Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1876, Side 108
1876
102
145
26. sopt.
44«
26. okt.
sauðfje, er lengi og einkum árið sem leið heflr gengið í ýmsum hjeruðum i suðurum-
dœminu á tjeðu Voru landi íslandi, sje að fullu útrýmt, og að, ef nauðsynlegt yrði að
gjöra frekari ráðstafanir frá hálfu valdstjórnarinnar gegn sýkinni, muni hagkvæmt, að þeim
yrði alstaðar framfylgt með samskonar aðferð og jafnframt með meira fylgi, en hinir reglulegu
lögreglustjórar munu fá við komið, sakir annara starfa þeirra; þá er það allrahæztur vilji
Vor og boð, að þú búist til að takast þetta hlutverk á hendur, þannig að þjer veitist vald
til að gegna fyrst um sinn á sjálfs þín ábyrgð öllum þeim störfum, bæði dómarastörfum,
framkvæmdarslörfum og fógetastörfum, snertandi fjárkláðasýkina, bæði í þeim hjeruðum
suðurumdœmisins, er sýkinnar hefir vart orðið að undanförnu og hvar annarstaðar á ís-
landi, er kláði kann að koma upp eptirleiðis, sem ella mundu liggja á lögreglustjórum
þeim, er skipaðir eru I hlutaðeigandi hjeruð.
Með því verður Vor vilji. Felandi þig guði.
Ritað í hinum konunglega aðsetursstað Vorum.
Kaupmannahöfn, hinn 26. september 1876.
Eptir allramildustu boði Ilans Uátignar konungsins.
J. Nellemann.
(L. S.) ____________
E. Vestergaard.
Rcglugjörð
um brunamál í Eeyl'javílc.
1. gr.
í brunamálancfndinni er lögreglustjóri bœjarins, fyrirliði slökkviliðsins og 3 menn, er
bœjarstjórnin kýs lil þess úr sínum flokki. Lögreglustjóri er formaðnr nefudarinnar. llin-
ir kosnu nefndarmenn fara frá 3. hvert ár að afloknum venjulegum bœjarfulUrúa kosning-
um, og má þá endurkjósa. Fái hinir kosnu menn forföll að gegna starfa sínum, kýs bœj-
arstjórnin aðra í þeirra stað, ef þurfa þykir.
2. gr.
Hrunamálanefndin sjcr um framkvæmd og eptirlit á öllu því, sem fyrir er skipað í
lögum 15. oklóber 1875, og sem nákvæmar er ákveðið í þcssari reglugjörð, að þvl leyti
scm slíkt ekki ber beinlfnis undir lögreglustjóra bœjarins eða slökkviliðsstjóra.
3. gr.
Á götum, stakkstæðum, torgnm eða annarstaðar á almanna fœri eða milli húsa cða í
görðum má eigi setja lausar eldstór eða hlóðir til þess að clda í, bræða lýsi eða tólg, eða
aðra eldnæma hluti, nema leyfl sje til þess veilt í hvert skipli fyrir sig af lögregjustjóra
og slökkviliðsstjóra, og tiltaka þeir þá allar þær varúðarreglur, er við þarf, svo sem hvern-
ig hlóðir sjeu liafðar, ef ekki er því lengra frá húsum, að ekki sje brennt öðru en kol-
um eða «kokes», svo og að ávallt sjeu menn við eidinn. Milli húsa eða úti við má ekki
bera eld nema í lokuðuin járnkössum.
4. gr.
Um hreinsun á reykháfum skal að öllu leyti farið eptir því, scm mælt er fyrir í 5. gr.
laga 15. oklóber 1875 og reglum þeim, cr um það eru sctlar af bœjarstjórninni.
5. gr.
Eldivið, sleinkol, mó og annað eldsneyti og eldflma hluti má ekki hafa úli nálægt
húsum,nema leyfl brunamálanefndarinnar sje til þcss fengið. Sjerstaklega er bannað að