Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1876, Page 31
25
1876
sotli lögreglusljóri f skýrslu sinni frá G. marz skjrt frá, að hann þá liafl verið nýbúinn
að fá skýrslu um, að vottur liafi fundizt í einni kind, en að það liafi þólt óvíst,
hvort það hafl verið lifandi kláði.
í Kjósarhreppi fram fór almennt bað um sama leyti og ( Iíjalarneshreppi. Fyrir baðið
fannst kláði á 7 bœjum í 17 kindum alls, sem allar voru skornar; en við fyrstu skoðun
eptir baðið fannst kláði á 3 bœjum ( 15 kindum alls, og við aðra skoðun þar á eptir á
4 bœjum í 30 kindum alls; voru tvær af þeim skornar, en hinar teknar til lækninga, og
var allt það fje, sem gengið bafði saman við kindur þessar, síðan tvíbaðað. Við uæstu
skoðun þar á eptir varð ekki kláðavarl; en við nýja skoðun, erfram fór um árslokin, varð
vart við kláða á Iveim bœjum í sinni kindinni á hverjum boenum; var ljeð á þeim bæjum
síðan baðað. Við skoðun um miðjan janúarmánuð fannst kláði í einni kind; var bún tekin
til lækninga, og allt fjeð, er hún hafði gengið saman við, baðað. í miðjum janúarmánuði
ferðaðist dýralæknirinn eptir ósk lögreglustjórans lil Iíjósarhrepps og nokkurra annara
hreppa, til að grennslast eptir um ástandið þar sem fskyggilegasl þótti, og skýrði hann
amtinu frá 31. s. m. að ætla mætli, að kláðavottur sá, sem þar hafi fundizt, væri allækn-
aður. En í skýrslu sinni 6. marz getur hinn setti lögreglusljóri þess, að hann þá hafi
verið nýbúinn að fá vitncskju um, að kláði hafi á ný fundizt á einum bœ í breppnum.
í Pingvallasveit fór almcnn böðun fram í nóvembermánuði. Á undan baðinu hafði
fundizt ein kind með kláða, en eptir baðið tvœr kindur sín á hverjum bœ, og var síðan
fjeð á þessum hœjum baðuð á ný. Síðan hefir fjárkláðinn ekki gjört vart við sig í þess-
um hreppi.
í Grafningshreppi varð ekki kláðavart fyrstu vikurnar eptir rjettir, en samt var allt
fje þar tvisvar baðað á tímabilinu frá 18. okt. lil 5. nóvember. Við aðra og þriðju skoð-
un eplir böðin kom fram kláðavoltur á 6 bœjum í alls 7 kindum, og hefir allt fjeð á
þeim bœjum siðan verið tvíbaðað frá G. til 20. desembermánaðar. Við næslu skoðun, er
fram fór þar eptir, fannst enginn kláði 1 hreppnum, en við skoðun er fram fór 17—23.
janúar fannst þar 1 kind með kláða og hefir allt fjeð á þeim bœ síðan verið tvibaðað.
í Grímsneshreppi fannst í rjettunum kláði á 4 kindum, og við almenna skoðun f
hrcppnum 4.—12. okt. ennfremur í 3 kindum. Við skoðun slðast (sama mánuði fundust
ennfremur 7 kindur með kllða á 3 bœjum. Allar þær kindur, sem kláðinn hafði komið
fram í, voru skornar og fjeð allt tvíbaðað á 4 bœjum þar sem kláðavart hafði orðið; þar
að auki fram fór almenn böðun á öllu fje ( hreppnum í byrjun nóvembermánaðar. Við
3 eplirfylgjandi skoðanir varð kláðavart á 9 bœjum, alls í 11 kindum; voru kláðakindurnar
skornar, en fjárhópar þeir, er þær fundust í, tvíbaðaðir. I*ar eptir hafði síðast í desem-
bermánuði fundizt kláði á einum boe í hreppnum, og eptir nýár vottur í tveim kindum,
sinni á hverjum bœ. Var fjeð á þessum bœjum tvíbaðað. Síðan hafði 19. febr. kláða-
blettur fundist í tveim lömbum á einum bœ, og var allt fje þar þareptir baðað einusinni,
og átti að baða það ( annað sinn um það leyti hin siðasta skýrsla lögreglustjórans var
scnd amtinu.
I Ölveshrcppi fannst kláði cptir rjetlir f 7 kiudum á 3 bœjum. Um október og nóvember-
mánaða mól var alll fjeð í hreppnum baðað. Við tvær eplirfylgjandi skoðanir fannst enginn
kláði í hreppnum, en þó var til tryggingar ný almenn böðun framkvæmd. Við tvær næstu
skoðanir fannst enn enginn kláði í hreppnum, en við skoðun í fyrra hluta janúarmánaðar
l'annst blcltur ( einni kind á stærð við fingurgóm, og kom mönnum saman um, að það
væri kláði, kindin var skoriu og allt fje á bœnum og annað fje, er hún hafði haft sam-
göngur við, baðað.
17
1G. marz.