Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1876, Síða 14
1876
8
H endimarka sambandsins, má boeta aukagjaldi ofan á hinn reglulcga burðareyri; þó mA
aukagjald þetta ekki fara fram úr helming hins almenna sambandsburðareyris fyrir þess
konar hluti.
Ekki má nein sending af framannefndura hlutum vera þyngri en 250 grömm, ef það
eru sýnishorn af varningi eða snið, en 1000 grömm af öllu hinu.
Nú er ófullnœgt lögum þeim, tilskipunum og fyrirmælum, er tiltaka skildaga fyrir birt-
ingu og útbýtingu einhverra þeirra hluta, er nefndir eru ( þessari grein, og skal sljórn
hvers lands í sambandinu þá heimilt að láta slíka hluti óflutta og þeim óútbýtt um sfna
landareign.
5. g r e i n.
Hluti þá, er nefndir eru í 2. grein, má senda með fyrirgreiðslnbón.
Sjerhverja sending með fyrirgreiðslubón (ábyrgðarsending) skal fullborga undir fyrir
fram.
Burðareyrir undir sendingar með fyrirgreiðslubón er hinn sami og undir sendingar,
sem engin fyrirgreiðslubón stendur á.
Borgnnin undir fyrirgreiðslubónina og fyrir viðtökuskírteini má ekki fara fram úr
þeirri borgun, er tekin er við póstafgreiðslu innanlands þar, sem sendingin er upp runnin.
Nú glatast póstsending, sem fyrirgreiðslubón er rituð á,með öðrumhættien af völdum
náttúrunnar eða þess konar, og skal þá greiða þeim, er sent hefir, eða, ef sá óskar þess,
þeim, er sendingin á að fara til, 60 franka í skaðabœtur. Fje þetta greiðir sú póststjórn,
er land það liggur undir, er hluturinn hefir glatazt í, eða sem ræður fyrir sjóvegspóst-
ferð þeirri, er það heflr að borið á, það er að skilja: póststjórnin þar, er menn vita
síðast til hlutarins, nema svo sje, að póststjórn sú hafi aö landslögum enga ábyrgð á,
þótt póstsendingar innanlands, sem fyrirgreiðslubón stendur á, glatist.
Skaðabœtur þessar skulu greiðast svo fljótt, sem auðið er, og eigi siðar en að ári
liðou frá þeim degi, er þeirra er krafizt.
Fyrnt er yfir hverja skaðabótakröfu, ef hún er eigi hafin á 1 árs fresli, frá þvf er
póststjórninni var í'engin sendingin með fyrirgreiðslubóninni á.
6. g r e i n.
Ekki vcrður borgað undir sendingar fyrir fram öðruvísi en með póstmerkjum eða
póstmerkja-umslögum, þeim er gilda þar, sem sendingin er upp runnin.
Blöð og annað prentað mál, sem óborgað er undir fyrir fram eða ekki fullborgað,
verður látið óflult. Sje óborgað eða ekki fullborgað fyrir fram undir aðrar póstsendingar,
skal reikna sama burðareyri fyrir þær og sendibrjef, sem ekki er borgað undir fyrir fram,
þó að frá dregnu gildi póstmerkja-umslaga þeirra eða póstmerkja, er höfð hafa verið á
sendin^unni.
7. g r e i n.
Ekki verður tekið neitt aukaburðargjald fyrir endurafgreiðslu póstsendinga innan endi-
marka sambandsins.
því að eins, að svo beri undir, að innlend póstsending úr einu sambandslandinu eigi
sakir cndurafgreiðslu að komast í hendur einhvers annars lands í sambandinu, boetir
póststjórnin þar, sem sendingin á að lenda, við burðareyri sfnum innanlands.
8. g r e i n.
Embællisbrjcf um póstmálefni eru undanþegin burðargjaldi. Að þessu einu frá teknu
er ekki veitt nein undanþága frá burðargjaldi nje linun í því.