Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 10
Allt á einum stað:
Sólarfilmur í miklu úrvali.
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda og strigaprentun.
Sandblástursfilmur.
Banner-up standar og harðspjöld.
GSM hulstur og margt fleira...
Xprent ehf - Sundaborg 1 - 104 Reykjavík - Sími 777-2700 - email: konni@xprent.is
Bílamerkingar
Límmiðar
Sandblásturs
filmur
Sólarfi
lmur
Sólarfilmur í miklu úrvali.
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda og strigaprentun.
Sandblástursfilmur.
Banner-up standar og harðspjöld.
GSM hulstur og margt fleira...
Sólarfilmur
Xprent er með lausnina fyrir bæði heimili og
fyrirtæki. Sólarfilmurnar eru frá SunTek og eru
til í mismunandi tegundum og styrkleikum.
Xprent ehf - Sundaborg 1 - 104 Reykjavík - Sími 777-2700 - email: konni@xprent.is
Sólarfilmur!
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
atvinnuleikhópa
Umsóknarfrestur til 30. september
Styrkir til
Leiklistarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til starfsemi
atvinnuleikhópa á árinu 2017. Veittir eru styrkir til einstakra
verkefna eða starfssamninga til tveggja ára.
Umsóknarfrestur er til kl. 17:00 þann 30. september 2016.
Umsóknum skal skilað rafrænt á www.rannis.is.
Einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn.
Athugið að umsókn um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa
getur einnig gilt sem umsókn til Listamannalauna ef
umsækjandi merkir við þar til gerðan reit í umsóknarformi.
Samkvæmt leiklistarlögum nr. 138/1998 skilar Leiklistarráð
tillögu til mennta- og menningarmálaráðuneytisins um
úthlutun fjár til stuðnings atvinnuleikhópum.
Nánari upplýsingar:
atvinnuleikhopar@rannis.is, www.rannis.is
Rannís, Borgartúni 30, 105 Reykjavík.
Tengiliður: Ragnhildur Zoëga,
sími: 515 5838.
Komið,prófið ogsannfærist !
Fyrstu heyrnartækin
sem taka eðlilegri heyrn
fram í háværu umhverfi
Siemens Pure binax eru fyrstu heyrnartæki
veraldar sem gera þér kleift að heyra betur
en fólk með eðlilega heyrn. Þessi nýju tæki
nota háþróaða binaural tækni sem dregur
sjálfvirkt fram einmitt það sem þú vilt
heyra en síar jafnframt burt eða
dempar þau óþarfa hljóð sem
þú vilt ekki heyra. Þú getur
einnig stefnumiðað
hlustunarsviði
tækjanna
og þannig beint hlustun þinni að einmitt
þeirri manneskju sem þú ræðir við hverju
sinni. Þannig gera tækin þér auðveldara
að halda uppi samræðum í háværu fjöl-
menni.
Rannsóknir sýna ennfremur að binax
tækin greina tal betur í hávaða en fólk
með eðlilega heyrn getur. Binax tækin
tengjast einnig snjallsímanum þínum
svo þú getur stjórnað styrk, hlustunar-
kerfum og fleiru í gegnum símann.
Siemens heyrnartækin
Söluaðili á Íslandi: Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Háaleitisbraut 1, s:5813855, www.hti.is
www.bestsound-technology.is
Taíland Ellefu sprengjuárásir voru
gerðar í fimm héruðum Taílands í
gær og fyrradag. Að minnsta kosti
fjórir hafa látið lífið og þá eru 34
alvarlega slasaðir. Enginn hefur lýst
yfir ábyrgð á árásunum ellefu og
ekki er víst að þær tengist.
Árásirnar voru gerðar á vinsæla
ferðamannabæi. Fjórar voru gerðar
á bæinn Hua Hin og tvær á eyna
Phuket. Einnig voru tvær árásir
gerðar á Phang-nga, sem og Surat
Thani, en ein á Trang.
Hua Hin er um 200 kílómetra
suður af höfuðborginni Bangkok og
Phuket enn sunnar. Staðirnir tveir,
líkt og Phang-nga, eru þekktir fyrir
fallegar strendur.
Lögregluyfirvöld hafa handtekið
nokkra menn sem liggja undir
grun en þau útiloka að alþjóðlegir
hryðjuverkahópar standi að baki
árásunum. Frá þessu greinir frétta-
stofa BBC. Talsmaður ríkislögreglu
Taílands segir sumar sprengjanna
hafa verið eldsprengjur.
