Fréttablaðið - 13.08.2016, Síða 8
Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is
Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið: hildur@nmi.is
Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf
Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun
Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarr
Verkefni sem eru að stíga fyrstu skref á alþjóðamarkaði
Sérstök áhersla er lögð á
Umsóknarfrestur til kl. 12:00 á hádegi þann 8. september
Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum
sem hlotið gætu frekari ármögnun sjóða og árfesta
Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða
frumkvöðla og fyrirtækja
Markmið verkefnisins:
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir
eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til
atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til
nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða
starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
Á markað með
snjallt nýsköpunarverkefni?
Átak til atvinnusköpunar
StjórnSýSla Uppboðsfyrirkomulag
á úthlutun tollkvóta fyrir búvörur
gengur gegn hagsmunum neytenda,
brýtur gegn jafnræði innflytjenda
og eykur mjög á óvissu og ógegnsæi
á markaði. Þetta er meðal niður-
staðna í nýrri skýrslu sem Þórólfur
Matthíasson hagfræðiprófessor og
Örn Ágústsson hagfræðingur hafa
unnið að beiðni Félags atvinnurek-
enda (FA).
„Aðrar aðferðir til að úthluta toll-
kvótanum væru meira í anda Marra-
kesh-samkomulagsins sem Alþjóða-
viðskiptastofnunin WTO starfar
samkvæmt,“ segir í umfjöllun um
skýrsluna á vef FA, en efni hennar
var kynnt alþingismönnum á fundi
utanríkismálanefndar Alþingis í gær.
Í skýrslunni kemur fram að lang-
algengast sé að aðildarlönd WTO
úthluti leyfum til innflutnings land-
búnaðarvarnings innan tollkvóta
endurgjaldslaust. Íslensk stjórn-
völd og norsk skeri sig hins vegar frá
meginreglunni með því að notast við
uppboðsaðferð til að úthluta toll-
kvóta á landbúnaðarvörum.
„Framkvæmd uppboðanna stenst
líklega ekki jafnræðisreglu stjórnar-
skrárinnar því að ólíkir innflytjendur
sömu vöru standa frammi fyrir ólíku
kvótaverði. Sú aðferðafræði sem
stuðst er við við úthlutun tollkvóta
eykur mjög á óvissu og ógegnsæi á
markaðnum og getur dregið úr líkum
á að mögulegir innflutningsaðilar
leggi fram tilboð,“ segir í skýrslunni.
Fram kemur á vef FA að á fundi
utanríkismálanefndar hafi verið
fjallað um tollasamning Íslands og
Evrópusambandsins sem undirrit-
aður var í fyrrahaust, en hann bíði
staðfestingar þingsins.
„Í umsögn Félags atvinnurekenda
um samninginn er bent á að uppboð
á tollkvótum fyrir búvörur geri að
verkum að útboðsgjaldið, sem inn-
flutningsfyrirtæki þurfa að greiða
fyrir kvótana, éti upp ávinning neyt-
enda af tollfrelsinu að verulegu eða
jafnvel öllu leyti. Jafnframt þýði það
að samkeppni við innlendan land-
búnað sé minni en að var stefnt,“
segir þar og bent á að hæpið sé að
útboðsfyrirkomulagið standist
ákvæði í samningi Íslands og ESB,
þar sem segi að samningsaðilar skuli
„tryggja að ávinningnum, sem þeir
veita hvor öðrum, verði ekki stefnt í
hættu með öðrum takmarkandi inn-
flutningsráðstöfunum“.
Haft er eftir Ólafi Stephensen,
framkvæmdastjóra FA, að það séu
gagnkvæmir hagsmunir innflytj-
enda búvöru, neytenda og ríkisins
að fundið verði fyrirkomulag sem
tryggi sanngjarna og hagkvæma
úthlutun tollkvótanna. Samtökin
hafi beðið um skýrsluna sem innlegg
í umræður um hvernig finna mætti
slíka lausn. „Við höfum einnig sent
atvinnuveganefnd Alþingis skýrsl-
una og hvetjum þingið til að beita
sér fyrir breytingum á ákvæðum
búvörulaga um úthlutun tollkvóta,“
segir Ólafur. olikr@frettabladid.is
Stenst ekki jafnræðisreglu
Í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Félag atvinnurekenda er fyrirkomulag stjórnvalda við úthlutun tollkvóta
fyrir búvörur harðlega gagnrýnd. Aðferðin gangi gegn hagsmunum neytenda og brjóti á innflytjendum.
