Félagsbréf - 01.12.1963, Qupperneq 53
ísraelum og Aröbum og raunar öllum
lieinii.
Þessar lexíur áttu að vera sundur-
leitar, 'því að nemendurnir voru sjálf-
ir sundurleitir. Áður en réttarhaldið
hófst hafði Ben-Gurion útlistað þessar
lexíur í nokkrum greinum, sem ætlað
var að útskýra, hvers vegna Israel
hefði rænt sakborningnum. Þessi var
lexía allra þeirra sem ekki játuðu gyð-
ingatrú: „Við viljum sýna þjóðum
heims, hvernig nazistar myrtu millj-
ónir manna — þar sem þeir af til-
viljun voru Gyðingar, og milljón börn
— þar sem þau af tilviljun voru Gyð-
ingabörn.
Gyðingar í útlegðinni — Diaspora
— áttu að minnast þess, að Gyðing-
dómur hefði alltaf átt í höggi við
óvinveittan heim, „4.000 ára gamall,
með trúarafrekum sínum og siðgæðis-
viðleitni og vongleði um komu Messí-
asar,“ og hvernig Gyðingar hefðu
úrkynjazt, þar til þeir gengu til slátr-
unarinnar eins og sauðkindur; stofn-
un Gyðingaríkis ein hefði gert Gyð-
inga færa um að bera hönd fyrir höf-
uð sér eins og Israelar gerðu í frelsis-
stríðinu, í Súezævintýrinu og í næst-
um daglegum skærum meðfram hin-
um marghrjáðu landamærum Israels.
Og íbúar ísraels fengu einnig sína
lexíu: „Sú kynslóð ísraela sem vaxið
hefur úr grasi eftir blóðbaðið mikla/'
ætti á hættu að glata tengslum sínum
við Gyðinga og þar með eigin sögu.
„Nauðsyn ber til þess að æskan rnuni
örlög Gyðinga. Við viljum, að unga
fólkið þekki sorglegustu staðreyndir
sögu okkar.“
Ef þetta hefði verið eina réttlæt-
ing þess að leiða Eichmann fyrir dóm
í Jerúsalem hefði réttarhaldið farið
fyrir ofan garð og neðan í flestum
skilningi. Sumar voru lexíurnar óþarf-
ar, aðrar blátt áfram villandi. Gyð-
ingahatur hefur fengið á sig óorð fyrir
tilstilli Iditlers, ef til vill ekki um alla
framtíð, en sannarlega um sinn, og
þetta stafar ekki af því að Gyðingar
hafi skyndilega orðið hvers manns
hugljúfi, heldur því, svo vitnað sé í
Ben-Gurion sjálfan, að flestir hafa
„gert sér grein fyrir, að á okkar dög-
um er gasklefinn og sápuverksmiðjan
rökrétt afleiðing Gyðingahaturs.“
Alíka óþörf var lexían Gyðingum í
útlegð. Þeir þurftu naumast á að
halda óförum og dauða þriðjungs trú-
arbræðra sinna til að sannfærast um
fjandskap umheimsins. Ef Ben-Gurion
forsætisráðherra, sem er í raun réttri
þjóðarhöfðingi Gyðinga, ætlaði sér að
styrkja þessa „meðvitund Gyðinga,“
skjöplaðist lionum hrapallega; það
vill svo til, að breyting þessa hugs-
unarháttar er í rauninni ómissandi
forsenda fyrir fullveldi Israela, sem
sagt er að gert hafi Gyðinga að
fólki meðal fólks, þjóð meðal þjóða,
ríki meðal ríkja, og byggir tilveru
sína nú á fjölhyggju, þar sem ekki
stenzt lengur hin ævaforna og því
miður trúbundna tvískipting alls
mannfólks í Gyðinga og ekki-Gyðinga.
2 „Eichmann var venjulegur
maSur".
Sex geðlæknar lýstu því yfir, að
Eichmann væri „með fullri skynsemi“,
— „að minnsta kosti með meiri skvn-
semi en ég, eftir að ég hef rannsakað
FÉLAGSBRÉF 49