Fréttamaður BBC í Taílandi,
Jonathan Head, segir að uppreisnar-
menn gætu staðið að baki árás-
unum. Ef svo væri myndi það þýða
nýja aðferðafræði þeirra við árásir.
Uppreisnarmenn hafa síðastliðin
tólf ár kljáðst við yfirvöld í suður-
hluta Taílands og drepið um sex
þúsund manns. Þó hafi árásir þeirra
aldrei beinst gegn ferðamönnum
líkt og nú.
„Þessar árásir eru frábrugðnar
þeim hryðjuverkaárásum sem áður
hafa verið gerðar í Taílandi,“ sagði
Piyapan Pingmuang, talsmaður
lögreglu, á blaðamannafundi í gær.
Hann sagði ástæðuna vera þá að
árásirnar beindust ekki gegn opin-
berum stofnunum.
Býst hann við því að Hua Hin hafi
orðið fyrir árásum þar sem borgin er
uppáhaldsborg konungs Taílands,
Bhumibol Adulyadej. Þar sé sumar-
bústaður hans, Klai Kangwon-höll.
Þá var gærdagurinn einnig afmælis-
dagur drottningarinnar, Sirikit
Kitiyakara.
Einnig voru árásirnar gerðar
aðeins nokkrum dögum fyrir árs-
afmæli árásarinnar á Erawan-hofið.
Þar fórust tuttugu manns.
Taílendingar kusu um nýja
stjórnar skrá fyrir viku. Ný stjórnar-
skrá var samþykkt með 61 prósenti
greiddra atkvæða. Þó segir Paul
Quaglia, sem starfað hefur í tutt-
ugu ár fyrir leyniþjónustu Banda-
ríkjanna (CIA) og sérhæft sig í
málefnum Taílands, í samtali við
fréttastofu CNN að árásirnar tengist
nýju stjórnarskránni líklegast ekki.
Það sé vegna þess að erfitt sé að
samhæfa slíkar árásir á svo stuttum
tíma. thorgnyr@frettabladid.is
Ellefu árásir í fimm
héröðum Taílands
Fjórir fórust í ellefu sprengjuárásum á vinsæla ferðamannastaði í Taí
landi. Minnst fjórir hafa látið lífið. Alþjóðlegir hryðjuverkahópar liggja ekki
undir grun. Líklegt að taílenskir uppreisnarmenn standi að baki árásunum.
Maður gengur fram hjá markaði í Phang-nga héraði þar sem sprengja sprakk. NordicPhotos/AFP
hua hin Phang-nga surat thani Phuket trang
sPreNgiNgAr 4 2 2 2 1
LátNir 2 0 1 0 1
særðir 24 0 3 1 6
✿ Ellefu árásir á fimm héruð Taílands
ViðskipTi Þrjár stærstu hlutabréfa-
vísitölur Bandaríkjanna, S&P 500,
Dow Jones og Nasdaq, eru í sögu-
legu hámarki um þessar mundir.
Vísitölurnar hækkuðu allar á
fimmtudag og náðu sögulegri hæð
við lokun hlutabréfamarkaða þann
dag. Slíkt hefur ekki gerst á einum
degi síðan árið 1999.
Um eftirmiðdaginn í gær höfðu
vísitölurnar lækkað eilítið, sérfræð-
ingar spá hins vegar að hækkanir
munu halda áfram. Þrennt spilar
þar inn í; aukin framleiðsla, styrk-
leiki í iðnaði og viðhorf fjárfesta.
Talið er að fjárfestar verði því bjart-
sýnir og muni ýta undir hækkun
hlutabréfa.
Að mati sérfræðinga er ekki
mikil ástæða til að áætla lækkanir
í náinni framtíð. Í apríl snarhækk-
uðu S&P 500, Dow Jones og Nasdaq
vísitölurnar í kjölfar hækkunar hrá-
olíu, en vísitölurnar náðu ekki fyrri
hæð og tóku dýfu í lok júní í kjölfar
þess að Bretar kusu að yfirgefa Evr-
ópusambandið. Nú virðist þó vera
minni hætta á lækkunum. – sg
Spá hækkandi hlutabréfaverði
hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum hafa verið á mikilli uppleið að undanförnu.
FréttABLAðið/getty
Talið er að fjárfestar
verði því bjartsýnir.
1 3 . á g ú s T 2 0 1 6 l a U g a R d a g U R10 f R é T T i R ∙ f R é T T a B l a ð i ð
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
0
-B
3
0
8
1
A
4
0
-B
1
C
C
1
A
4
0
-B
0
9
0
1
A
4
0
-A
F
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K