Í kjúklingasláturhúsi í Emsland í Þýskalandi. Í nýrri skýrslu kemur fram að Ísland
og Noregur skera sig úr öðrum Evrópuþjóðum með að nota uppboð til að úthluta
tollkvótum, sem annars staðar eru endurgjaldslausir. Fréttablaðið/ÓKÁ
[Við] hvetjum
þingið til að beita
sér fyrir breytingum á
ákvæðum búvörulaga um
úthlutun
tollkvóta.
Ólafur Stephensen
framkvæmdastjóri
Félags atvinnu
rekenda
ViðSkipti Aðsókn í kvikmyndahús
í Kína minnkaði um fimmtán pró-
sent í júlí, í kjölfar þess að hafa dreg-
ist saman um tíu prósent á öðrum
ársfjórðungi.
Á síðasta ári var gríðarlegur vöxt-
ur hjá kvikmyndahúsum í Kína, en
aðsókn jókst um fimmtíu prósent á
árinu 2015. BBC greinir frá því að nú
sé viðsnúningur og miðaverð hafi að
meðaltali ekki verið lægra í fimm ár.
Kvikmyndaaðsókn er talin mæli-
kvarði á efnahagslífið í Kína og
bendir þetta til þess að Kínverjar
séu að skera niður útgjöld vegna
efnahagslegs óstöðugleika.
Kína er annað stærsta hagkerfi
heimsins og hefur hagvöxtur dregist
saman þar undanfarin misseri. Sér-
fræðingar telja að hagvaxtartölur frá
kínverska ríkinu séu uppspuni, þess
vegna skoða þeir aðrar tölur eins og
orkunotkun og kvikmyndaaðsókn.
Kína er gríðarlega mikilvægur
kvikmyndamarkaður, aðsókn þar
er sú önnur mesta í heiminum og
búist er við því að þar verði fleiri
kvikmyndasalir og hærri tekjur af
kvikmyndum en í Bandaríkjunum
á næsta ári. Sem stendur eru 39
þúsund kvikmyndasalir í Banda-
ríkjunum en 31.627 í Kína. Niður-
sveiflan á þessu ári gæti þó hægt á
þeirri þróun. – sg
Aðsókn í kvikmyndahús
í Kína dregst saman
Stjórnmál Stjórn Viðreisnar aug-
lýsir eftir frambjóðendum á fram-
boðslista flokksins fyrir kosn-
ingarnar sem halda á 29. október
næstkomandi. Stilla á upp lista í
öllum kjördæmum landsins.
Tekið er fram að leitað sé að
kraftmiklum, jákvæðum, traustum
og heiðarlegum einstaklingum.
„Áhersla er lögð á að á framboðs-
listum Viðreisnar verði fólk með
fjölbreytta reynslu og þekkingu,“
segir í tilkynningu og tekið fram
að konum og körlum verði skipað
jafnt til sætis á framboðslistum
flokksins.
„Allt frjálslynt fólk sem er sam-
mála meginmarkmiðum flokksins
og vill taka þátt í að gera samfélagið
enn betra er velkomið í hópinn.
Stefna og áherslur Viðreisnar hafa
mótast í umræðu og vinnu í fjöl-
mennum málefnahópum undan-
farin tvö ár,“ segir þar jafnframt. – óká
Viðreisn býður
fram í öllum
kjör dæm um
Sem stendur eru 39 þúsund kvikmyndasalir í bandaríkjunum en 31.627 í Kína.
Fréttablaðið/GEtty
Bretland Karlmaður á þrítugsaldri
var í vikunni handtekinn fyrir að
reyna að klifra yfir öryggisgirðingu
við Buckingham-höll í London.
Karlmaðurinn, sem var drukkinn,
komst þó ekki inn fyrir girðinguna
og ekki er talið að hætta hafi stafað
af honum. Scotland Yard tók sér-
staklega fram að maðurinn tengdist
ekki hryðjuverkasamtökum.
Í maí síðastliðnum klifraði Denn-
is Hennessy, dæmdur morðingi, yfir
girðingu við höllina og gekk um
hallargarðinn í um tíu mínútur og
spurði öryggisvörð hvort drottning-
in væri heima. Var hann handtekinn
fyrir athæfið og dæmdur í fjögurra
mánaða fangelsi. – þea
Handtekinn við
klifur á girðingu
1 3 . á g ú S t 2 0 1 6 l a U g a r d a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
0
-B
7
F
8
1
A
4
0
-B
6
B
C
1
A
4
0
-B
5
8
0
1
A
4
0
-B
4
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K