Ljóðormur - 01.06.1989, Blaðsíða 49

Ljóðormur - 01.06.1989, Blaðsíða 49
T. S. Eliot 47 fœra lesandann um ágæti viðhorfa höfundarins til einhvers málefnis. Slíkur fræðslukveðskapur nær því yfir stóran hluta af því sem kalla mætti háðsádeilu eða satíru, en satíra skar- ast að vissu leyti við ýkjuskáldskap og hermiljóð sem hafa það meginmarkmið að vekja glaðværð. Sum af kvæðum Drydens á sautjándu öld eru satírur í þeim skilningi að þau leitast við að hafa að athlægi það efni sem þau fást við, en einnig eru þau fræðandi í þeirri viðleitni sinni að vinna les- andann til fylgis við ákveðið pólitískt eða trúarlegt sjónar- mið. Jafnframt er notuð sú aðferð allegóríunnar að dulbúa raunveruleikann sem skáldskap: Merkasta kvæði Drydens af þessu tagi er Hindin og pardusinn en því er ætlað að sann- færa lesandann um að rétturinn haft verið Rómarkirkjunnar megin í deilunni við ensku kirkjuna. Drjúgur hluti af kvæð- um Shelleys, á nítjándu öld, er innblásinn af brennandi áhuga á félagslegum og pólitískum umbótum. Nú á dögum hefur leik-kveðskapur („dramatíc poetry“) að sínu leyti sérstakt félagslegt hlutverk. Flest ljóð á okkar tím- um eru ort í því augnarmiði að þau verði lesin í einrúmi eða lesin upp í fámennum hópi. Leikljóðum einum er ætlað það hlutverk að hafa tafarlaus hóp-áhiif á fjölda fólks sem safn- ast saman til að horfa á ímynduð atvik leikin á sviði. Leikljóð eru ólík öllum öðrum kveðskap, en þar sem sérstök lögmál þeirra eru undirseld leiklistínni, rennur hlutverk þeirra saman við leiklistina almennt og hér er ég ekki að fást við hið sérstaka félagslega hlutverk leiklistar. Ef fjalla ættí um sérlegt hlutverk heimspekilegs kveðskap- ar myndi það kalla á alllanga greiningu og sögulegt yfirlit. Ég hygg að ég hafi þegar getið nógu margra kveðskapaiieg- unda til að sýna fram á að sérlegt hlutverk hverrar tegundai' er skylt einhverju öðru hlutverki: Leik-kveðskapur leiklist- inni; fræðslukveðskapur sem miðlar upplýsingum er tengd- ur hlutverki yrkisefnisins; fi-æðslukvæði á sviði heimspeki, tnímála, stjómmála eða siðfræði eru tengd hlutverki þessai'a greina. Það mætti velta fyiir sér hlutverki sérhveirar þessara kveðskapai'tegunda og samt væri ósvarað spurningunni um hlutverk Ijóðlistar. Því að hægt er að fjalla um öll þessi efni í prósatexta. Aður en lengra er haldið langar mig að vísa á bug einum andmælum sem kunna að verða höfð í frammi. Fólk er stundum tortryggið gagnvart öllum skáldskap sem hefur sér- stakan tilgang, þ.e. ef skáldið mælir með ákveðnum félags- legum, siðferðilegum, pólitískum eða trúarlegum viðhorf-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ljóðormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.