skáldsagnagerð, sem
í raun og sannleika er verðug þeirrar
nafnbótar, sem titill bókar hans ber, en
þessi háttur skáldsagnagerðar einkennist af
hneigð höfundarins til að skapa sögu, sem
á sér engan tilgang og enga fyrirfram
ákveðna uppistöðu, einkennist af alger-
um doða, og þessi stefna hefur allt frá
þessum tíma haft gjöreyðandi áhrif á
viðgang spænskrar skáldsagnagerðar sið-
ari ára.“
En því minnist ég á þetta hér, að nýj-
asta skáldsaga hins unga íslenzka rit-
höfundar, Jökuls Jakobssonar, minnti mig
óþyrmilega á það spænska fyrirbrigði,
sem að framan getur. Dyr standa opnar,
sem var mánaðarbók Almenna bókafélags-
ins í nóvembermánuði 1960, er sem sé
ágætt dæmi um þessa tegund bókmennta.
í sögu Jökuls skeður lítið sem ekki neitt,
hann forðast meira að segja að gefa aðal-