Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1998, Side 20

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1998, Side 20
Áki „Aldeilis höfum við nú lifað tímana tvenna. Við höfum ekki aðeins lifað það að verð á neysluvörum hefur lækkað um allt að helming og í raun hlutfallslega mun meira en foreldrar okkar gátu gert sér í hugarlund á þeim tíma sem við vorum að alast upp í vestur- bænum, heldur höfum við orðið að sætta okkur við að hafa ekki hugmynd um hvað eru neysluvörur og hvað ekki.“ Þetta er það sem ég ímynda mér að Áki geti sagt. Bragi Ólafsson Ásdís Ásdís langamma vildi ekki láta skíra eftir sér, vissi eins og þjóðin öll að fjórðungi bregður til nafns. Ásdís var vansæl með hlut sinn- ar skepnu. Það sem fylgdi nafninu hennar vildi hún ekki leggja á litla dubbu. Yfir Ásdísi ömmu - eins og mamma kallaði hana - ungri, var sérkennilega fölleit fegurð en þó björt, eins og tunglskinsmjallar- birta yfir ásjónunni. Andlitið vel lagað, augun mild og skynug. Þar sem hún vildi ekki að bamadætur hennar væm skírðar eftir henni var ein skírð Aldís, sem var millivegur. Henni farnaðist vel, því það var miklu betra að vera öldungis dís en dís Ása eins fucked og heimurinn var fyrir stríð. Mamma greyið fékk ekki genetískt nafn. Hin amma hennar Oddný, var líka svona, lagði mikið bann við því að skírt væri eftir sér! Vildi eins og Ásdís langamma að dúllur fengju betri örlögum úthlutað en hún, svo mamma var skírð eftir dægurlagi - Erla. Mamma lagði löngu síðar Ásdísarörlögin á yngstu telpuna sína. Þá var haftatíð lokið og komið 1962 og konur með nýfengið svig- rúm til að vera Ása-dísir. Þórunn Valdimarsdóttir 18

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.