Frón - 01.01.1944, Side 17

Frón - 01.01.1944, Side 17
Aldarfjórðungs sjálfstæði 11 upphafi margvíslegir erfiöleikar á að finna sameiginlegan grund- völl undir borgaralegan flokk. Flokkaskipting og stjórnmálabarátta næstu ára mótast greini- lega af byltingu þeirri á sviöi atvinnuveganna sem áÖan var drepið á. Á fyrstu þingunum eftir 1918 veröur þessa þó enn ekki vart að neinum mun. Stjórnmálastörfin snerust þá einkum um þær ráðstafanir sem nauðsynlegar voru til aö koma fótum undir fullveldiö út á viö sem inn á við, og um baráttuna við þá fjárhagserfiÖleika sem kreppuárin eftir stríðið höföu í för meö sér. Stjórnarskránni þurfti aö breyta í samræmi viö sambands- lögin, og var því komið í framkvæmd á þingunum 1919 og 1920. Hæstiréttur var settur á stofn 1920, og sama ár eignaðist ísland fyrsta fulltrúa sinn erlcndis, sendiherrann í Kaupmannahöfn. ViS stjórnarskrárbreytinguna var ekki tekiö annaö tillit til búsetubreytinga þjóöarinnar en aö þingmönnum Reykjavíkur var fjölgaö úr tveimur í fjóra, sem kosnir skyldu hlutbundnum kosningum. Aö tiltölu við kjósendafjölda var þetta vitanlega allt of lítiö (í Reykjavík bjó þá nálega Vs landsmanna); en fyrst um sinn höföu engir stærri flokkanna áhuga á neinni breytingu á úreltu kosningafyrirkomulagi. Hagsmunaandstæöur sveita og bæja voru enn ekki farnar aö koma fram í flokkaskiptingunni, nema aö því leyti að Framsóknarflokkurinn átti allan styrk sinn i sveitum, en einmitt þess vegna varði hann gömlu kjördæma- skipunina í lengstu lög, því aö enginn annar flokkur haföi hennar jafnmikil not. AlþýÖuflokkurinn átti hins vegar allt fylgi sitt í kaupstööum, en eignaöist í fyrsta sinn fulltrúa á þingi 1920. I’að var því ekki fyrr en Alþýðuflokknum var vaxinn fiskur um hrygg og myndaður var hægriflokkur scm átti meginstyrk sinn í kaupstöðum, aö nokkur skriöur komst á kjördæmamálið. Eftir að Framsóknarmenn höföu komizt til valda 1927 var þaö oröin lífsnauösyn Sjálfstæðismönnum aö fá kjördæmaskipuninni breytt, til þess aÖ stemma stigu fyrir einræði Framsóknarmanna. MeÖ tilstyrk Alþýðuflokksins var kosningalöggjöfinni breytt 1934, en þó í fyrstu ekki nema til hálfs. Lokasporið var ekki stigið fyrr en 1942. Þá en ekki fyrr var nokkurn veginn náö samræmi milli kjósendafjölda og þingmannatölu flokkanna. MeÖ þessum breytingum á kosningalögunum tókst flokki borgarastéttarinnar, Sjálfstæöisflokknum, aö vísu að halda þing- mannatölu sinni aÖ mestu óbreyttri, en áhrif flokksins í þinginu minnkuöu þó hlutfallslega, bæði vegna þess aö þingmönnum var

x

Frón

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.