Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1998, Page 22

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1998, Page 22
Ásta Eina systir pabba hét Ásta. Yngsta systir mömmu heitir Ásta og Droplaug þar að auki og yngsta systir mín heitir Ásta. Linda Vilhjálmsdóttir Ásta Við búum í höll úr gulli, byggðri á kletti líkamlegrar fullnægju. Eftir notalegt morgunbað í kraumandi hvernum og vínberjatínslu á akrinum sem er rakur eftir nóttina, setjumst við að borði kræs- inga sem býður upp á óendanlega fjölbreytta samsetningu holds og ávaxta. Því segi ég, elsku vinkona, eins og alltaf þegar við seðjum þetta hungur við þetta borð: NJÓTUM, ÁSTA! Jnga Björk Ingadóttir Ásta Ásta og Ljósálfur búa í Vesturbænum. Þau eru síamstvíburar með naflastreng á milli sín sem þau vilja ekki klippa, ekki alveg strax. Hún eldar handa honum graut úr maismjöli og hann passar á henni hárið, að það verði ekki grátt og detti ekki af. Þau eru minnsta og samrýmdasta fjölskylda í heimi og ég er að hugsa um að kaupa handa þeim lopavettlinga svo að páskahretið bíti þau ekki í hnúana. Eva Ástríður Ef ég héti Ástríður þá myndi ég ganga alla daga í skósíðum kjól úr þungu, rauðu silki sem legðist þétt að líkamanum og ég myndi aldrei borða neitt nema ávexti. Ég myndi anda dýpra og örar en 20

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.