Ljóðormur - 01.06.1989, Page 21

Ljóðormur - 01.06.1989, Page 21
Þóra Elfa Bjömsson 19 Þóra Elfa Björnsson Svona var þaö Svöl áin stillt á eftir kúnum. Dalurinn þröngur tryggur. Vissa um dögun eftir nóttu. Til vinkonu minnar Mér er ekki sama um þig samt get ég ekki hringt og spurt uppúr þuiTu: Hvemig hefurðu það? Þú mátt kannski ekki vera að því að svara og hvemig geturðu vitað að mér sé alvara. Og sé ekki sama um þig. Æðri reikningur Fimir fingur tifa yfir reiknivélinni ungir hugir kætast yfir skekkju í uppgefnum svörum. Ekki er allt gott sem aðrir kveða. Og það rennur upp fyrir þeim seinna að svo lærir sem lifir og svörin verða margvísleg og ekki alltaf víst að hið uppgefna sé hið rétta.

x

Ljóðormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.