Fréttablaðið - 13.08.2016, Síða 42
ENSKI BOLTINN
ER Á STÖÐ 2 SPORT
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Enski boltinn er hafinn á Stöð 2 Sport
og deildin hefur aldrei verið meira
spennandi. Stöð 2 Sport verður með
beinar útsendingar allar helgar og
sérfræðingar Messunnar fara yfir
leiki vikunnar.
Enski Boltinn kynningarblað
13. ágúst 20166
sadio Mané
24 ára
sEnEgalskur kantMaður
Keyptur fyrir 35 milljónir punda frá
Southampton
Jürgen Klopp hefur lengi haft
augastað á Sadio Mané og var
ánægður þegar hann náði loks að
landa Senegalanum.
„Ég er búinn að fylgjast með
Sadio í nokkur ár eða frá Ólympíu
leikunum 2012. Ég fylgdist með
honum í Austurríki og hjá South
ampton,“ sagði Klopp um Mané
sem getur leyst allar stöðurnar
fremst á vellinum.
Mané spilaði tvö tímabil með
Southampton og sýndi þar hvers
hann er megnugur. Senegalinn
skoraði alls 21 mark í 67 deildar
leikjum með Dýrlingunum og gaf
níu stoðsendingar. Mané skor
draumaleikmaður klopps
sadio Mané mun spila í treyju númer 19 hjá liverpool.
Paul PogBa
23 ára
franskur MiðjuMaður
Keyptur fyrir 89,3 milljónir punda
frá Juventus
Fyrr í vikunni gerði Manchester
United Paul Pogba að dýrasta leik
manni allra tíma þegar félagið
pungaði út rúmum 89 milljón
um punda til þess að fá Frakkann
aftur á Old Trafford. Upphæðin er
stjarnfræðilega há, sérstaklega í
ljósi þess að Pogba var á mála hjá
United fyrir nokkrum árum.
Pogba yfirgaf enska liðið 2012,
orðinn pirraður á að fá ekki tæki
færi í aðalliði United. Á þessum
fjórum árum hefur mikið vatn
runnið til sjávar.
Pogba vann ítalska meistaratit
ilinn öll fjögur tímabilin sem hann
var í herbúðum Juventus, ítölsku
bikarkeppnina í tvígang og komst
í úrslit Meistaradeildarinnar vorið
2015.
Þá festi Pogba sig í sessi í
franska landsliðinu, var valinn
besti ungi leikmaðurinn á HM
2014 og hjálpaði Frakklandi að
komast í úrslit á EM í sumar.
Pogba er búinn að afreka allt
þetta og er aðeins 23 ára gamall.
Nú snýr hann aftur til United og á
að hjálpa liðinu að komast aftur á
toppinn eftir þrjú mögur ár.
„Paul er einn af bestu leikmönn
um heims og verður hluti af lið
inu sem ég vil búa til hér,“ sagði
José Mourinho, knattspyrnustjóri
United, um nýjasta liðsmanninn.
„Hann er fljótur, sterkur, skor
ar mörk og les leikinn betur en
margir leikmenn sem eru eldri en
hann.“
týndi sonurinn kominn heim
Manchester united borgaði metupphæð til að fá Paul Pogba aftur á old trafford.
n’golo kanté
25 ára
franskur MiðjuMaður
Keyptur fyrir 30,4 milljónir punda
frá Leicester City
Það getur margt gerst á einu ári. Í
ágúst í fyrra var N'Golo Kanté al
gjörlega óskrifað blað utan Frakk
lands en það hefur svo sannarlega
breyst á undanförnum mánuðum.
Kanté sló í gegn með Leicester
og átti stóran þátt í að liðið varð
Englandsmeistari í fyrsta sinn.
Hann vann sér sæti í franska
landsliðinu, spilaði á EM í Frakk
landi og var svo seldur fyrir rúmar
30 milljónir punda til Chelsea.
Kanté býr yfir nánast
ómennskri hlaupagetu og er frá
bær í að setja pressu á mótherjann
og vinna boltann. Enginn leikmað
ur vann fleiri tæklingar og vann
boltann jafn oft að meðaltali í leik
í ensku úrvalsdeildinni á síðasta
tímabili en Kanté. Og þrátt fyrir
þetta fékk Kanté aðeins þrjú gul
spjöld á síðasta tímabili.
Chelsea hefur verið rólegt á
félagaskiptamarkaðinum en Kanté
mun vafalítið styrkja Lundúnalið
ið mikið. Antonio Conte, nýr knatt
spyrnustjóri Chelsea, ætlar Frakk
anum stórt hlutverk í að koma lið
inu aftur í toppbaráttuna eftir
vonbrigði síðasta tímabils.
Ekki lengur óskrifað blað
n’golo kanté hefur náð mjög langt á skömmum tíma.
aði m.a. eftirminnilega þrennu á
tæpum þremur mínútum á móti
Aston Villa í maí 2015. Enginn leik
maður hefur þurft jafn lítinn tíma
til að skora þrennu í sögu ensku úr
valsdeildarinnar.
Mané er beinskeyttur leikmað
ur sem er góður í að fara fram hjá
varnarmönnum. Hann ætti því að
smellpassa inn í þann leikstíl sem
Klopp er að innleiða hjá Liverpool.
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
1
-0
2
0
8
1
A
4
1
-0
0
C
C
1
A
4
0
-F
F
9
0
1
A
4
0
-F
E
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K